Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 91
yrði maður tiltækur þegar ég kæmi austur. Það fór eins og mig
grunaði, að sá maður var ekki tiltækur.
Við komumst austur í Vík fyrsta daginn, en þá bilaði bíllinn og
urðum við að bíða í Víkinni næsta dag, meðan viðgerð fór fram
á honum. Næsta dag komumst við að Núpsstað. Var þá kominn
maður frá Skaftafelli með hesta til þess að sækja okkur. Daginn
eftir var lagt af stað á Skeiðarársand og komið að Skaftafelli kl. 4
í góðu veðri. Það átti að vera til teikning af húsinu, þegar ég kæmi,
en það var með teikninguna eins og manninn; hún var ekki til
heldur. Það varð að samkomulagi hjá okkur Ingigerði, að við yrð-
um að búa til eitthvert riss af húsmynd. Byrjuðum við á því strax
og lukum við það um kvöldið. Var farið eftir henni, og er mér
sagt, að húsið sé notað ennþá. Morguninn eftir var hafizt handa
við húsbygginguna, og var efnið rekastaurar. Mikið var búið að
rista af þeim, og mikið var til af óristum staurum.
Þarna á Skaftafelli bjuggu fjórir bræður félagsbúi á þessum ár-
um og voru tveir af þeim næstum því alia daga að rista rekastaura
í 6 vikur, en ég að smíða úr þessu efni. Þurfti ég stundum að taka
öxina, og tafði það mikið fyrir, móti því að smíða úr aðkeyptu
timbri. Einnig þurfti ég að rífa niður gamla bæinn. Mér var sagt
að hann væri 100 ára gamall. Var sízt betra að vinna úr því efni,
sem í honum var, en hann var ófúinn og timbrið svo hart, að það
var eiginlega hvorki hægt að saga það né reka í það nagla. Þetta
var víst allt tómur rekaviður. Voru sum borðin mjög breið og
mér virtist vel söguð. Scnnilega hefur mest verið smíðað úr reka-
við í Oræfunum. Við Þorsteinn unnum af kappi við þessa bygg-
ingu og gekk það sæmilega, enda sögðu Öræfingar, að það gengi
eins og í lygasögu. Við vorum heppnir með veður. Ég held ég hafi
ekki lifað jafn gott veður eins og þarna var, og því til sönnunar er
það, að oft voru gestir, sem sváfu í tjöldum og hafði ég ekki séð
það fyrr, að fullorðið fólk væri allsbert að baða sig og striplast í
sólskininu eins og krakkar út um allt tún.
Framhald. í nœsta hefti.
Goðasteinn
89