Úrval - 01.12.1976, Síða 24
f
22
innflytjendur fyrst sest að árið 1630. í
hverju hverfi sem hafði sérstaka
sagnfræðilega þýðingu var hverfls-
félag. Stokvis sendi formönnum
þessara félaga eintak af greininni um
blómakassana og bauð þeim á fund í
ráðhúsinu.
Á fundinum skýrði Stokvis frá því,
að hann hefði hugmynd fram að
færa, sem væri svo einföld, að þeir
yrðu alveg höggdofa, er þeir sæju,
hvernig hún gæti samt gerbreytt
hverfum þeirra. Hann sagði, að
skólabörn ættu að safna pöntunum
á ódýrum blómakössum og nota
fyrirframgreiðslurnar til þess að
kaupa kassa og blóm x heildsölu og
ganga síðan frá þeim og afhenda þá
kaupendunum. Blómakassarnir yrðu
fólki síðan hvatning til þess að mála
hurðir og dyrastafi, setja upp ný
gluggatjöld, hreinsa burt allt rusl og
snyrta heimili sitt, hús og götuna,
sem það byggi við.
Fulltrúar frá þrem hverfum sem
höfðu sérstaka sagnfræðilega þýðingu
hlustuðu kurteislega á mál hans, en
þeir voru ekki sannfærðir. Þrír aðrir
vildu reyna þessa hugmynd Stokvis.
Þeirvoru Yvonne Balcer, 26 ára, sem
bjó í hverfinu við Van Vorst-almenn-
ingsgarðinn, en í því hverfl var nú
orðið krökkt af áfengissjúklingum og
eiturlyfjasölum, Tony Nicodemo,
formaður hverfisfélags í hverfl því,
sem ber heitið Italska þorpið og nær
yfir 30 götulengdir, en það hafði
áður verið mjög litríkt og þrungið
lífl og fjöri, og Joe Duffy, fyrr-
ÚRVAL
verandi endurskoðandi frá Paulus
Hook, elsta hverfi Jersey City, en nú
ógnaði iðnaðarútþensla tilveru þess.
Stokvis og þessir nýju stuðnings-
menn hans tóku á leigu kvikmynd-
ina sem hann var nýbúinn að sjá fyrir
35 dollara, og skipulögðu sýningar
á henni í ýmsum skólum í þessum
hverfum þá um vorið. í samkomusal
Holy Rosary-gagnfræðaskólans í
ítalska þorpinu klöppuðu nemendur
og hrópuðu húrra fyrir kvikmynd-
inni. Þegar Nicodemo bað um
blómakassasölumenn, voru ótal
hendur á lofti. Hann útbýtti pönt-
unareyðublöðum, og svo lögðu nem-
endurnir af stað eftir skólatíma til
þess að reyna að safna pöntunum.
Þeir komu í skólann næsta morgun
með margar tylftir pantana, en
aðeins 17 dollara í reiðufé. Fæstir
voru reiðubúnir að borga 4 dollara og
25 cent fyrir blómakassa með blóm-
um, fyrr en búið væri að afhenda
hann. Nemendurnir í Van Vorst-
hverfinu áttu við annað óvænt vanda-
mál að etja. Morðingi roskinnar konu
sem nýlega hafði verið myrt hafði
ekki fundist enn, og því var for-
eldrum ekki um það geflð að leyfa
börnum sínum að fara til ókunnugs
fólks og bjóða því blómakassa.
Yvonne fann ungan bandamann
sér til aðstoðar. Hann var 13 ára og
hét Robert Rodríguez. Faðir drengs-
ins hafði eitt sinn átt lítinn búgarð á
Puerto Rico. Drengurinn ræktaði 3
maísstöngla fyrir framan gamla rað-
húsið, sem hann átti heima í. Hann