Úrval - 01.12.1976, Síða 63
INDJÁNASUMAR:,, HELGUNARDA GAR ’ ’
61
norður-Pennsylvaníu og New Jersey
seint á átjándu öld, og þau komust
opinberlega inn í málið með Orða-
bók Websters árið 1841.
Hversvegna nafnið indjánasumar?
Einn rithöfundur heldur því fram, að
indjánar hafi notað þennan tíma til
veiða, vegna þess hve „veiðidýrin”
vom í góðum holdum og vegna
móðunnarí loftinu, sem gerði veiði-
manninum auðveldara að komast í
gott færi við dýrin.” Annar höfund-
ur heldur því fram að indjánar hafí
kveikt í sléttusinunni á þessum árs-
tíma og af því hafí mistrið í loftinu
stafað. Ludlum álítur að þetta hafí
verið uppskerutími indjánanna á
maís og graskerjum að haustinu,
gagnstætt, ,enskri uppskeru” á hveiti
og garðávöxtum. Hafðu það, sem þér
finnst sennilegast, allar skýringarnar
eru tilgátur.
Fyrrum var þetta orðtak aðeins
notað um veðurfar í norðausturhér-
uðunum, en hefur breiðst út til
vesturs. Indjánasumar kemur nú yfír
Montana, Idaho, Wyoming og Utah,
og getur hangið yfír þeim mánuðum
saman, áður en það mjakast til
norðausturs yfir Kanada. Fyrir tveim
árum byrjaði það snemma í október
og entist að mestu út nóvember.
Heitt og þurrt veður hélt elgsdýrum
og fjallageitum hátt uppi í fiöllum,
langt frá öllum vegum, næstum til
enda veiðitímans. Vegna þessa varð
veiðin stórum minni en undanfarin
ár, þegar mikil fannkoma snemma
hausts neyddi dýrin til að flytja sig
niður á láglendið. I október síðast-
liðnum klifu leiðangrar hátt upp í
fialllendi Montana, þar sem jökla
þjóðgarðurinn er, með þungan út-
þúnað til að kvikmynda stanganir
snúinhyrndu Klettafiallahrútana um
fengitímann. En þeir fundu aðeins
hrúta, sem róluðu letilega um'i góða
veðrinu. Þetta veðurlag hélt fram í
nóvember, þegar veturinn kom með
óvæntu offorsi. En þá var orðið of
seint að kvikmynda, kindurnar eðl-
uðu sig 1 einrúmi úti í hriðarkófínu.
Þegar helgunardagarnir falla
saman við fardaga kóngafíðrildisins,
getur ekkert dýrlegra að líta í nátt-
úrunni. Þeir byrja í september og ná
hámarki í október, þegar kóngarnir
safnast milljónum saman á svonefnd-
um „fíðrildatrjám” trjám sem þau
nota á ferðalaginu frá norðurhéruð-
unum til Mexíkóflóa, Mexíkó og
Kaliforníu. Fiðrildin opna vængina
til að gefa þeim seinkomnu merki í
rökkrinu og í kvöldkyrrðinni er eins
og trén springi út í flugeldum af
svörtum og gulum fíðrildum.
Sumarið 1975 hafði ég mikinn
áhuga á að taka mér gönguferð á
hendur á þessum skemmtilega árs-
tíma og spurði David Ludlum, hvort
hann gæti sagt fyrir um komu
indjánasumarsins 1976. Hann hló.
,,Við vitum ekki nóg um veðrið,”
viðurkenndi hann. ,,Það er best að
bíða fyrsta frostsins, setja síðan niður
í bakpokann, indjánasumar kemur
— nema annað kuldakast komi á