Úrval - 01.12.1976, Side 74
72
LJRVAL
Árásarsveitin átti að leggja af stað frá
flugvelli skammt frá Sharm el Sheikh
á Rauðahafsenda Sínaískaga, og
stefna þaðan til Afríku.
(s ty tt úr Newsweek)
3. JÚLÍ, klukkan 2 eftir hádegi,
söfnuðust 19 ráðherrar saman í
fundarsal ríkisstjórnarinnar í Tel
Aviv. Þeir höfðu verið kallaðir saman
til að ákveða, hvort af björgunará-
rásinni skyldi verða eða ekki. Klukk-
an þrjú var þeim tilkynnt, að vegna
nákvæmrar tímasetningar aðgerðar-
innar væru sumir þættir hennar þegar
hafnir. Ef ákveðið yrði að hætta við
allt saman, yrði að afturkalla þessa
þætti.
(Stytt úr New York)
FÆSTIR RÁÐHERRANNA höfðu
nokkurn tíma heyrt um hernaðar-
áætlun, og þeir höfðu þungar
áhyggjur af því, að mannslíf yrðu í
voða. En Rabin forsætisráðherra
barðist ákaft fyrir samþykkt árásar-
innar. Klukkan 3.30 óskaði hann
eftir atkvæðagreiðslu. Það varð
samhljóða ,Já” — og fundinum
lauk með bæn.
Flugvélarnar, sem nota átti, voru
fjögur Hercules C—130 flugvirki og
tvær Boeing 707, önnur þeirra stjórn
— og fjarskiptamiðstöð en hin
fljúgandi sjúkrahús. Með þeim fóru
ísraelskar Phantomþotur til verndar
hluta af leiðinni. Vélarnar fylgdu
venjulegri flugleið E1 A1 til Suður-
afríku, fyrst yflr Rauðahafi, síðan yfir
Eþíópíu og Kenyu. Sjúkrahúsvélin
lenti í Nairobi. En vélarnar flmm,
sem eftir voru, beygðu snöggt í
næturmyrkrinu og tóku stefnuna á
Entebbe. Klukkan 11 um kvöldið
renndu Herculesvélarnar fjórar sér
yflr strendur Viktoríuvatns í áttina að
flugvellinum, en Boeingþotan með
stjórnstöðinni hnitaði hringi yflr.
(Stytt úr Newsweek.)
MEÐAN Á SEX daga varðhaldi
gíslanna stóð í gömlu flugstöðvar-
byggingunni í Entebbe, heimsótti
hinn opinberi „gestgjafí” þeirra þá
nokkrum sinnum: Hinn tröllvaxni og
óútreiknanlegi Idi Amin, forseti
Úganda, sem meðal annars hafði
palestínumenn í lífverði sínum. Þótt
hann léti mikið yflr því hve annt
hann léti sér um velferð og öryggi
gíslanna, hafði hann bersýnilega
boðið skæruliðunum hæli, meira að
segja lánað deild úr her sínum til þess
að hjálpa þeim að gæta gíslanna. Að
minnsta kosti tvisvar hafði hann látið
í ljós þá skoðun sína, að ísrael og hin
löndin hlytu að ,,láta undan” pal-
estínumönnunum.
Þegar fyrsta Herculesvélin stöðvað-,
ist á flugbrautinni, seig fyrirferðar-
mikið stél hennar og stór, svartur
Mercedes-Benz lúxusbíll rann út úr
henni, og fast á eftir tveir Landróver-
ar með tíu ísraelskum árásarmönnúm
í palestínsum einkennisbúningum.
Aftur í lúxusbílnum sat vel feitur
ísraelskur liðsforingi í einkennisbún-
ingi Úgandaforseta og hafði svert sig í