Úrval - 01.12.1976, Side 122

Úrval - 01.12.1976, Side 122
120 URVAL saman samlagninguna við peninga- kassann í kjörbúðinni með hjálp vasatölvunnar sinnar, eru krakkarnir að reikna út markameðalfjölda í keppnum og heimilisfaðirinn er að reikna út, hve mikið timbur hann þarf 1 nýju veröndina. Meðan stóð á tengingu Apollo- og Soyuzgeimfaranna 1 júlí, báru bandarísku geimfararnir vasatölvu á sér til vara, ef ske kynni, að aðal- tölvukerfið bilaði. Breskir leiðangurs- menn, sem héldu nýlega í leiðangur upp á Everesttind í Himalajafjöllum, höfðu með sér vasatölvu til þess að hjálpa sér til þess að reikna út byrði og laun Sherpa-leiðsögu- og burðar- mannanna. I sumum japönskum bönkum eru hin gömlu, hefðbundnu abacusreiknitæki tekin að víkja fyrir vasatölvum. Jafnvel siglingafræðing- urinn á „Courageous”, skútunni, sem varð sigurvegari í amerísku bikarsiglingakeppninni í fyrra, þakk- ar vasatölvunni sinni það, að honum tókst svo vel að reikna út ákjós- anlegustu siglingaleiðina. Geysilega ör dreifing vasatölvunn- ar hófst í smáum stíl árið 1970. Árið 1974^ keyptu ákafir kaupendur samtals 12 milljón stykki, og í ár mun salan fara fram úr 16 milljón stykkj- um. ,,Það er ekki um að ræða neina sambærilega aukningu í gervallri sögu sölumennskunnar, ” segir Benjamin Rosen í New Yorkborg, en hann er verðbréfasérfræðingur. Þegar fyrstu vasatölvurnar komu fram, kostuðu þær um 400 dollara. Nú kosta litlar vasatölvur 14 dollara 95 cent, og sérfræðingar búast við því, að fyrir árslok verði verð þeirra komið niður fyrir 10 dollara. „Neytendum er veitt sllkt tækifæri til þess að gera góð kaup, að þess eru engin önnur dæmi. ” Nýjasta afbrigði vasatölvunnar, sem er geysilega snjöll og svo lítil, að hægt er að halda henni 1 lófa sér við útreikning, getur gert næstum allt það sem heil rafeindareiknikerfi voru fær um fyrir nokkrum áratug- um, kerfi, sem í voru 17.000 til 18.000 „vacuum tubes”, vógu 30 tonn, voru á stærð við geymsluher- bergi í vörugeymslum og kostuðu hálfa milljón dollara. „Grundvall- arvasatölvan” getur lagt saman, dregið frá, margfaldað og deilt leiftursnöggt og með fullu öryggi. Dýrari afbrigði vasatölvanna sem hafa minnisbanka, geta reiknað út vexti, gjöld og skatta og flugleið flugvéla. Og þar er um að ræða vélar, sem eru 270.000 sinnum minni en fyrirrennarar þeirra, nota 300.000 sinnum minni orku og hafa nokkrum tugum þúsunda sinnum færri hluta. Kjarni þessarar furðulegu vel- gengni er fólginn í örlitlum geim- aldar- „heila” sem er ekki stærri en fingurnögl á ungbarni og ekki dýrari en „gallon” (4 1/2 lítrar) af mjólk. í hverjum „heila” er kristall eða „plata” úr hreinu silikon, en í yfir- borð hennar, sem líkist spegli, eru rist jafngiidi þúsunda ,,transistora”, og eru risturnar svo fíngerðar, að þær verða ekki aðgreindar berum augum. Þessi tækni ber heitið MOS/LSI (metal-odide semiconductor /large- scale integration), og er hið nýjasta á sviði örrafeindafræðinnar. „Innyfl- in”, sem eru sannkallað völundar-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.