Úrval - 01.12.1976, Page 120
118 ÍJRVAL
úr plasti). í efnahagslegum skiln- sömu væru í rauninni ekki lengur
ingi jafngilti þetta því, að þeir hinir meðlimir þjóðfélagsins.
★
KÖTTUR í LANGFERÐ
Þegar Oleinik-fjölskyldan fór í sumarfrí til Svartahafsins fékk
heimiliskötturinn, læða að nafni Tsjapa, að fara með í bílnum. Ekið
var um Oral-héruð, og þegar stansað var til að gista á leiðinni fékk kisa
að hlaupa burt. Á morgnana var hún alltaf mætt aftur og beið við
bílinn þangað til lagt var af stað. En einn morguninn kom hún ekki
aftur og fólkið varð að fara af stað án hennar. Nær ári síðar kom Tsjapa
aftur heim. Þá hafði hún alein ferðast dágóða vegalengd: 255 km.
NÝJAR UPPGÖTVANIR UM STARFSEMI HEILANS
Þótt hvor hlið heilans um sig annist ólíka starfsemi,.drottnar vinstri
helmingurinn ekki eins mikið yfir hinum hægri eins og virst gæti.
Síðustu uppgötvanir sovésku lífeðlisfræði- og lífefnafræðistofnunar-
innar sýna, að hlutar heilans eru miklu háðari hvor öðrum heldur en
menn héldu.
Menn hafa álitið' að hægri helmingur heilans hefði engin áhrif á
talið, en þegar hann er tekinn úr sambandi verður talheyrnin skarpari
og rilraunapersónurnar málgefnari. En þrátt fyrir það, að það verði
auðveldara að skilja orð, þá verður erfiðara að greina hvort um karlrödd
eða kvenrödd er að ræða.
Báðir hlutar heilans hafa einnig ólíku hlutverki að gegna í sambandi
við minnið. Þegar vinstri helmingurinn er tekinn úr sambandi er
erfiðara að muna orð, en þegar hægri helmingurinn er tekinn úr
sambandi er erfiðara að muna myndir.
Ein athyglisverðasta niðurstaða rannsóknanna var, að hinir tveir
hlutar heilans hafa ólík áhrif á tilfinningaástand mannsins. Ef vinstri
helmingurinn er tekinn úr sambandi verða menn glaðir og kátir, en
sama aðgerð við hægri helming heilans framkallaar þunglyndi og
þreytu.
Við eðlilegar aðstæður vinna báðir helmingar heilans að sjálfsögðu
saman. Enda er það ekki vanalegt að menn muni kannski orðið hundur
en geti ekki munað hvernig hundur lítur út.
Læknar og sálfræðingar hafa mikið gagn af því að vita hvernig
heilinn starfar. En nú er einnig vaknaður áhugi á því hjá félagsfræðing-
um svo og tölvuhönnuðum