Úrval - 01.12.1976, Síða 87

Úrval - 01.12.1976, Síða 87
f YFIR MÚRINN að halda áfram námi í marxistískri hagfræði við háskólann í Leipzig. Hann lagði stund á námið jafnhliða starfi sínu og tók lokapróf skömmu eftir að Berlínarmúrinn var reistur 1961. Áður en langt um leið var hann orðinn skipulagsfræðingur fyrir fjölda spónverksmiðja, átti sæti í skipulagsdeild húsgagna- og spón- iðnaðarins og var flokksforingi kommúnistaflokksins á sínum vinnu- stað. Hann vissi, að sá dagur myndi koma, að hann næði ekki lengra, þrátt fyrir kunnáttu og getu. Hann átti ættingja í Vesturþýskalandi og gat þess vegna ekki komist hærra en að ákveðnu marki. En á sínu sviði gat hann verið öruggur. Margir félaga hans voru bundnir samskonar fjöl- skyldufjötrum, og trúnaður hans sjálfs var aldrei dreginn í efa. í þessu sambandi var þó Jutta honum til stuðnings. Hún var fyrrum ákafur og einlægur félagi í æskulýðs- samtökum kommúnista, síðan ritstjóri starfsmannablaðsins á sínum vinnustað og fékk loks stöðu við starfsmannahald vörusýningarinnar heimskunnu, Leipziger-Messe. í sameiningu öfluðu þau sér vissrar virðingar og stöðu innan ,,stéttlauss” samfélags síns. Þau höfðu eigin íbúð og tekjur þeirra voru yfir meðallagi, og yfirleitt voru þau álitin hin full- komnu kommúnistahjóii. I mörg ár taldi Heinz sig fullkomlega ,,áreið- anlegan”, ogjutta taldi flótta bein- 85 línis glæp, og talaði fyrir því máli sínu af sannfæringu. En svo tók einhver innri uggur að grafa um sig — fyrst hikandi og mgl ingslegur, en síðan sterkari og ljósari. Jutta þorði ekki að trúa neinum fyrir þessu ieyndarmáii sínu og allra síst flokksdyggum eiginmanni sín- um. Henni datt ekki eitt einasta andartak í hug, að hann kynni líka að efast. Ekki fyrr en vetrarkvöid eitt árið 1963. Heinz kom seint heim, hafði seinkað á einum af þessum ótölulegu flokksfundum á skrifstofunni. Hann skellti hurðum, þegar hann kom heim, hann var þreyttur og argur. Kjaftæði, kjaftæði og aftur kjaftæði. sagði hann reiðilega. Enn einn langur og þreytandi fundur, nákvæmlega eins og tugir annarra siíkra funda. Ákvarðanir, sem fólu ekkert nýtt í sér. Öframkvæmanlegar framleiðslu- kröfur. Innantómar hvatningar til verkafólksins og slagorð til að slengja framan í samfélagið sem heild. Allt saman lýgi frá upphafi til enda. Heinz skrúfaði sig upp í ofsareiði. Hann sagðist ekki lengur geta haldið þessum leik áfram, hann gæti ekki staðið í þvílíkri hræsni, sem allir þó sýndu — ríkið, flokkurinn, hann sjálfur. Hann sagðist ekki lengur geta verið með í þessu, hann yrði að komast í burtu. Jutta var sem lömuð. Hún hafði aldrei fyrr heyrt hann láta sér þvíiíkt og annað eins um munn fara. Það,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.