Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 89

Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 89
næstu bæja við smíðar, þó kaupið væri lítið. Það gekk illa að stækka búið, og þessar krónur, sem ég fékk fyrir smíðar, björguðu mér mikið. Bauðst mér meiri vinna en ég gat afkastað. Nú var kominn sá tími að ég færi að byrja að slá túnið, átti bara eftir að vinna síðasta daginn við smíðina og bjóst við að vera kominn heim kl. 4 um daginn, en það dróst, og ég kom ekki heim fyrr en kl. 6. Var mér þá sagt, að Margrét kona mín hefði orðið mikið veik og væri búið að sækja Helga Jónasson lækni. Var hann stadd- ur hjá henni, en hvað væri að Margréti, gat hann ekki sagt mér. Það hafði komið fyrir áður, að hún fengi óþolandi kvalaköst og var farið að tala um, að þetta þyrfti að láta athuga og hún færi til Reykjavíkur til rannsóknar. Mér varð bilt við, þegar ég kom í bæinn og leit Margréti og fannst ég sjá hvað væri að gerast. Ég fór því til Þórunnar Þórðardóttur ljósmóður í Meiri-Tungu og bað hana að koma til okkar. Var það auðsótt, kom hún með mér og vöktum við bæði yfir Margréti um nóttina. Þetta var stutt dauða- stríð, hún var dáin kl. 5 um morguninn. Það er stundum stutt á milli lífs og dauða. Nú var ég illa settur og varð að reyna að fá mér stúlku til að vera í bænum yfir sumarið. Mér hugkvæmdist þá að fara að Sum- arliðabæ til Jónínu systur minnar, en hún átti uppkomnar dætur. Mér var þar vel tekið og fékk ég eina dótturina þar, Jóhönnu Jónsdóttur. Jóhanna mátti vera hjá mér yfir sláttinn. Þarna vai mér gerður mikill greiði, og ég veit, að ég hef aldrei borgað, eins og mér hefði borið. Nú var ég búinn að missa mína mikilhæfu konu og orðinn ekkju- maður í annað sinn, einn með fjögur börn okkar. Það segir mál- tækið að enginn viti hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þetta olli mcr miklum áhyggjum og erfiðleikum, og voru mér gefin ráð og brýnt fyrir mér að kvænast í þriðja sinn, en ég hafði ekki áhuga fyrir því. Það er líka til málsháttur er segir, að það séu fáir sem faðir en enginn sem móðir. Ég var á Brekkum í tvö ár, eftir að ég missti Margréti. Kristrún dóttir mín var farin frá mér, þegar Margrét dó. Hún ólst upp hjá Þorsteini bróður mínum og konu hans, Sigríði Ólafsdóttur á Ás- mundarstöðum. Þau áttu ekki börn ogf óskuðu eftir að fá hana og Goðasteinn 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.