Úrval - 01.12.1976, Side 89

Úrval - 01.12.1976, Side 89
YFIR MÚRINN 87 1964 var hann orðinn sannfærður um, að stjórnarráðshúsið, svo vel varið sem það var og undir strangri vörslu, geymdi á einhvern hárt lykil- inn að flótta þeirra. En hvar og hvernig? Hvað fjarlægð snerti var ekki til- takanlega erfitt að komast til landa- mæranna úr garði hússins. Raunar auðvelt, en tilgangslaust. það var fyrirfram dauðadæmt að gera tiiraun til að klippa sig í gegnum gadda- vírsgirðinguna, hiaupa yfir ,,dauða- svæðið” og loks klöngrast yfir sjáifan múrinn. Aður en það hefðist hefðu þau öll verið skotin. Það hlaut að vera til önnur lausn. Eftir fjölda heimsókna á efstu hæðina rann það loks upp fyrir honum, hver hún var. Dag nokkurn, þegar hann stóð á götunni fyrir neðan húsið, sá hann eins og í vitrun hvernig þetta yrði að gerast. Ofan af þaki, auðvit- að! Hver mundi láta sér detta í hug flótta afþaki stjórnarráðsins? Hann sá líka, hvernig þetta varv hægt. Nfesta hættan var af Ijósköst- urunum. Þeir sátu eins og hræfuglar á háum möstrum meðfram múrnum og drúpru höfðum. En þeir lýstu niður á jörðina, ekki upp. Sá, sem horfði upp frá götunni, blindaðist af ljósunum og sá ekki upp fyrir þau. En ef þau skyldu nú uppgötvast uppi á þakinu, þrátt fyrir alit? Þá myndu þau bara setjast og bíða þess að verða handtekin, og þakbrúnin hlífði þeim fvrir skotum að neðan. Mesta hættustundin yrði þegar þau færu ofan af þakinu vestur yfir. En sá búnaður, sem Heinz hafði í huga, hafði það I för með sér, að það var aðeins mjög stutt stund. Með góðum undirbúningi og góðri hjálp var hægt að gera þetta svona, sagði hann við Juttu um kvöldið heima í íbúðinni í Leipzig. Þau ætluðu að undirbúa sig vandlega og hægt og gleyma engu. Þetta var hægt. Þau gátu orðið frjáls. Ogjutta var honum sammála. ÞAU LEITUÐU HJÁLPAR hjá vin- um sínum í Vesturberlín, sem enn má ekki skýra frá nöfnunum á. Þessir vinir notuðu ævinlega rétt sinn til þess að heimsækja ættingja austan- tjalds og hittu Hcinz og Juttu þó nokkrum sinnum. Þeir lofuðu að koma að múrnum gegnt stjórnar- ráðinu með nauðsynlegan búnað kvöldið, sem flóttinn var ákveðinn. Heinz notaði tímann til þess að rannsaka flata þakið á húsinu gaum- gæfílega. Hann komst að því, að loft- ræstingarpípur og aðrir þvílíkir hlutir stóðu upp úr því hér og hvar, og þetta voru ljómandi staðir til að felast á bak við. Hann hafði engin tök á að rannsaka þann hluta þaksins, sem var næst múrnum, en öll rök bentu til þess, að þakið væri samskonar þar. Sem betur fór var húsið byggt í stöllum, þannig að þakpallarnir voru eins og þilför á skipi. I stað þess að eiga fyrir höndum hættulegt klifur frá glugga upp á þak gat fjölskyldan einfaldlega hoppað svo sem meter niður úr glugga á sjöttu hæð ofan á þakið á þeirri fímmtu. Því næst urðu þau að stökkva af fimmtu hæð ofan á þak þeirrar flórðu, en það lá um- hverfís rvær efstu hæðirnar alveg út að Nederkirchnerstrasse. En hve hátt uppi væru þau þar? Það urðu vinirnir í Vesturberlín að vita eins nákvæmlega og auðið yrði. Heinz hafði því með sér tommu- stokk og mældi lofthæðina á einu salerninu í húsinu. Með því að leggja saman lofthæð- ina og áætlaða þykkt gólfa og þaka komst hann að því, að ofan af þakinu á flórðu hæð niður á götu hlyti að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.