Úrval - 01.12.1976, Page 6
4
URVAL
annarra mikilsvirtra framleiðenda —
bauð Williams bókina Selznick—Int-
ernational Pictures, sjálfstæðu kvik-
myndafélagi. Eins og aðrar konur,
sem lesið höfðu bókina, var Kay
Brown, forstjóri Selznick umboðs-
ins í New York, stórhrifin. Brátt
fékk David O. Selznick sjálfur í
hendur þessa 1037 síðna skáldsögu,
ásamt þessari hrifningar orðsend-
ingu: ,,Ég bið, hvet, og sárbið þig
um að lesa þetta með sama. Ég veit
þú munt kaupa það. ’ ’
Selznick las ágripið strax og gast
vel að því. En honum var ljóst, að
hann vantaði mikilvægt atriði til að
það fengið notið sín — sem sé
kvenstjörnu í hlutverk Scarlett
O’Hara — sendi hann þvx Kay Brown
neitandi símskeyti. Kay var ófús að
gefast upp og sendi ágripið þegar til
formanns félagsins, John Hay
Whitney sem þegar í stað sagði
henni, að ef Selznick vildi ekki kaupa
réttinn, mundi hann sjálfur kaupa
hann. Selznick flýtti sér að bjóða
50.000 dollara, sem samþykkt var
þegarí stað.
Það virðist ótrúlegt, að nokkuð
jafn stórkostlegt og Á hverfanda
hveli, skuli hafa orðið til nánast af
tilviljun. En þannig var því farið.
Árið 1926 varð Margaret Mitchell að
halda kyrru fyrir í Atlantaíbúð sinni
með illa brákaðan öklalið. Þá byrjaði
hún, fremur hikandi á skáldsögu
um borgarastríðið til að drepa tím-
ann. Vegna þess, að hana skorti
sjálfstraust, vann hún að þessu í leyni
næstu fjögur árin, og missti smám-
saman áhugann á þessu mikla verki.
Og svo 1 apríl 1935, í rithöfunda-
boði í Atlanta, hitti hún Harold
S. Latham, ritstjóra hjá Macmillan
bókaútgáfunni. Þegar Latham, sem
hafði fengið bendingu frá kunningja
sínum, innti Margaret eins og af
tilviljun eftir sögu hennar, svaraði
hún bara: ,,Ég er ekki með neina
sögu.”
Um kvöldið hringdi síminn í
hótelherbergi Lathams. Það var
Margaret Mitchell ,,Gæti ég fengið
að hitta þig andartak?” Þegar Lat-
ham fór niður í forsalinn, sá hann
gríðarstóran handritastafla á bekk.
Eiginmaður Margaret hafði talið
hana á að láta Latham lesa það.
Latham las gulnað og hornbeyglað
handritið, og grunaði fljótt, að hér
gæti verið um metsölubók að ræða.
Grunur hans reyndist réttur. Eftir
að bókin hafði verið gefin út í júní
1936, skrifaði gagnrýnandi New
York Times: ,,Hvað frásagnarsnilld
og stíl varðar, hefur henni aldrei
verið tekið fram í amerískri skáld-
sagnagerð.” Annar gagnrýnandi
sagði einfaldlega: ,,Þrjár bestu skáld-
sögur sem ég hef lesið þetta ár, eru
A hverfanda hveli.
Þegar salan á bókinni var komin
upp í 300.000, varð David Selznick
ljóst, að kvikmyndum sögunnar var
orðið umræðuefni um land allt. Það
fór ekki á milli mála, að velja Clark
Gable í hlutverk Rhett Butler. En