Úrval - 01.12.1976, Page 18
16
URVAL
Toscanini revndi að lokka snilldar-
leik út úr gagnfræðaskólahljómsveit.
En á þessu ári fékk Cosmos lið-
styrk, fyrsta flokks leikmenn frá Eng-
landi og írlandi og ýmsum norður-
amerískum atvinnuliðum. Og að lok-
um bættist þeim 800.000 dollara
markaskorari frá Ítalíu, Giorgio
„Langijón” Chinaglia. Þetta nýja og
endurbætta lið tók að láta að sér
kveða á leikvellinum og við miða-
sölurnar. Þegar þeir fluttu á glæsilegt
endurbyggt Yankee Stadium, dró
Cosmos að sér yfir 28.000 áhorfendur
á fyrsta leik keppnistímabilsins. í
Seattle komu 58.128 knattspyrnu-
áhugamenn til að sjá Pelé og félaga
hans sigra Saundersliðið 3—1. Þetta
voru fleiri knattspyrnuáhorfendur en
nokkurntíma höfðu verið saman-
komnir í Bandaríkjunum.
SVARTI -JAGÚARINN.
í fyrsta sinn, sem venjulegur
bandaríkjamaður sér Pelé skokka inn
á leikvöllinn, verður að fyrirgefa
honum, þó hann sé ekki yfir sig
hrifínn. Læravöðvar hans eru að vísu
stórkostlegir, en hann er ekki hár í
loftinu, 176 sentimetrar, og talan 10
á baki hans sýnist næstum of há fyrir
hann að bera. En eftirtektarsamur
áhorfandi sér þó fljótt, að nr. 10 þó
hann sé tæpur meðalmaður á vöxt,
er risi í leikni. Hann rennir sér
gegnum og kringum þröng af and-
stæðingum álíka liðlega og áreynslu-
laust og jagúar. Hann birtist hér,
síðan þar, um allan völlinn, oft
einmitt kominn á mikilvægan stað,
um það er atlaga hefst — stöðugt
tilbúinn að stökkva eins og liðugur
köttur í hvaða átt sem er. Þegar
boltinn kemur nærri honum, eru
miklar líkur til að hann hefji skyndi-
legar leikaðgerðir, stundum of hraðar
til að þeim verði fylgt eftir með aug-
unum. Svona flaustur getur ef til vill
einungis leitt til nákvæmrar send-
ingar til samherja. Eða Pelé getur
komið auga á tækifæri til að brjótast í
gegnum næstum ósýnilega opnun í
þröng varnarleikmanna.
Þó næstum allar aðrar knatt-
spyrnustjörnur séu sérlega snjallir í
einhverri ákveðinni stöðu eða grein
íþróttarinnar, er Pelé snillingur í
þeim öllum jafnt. í vörninni er hann
snillingur í að hefta sókn andstæð-
inga. í sókninni er hann óviðjafnan-
legur, með smá hreyfingu hæls, axlar
eða ennis sendir hann knöttinn á
nákvæmlega réttan stað í lofti eða
jörðu, þar sem samherji getur haldið
áfram sókninni með sem minnstri
orkusóun. Hann stekkur hærra en
hávaxnari mótherjar, og eftir að hafa
komið markmanni á óvart með einni
eða tveim villandi höfuðhreyfíngum,
sendir hann boltann út í hornið á
netinu eins og stjörnuhrap.
Pelé getur haldið uppi sprett-
hlaupi á fullum hraða meðan hann
rekur hlýðinn boltann á undan sér,
svo manni fínnst sem knötturinn
hljóti að vera tengdur við fótlegginn
á honum með ósýnilegum teygju-