Úrval - 01.12.1976, Blaðsíða 44
42
ÚRVAL
krakka sem voru að leika sér í bolta-
leik á götunni. Og krökkunum til
mikillar ánægju stansaði hann og fór
að leika sér við þau. Gatan var svo
lítil og þröng, að það varð að kasta
boltanum beint upp í loftið. Og það
var einmitt það sem Cosby gerði. Og
eftir svipnum á andliti hans að dæma
var hann orðinn lítill strákur aftur
sem var að leika sér með Albert feita
og strákahópnum.
★
Á rútu til Saratoga á meðan hestaveðreiðunum stóð, sagði ákafur
veðreiðarunnandi við félaga sína að hann tæki sér alltaf frí í ágúst til að
njóta þaratoga. Þá vaknaði hann klukkan sex á hverjum morgni heima
hjá sér á Long Island, keyrði bílinn sinn niður á Manhattan, leigði sér
þar stæði fyrir hann, og tæki svo rúmna, sem væri fjóra tíma á leið til
leikanna, eftir veðreiðarnar tæki hann svo rútuna til baka, keyrði heim
og væri kominn í bóiið um miðnættið — reiðubúinn að endur
taka þetta allt eftir sex klukkustundir.
,,Fyrir alla þá peninga sem þú borgar fyrir stæðið og rútuferðina,”
sagði sessunautur hans við hann, „gætirðu leigt þér herbergi í Saratoga
og komist hjá öllu þessu basli á hverjum degi. ’ ’
,,Hvað?” svaraði hann gramur. ,,Og vera ekki hjá fjölskyldunni?”
Maður nokkur kom í afgreiðslusal hótelsins og bað afgreiðslumann-
inn um ritföng, því hann þyrfti að skrifa bréf. Afgreiðslumaðurinn
spurði: ,,Ertu gestur hótelsins?”
,,Nei,” svaraði maðurinn ergilega. ,,Ég er ekki gestur. Ég greiði
6.000 krónurá dag.
V.G.
Ferðamannahópurinn var að skoða Grand Canyon. ,,Vitið þið,”
sagði leiðsögumaðurinn, ,,að það tók milljónir ára að gera þessar
gjár?”
, ,Hvað er þetta! ’ ’ kallaði einn úr hópnum. , ,Ég hafði ekki hugmynd
um að ríkið hefði staðið fyrir framkvæmdunum. ’ ’
Maður nokkur kom til sálfræðings og sagði: „Læknir, ég veit ekki
hvað er eiginlega að mér. Enginn vill tala við mig, vinnufélagarnir
tala ekki við mig, börnin tala ekki við mig, konan mín talar ekki við
mig — hvernig stendur á því að enginn vill taia við mig?”
Sálfræðingurinn sagði: , ,Næsti! ’ ’