Úrval - 01.12.1976, Side 26
24
URVAL
bláum, bleikum og gulum litum.
„Blómin verkuðu líkt og kveikiþráð-
ur,” sagði Frank. ,,Og með hjálp
þeirra lifnaði fegurðarskyn fólks brátt
við svo að um munaði. ”
Nú hófust keðjuverkanir, alveg
eins og Jack Stokvis hafði spáð. íbúar
í blómakassahverfunum fóru að mála
hurðir, dyraumbúnað og glugga,
setja upp ný gluggatjöld og hreinsa
lóðir, garða og götur, þar sem áður
hafði verið fullt af drasli. Og þessi
svæði höfðu svo áhrif á íbúa annarra
hverfa. í fyrsta skipti fóru fjölskyld-
ur nú að flytjast til gamalla hverfa í
stað þess að flytjast burt frá þeim, og
að eyða bæði tíma og peningum í að
gera við niðurnídd hús og fegra þau á
allan hátt. Tvö hundruð manns sóttu
fyrsta fund Verndunar- og endur-
nýjunarfélagsins, sem tók til allrar
borgarinnar. Níu mánuðum síðar
fékk félagið ríkisstyrk, sem nota
skyldi til þess að gera við og endurnýja
gömul hús úr brúnsteini í gömlu
hverfunum, sem höfðu mikið sagn-
fræðigildi.
í Paulus Hook-hverfinu gaf fyrir-
tækið Colgate-Palmolive borginni
20.000 dollara til að gera nýjan
almenningsgarð og aðra 8000 dollara
til þess að gróðursetja tré, en verk-
smiðja þess fyrirtækis við Hudsonána
hafði undanfarið verið að kaupa
mannlaus hús, sem það hafði síðan
látið rífa og malbika síðan yfír allt
saman til þess að stækka þannig
athafnasvæði sitt. I ítalska þorpinu
varð nú meira líf og fíör en verið
hafði áður en blómakassarnir komu
til sögunnar. Og þróun þessi fékk hið
opinbera ítalska heiti „risorgi-
mento.” (endurvakning) Hvarvetná
gat að líta hina grænu, hvítu og
rauðu liti ítalska fánans, þegar
málningu var útdeilt ,,til þess að
hjálpa blómunum. ’ ’
Stokvis ræddi við listfræðsludeildir
Ferris-menntaskólans, Jersey City-
fylkisháskólans og Keanháskólans í
bænum Union, og árangurinn varð
sá, að nemendur þessara skóla tóku
að koma hópum saman á laugardög-
um til þess að mála skilti og rusla-
körfur í ítalska þropinu. Óhreinni
brekku við hlið járnbrautarteina,
sem áður hafði verið hulin stein-
steypu, var breyttí litskært veggmál-
verk. Þar gat að líta risavaxna sól og
orðin: VELKOMIN I ÞORPIÐ. Mart-
in Halloway, prófessor í listum við
Keanháskólann, gerði „risorgi-
mento” (endurvakninguna) að sam-
eiginlegu verkefni heils námshóps
skólans. Nemendur hans skreyttu
margar framhliðar hinna 120 ítölsku
stórverslana ítalska þorpsins með
skrautlegum veggmálverkum, sem
sýndu, hvað þar var á boðstólum,
t.d. með pylsum, ostum, vínum,
ávöxtum og ítölskum brauðhleifum.
A tvo risastóra veggi, sem höfðu áður
verið útataðir í alls konar krassi, voru
málaðar leiðbeiningarskrár yfír ít-
alska þorpið, þar sem sýndar voru
helstu verslanir, veitingahús, al-
menningsgarðar, minnismerki, skól-