Úrval - 01.12.1976, Page 94

Úrval - 01.12.1976, Page 94
92 URVAL liðu fjórar vikur, og enginn spurði. Heinz og seðillinn hans höfðu bersýnilega gieymst alveg. Það þýddi að seðlarnir og afritin voru ekki borin saman á hverju kvöldi. Hann endurtók þetta nokkrum vikum síðar, þegar annar varðmaður var við dyrnar. Ekkert gerðist þá heldur. Nú höfðu hann ogjutta sinn seðilinn hvort. Á flóttadaginn væri ekkert afrit til, engin leið fyrir eftir- iitið að vita, að tveir gesta dagsins hefðu ekki skiiað sér um lokun. Það var eins og myrkrið væri sérlega lengi að leggjast yfir borgina þetta kvöld. Út um klósettgluggann sáu þau ljósin tendruð í Vesturberlín. Skammt frá runnu fréttir hins vest- ræna heims yfír efsta hluta húss. Berliner Morgenposts. Vesturþýski blaðajöfurinn Axel Springer hafði viljandi látið reisa mannvirkið svo nærri múrnum, að hægt var að lesa ljósafréttirnar frá Austurberlín. En hvorki Heinz eða Jutta hugsuðu út í, að næsta morgun yrðu þau sjálf fréttamatur — á einn eða annan hátt. Hjá hjálparfólki þeirra hinum megin við múrinn hafði vonin breyst í áhyggjur. Þegar vinirnir vestanmeg- in virtu húsið fyrir sér í sjónauka, sáu þeir hóp verkamanna í fylgd með rússneskum hermanni á þakinu yfir sjöttu hæð. Það leit út fyrir að þeir væru að laga skúr eða lítið afdrep úr timbri þar uppi. Bandarískur her- maður við Checkpoint Charlie sagði þeim, að þessi skúr væri eftirlitsstað- ur, þar sem öryggiseftirlitið að aust- anverðu gæti fylgst með múrnum og umhverfi hans. Og það fór ekki milli mála, að ofan af þakinu á sjöttu hæð blöstu neðri þökin í átt að múrnum við. Vinirnir fjórir voru þess alls ekki umkomnir að vara Hoizapfelfjöl- skylduna við, og þegar skuggarnir urðu langir, nálguðust þeir múrinn. Þeirvoru með rúllu með 15 metrum af svartmáluðum, sex millimetra sverum stálvír, og festu annan enda hans við yfirgefinn vörubíl. fullan af skrani. sem stóð á óbyggðri lóð rétt við múrinn. Bíilinn hlaut að vera öruggt akkeri í tengslum Holzapfel- fjölskyldunnar við hinn vestræna hcim. Vinirnir voru, eins og fjölskyldan, svartklæddir frá hvirfli til ilja. Þeir laumuðust eins og skuggar upp að múrnum, þar sem þeir ætluðu að felast. Austurþýsku landamæra verðirnir tóku ekki eftir þeim. Það gerði hins vegar vesturþýskur eftir- litslögregluþjónn, sem rakst á fjór- menningana og skipaði þeim að snauta þaðan. HEINZ OG JUTTA höfðu líka áhyggjur. Klukkan var orðin yfír 21, og þótt tungllaust væri, eins og almanakið hafði boðað, var ennþá bjart. Allt í einu og alveg óvænt skutu landamæraverðirnir fyrir neðan þau af ljósablysum. Það sama endur- tók sig skammt frá og síðan lengra frá og lengra frá — heil röð af svifblys- um, sem svifu örhægt til jarðar. Loks varð þó kyrrt við landamærin. Klukkan 21.30 vöktu þau Gúnther. Svo fóru þau í svarta samfestinga og „laumuskó”, — gamla skíðasokka, sem Jutta hafði saumað svampsóla á. Heinz opnaði gluggann, og þau létu fallast niður á þakið yfír fimmtu hæð. Þau lentu hljóðlaust og hikuðu andartak, en allt var kyrrt. Þá sót- svertu þau andlitin. Heinz benti að bakhlið hússins, í áttina að múrnum. Klukkan var 21.45, og þau voru
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.