Úrval - 01.12.1976, Side 64
62
ÍJRVAL
eftir. Það er aldrei hægt að segja um
það fyrirfram.”
Svo ég ætla að fara eftir ábend-
ingum náttúrunnar. Þegar hlý, þurr
móða legst yfir landið, legg ég bara af
stað gangandi.
Þú getur alltaf séð hverjir eru sigurvegarar í lífinu og x íþróttum
á einu: Þeir kvarta aldrei yfir ráðamönnunum.
B.V.
Við hreyflstiga á Georgia sjúkrahúsinu er svohljóðandi skilti sem
reynir að minna á tvö vandamál samtímans: ,,Til þess að spara orku
okkar og halda heilsu þinni í lagi, gerðu svo vel að nota hreyfístiga
okkar aðeins til stuttra ferða.
Landsstjóri í Connecticut, Ella Grasso, fékk að hefðbundnum
hætti bílnúmer nr. 1. En hún setti það á reiðhjólið sitt af því hún
notaði ekki einkabíl.
I því skyni að draga úr barneignum hafa yfirvöld í Madras á
Indlandi boðið hverjum karlmanni sem lætur gera á sér ófrjósemis-
aðgerð viku frí frá vinnu og 1500 krónur í peningum.
Sennilega er ríðasta örugga veðurspáin sem sögur fara af, þegar guð
sagði Nóa að það væru 100% líkur á úrkomu.
Þegar ég eignaðist dóttur nr. tvö kom mamma til okkar til að
hjálpa mér með hvítvoðunginn og 14 mánaða eldri dóttur okkar.
Eitt sinn þegar þær litlu vom báðar volandi og blautar sagði maðurinn
minn: ,,Á stundum eins og þessum finnst mér að guð hefði átt að
skapa móðurina með fjórar hendur. ’ ’
,,Hann gerði það raunar,” svaraði mamma. ,,En helmingurinn af
þeim er á föðurnum. ’ ’
B.A.
Kona sem var að lesa stjörnuspádóma sagði við manninn sinn:
,,Ef þú hefðir fæðst tveim dögum seinna hefðirðu orðið vingjarn-
legur, örlátur og fyndinn. ’ ’