Stjörnur - 01.06.1948, Síða 17
- Bréf fm Hollywood -
Á ÞAÐ hefur enginn lagt trúnað
í Hollywood 'að Tyrone Power og
Lana Turner yrðu hjón. Það varð
bara að orða Tyrone við einhverja
á meðan ekki var til fullnustu geng-
ið frá iskilnaði hans og Onnubellu.
Hinu var heldur ekki hægt að
leyna, að þau Lana og Tyrone voru
góðir vinir lengi vel. Fræg er t. d.
heimsókn hennair til myndatöku-
stöðvanna í Mexíkó, þegar verið
var að filma „Sigurvegarann frá
Kastilíu". Lönu var farið að leiðast
að svona langt væri á milli þeirra, því
Ihún sat eftir í Hollywood. Hún tók
sig því upp einn daginn og flaug
suður til Mexíkó, sem er enginn
smáræðis spotti, og kom öllum að
óvörum. Henni var að sjálfsögðu
í fyrstu tekið með kostum og kynj-
um.
En ýmsum þótti þó fara af gam-
anið, þegar frá leið, því þegar fiski-
sagan um komu hennar hafði flogið
— næstum því eins hratt og flug-
vél 'hennar — þyrptist fólk að hvað-
anæva til að sjá hina frægu stjörnu.
„Sigurvegarinn frá Kastilíu“ var
ekki lengur efst á dagskrá, enda
urðu menn gjörsamlega verklausir
í kvikmyndastöðinni á meðan gest-
urinn stóð við, því auðvitað var
„Sigurvegarinn“ pínulítið upptek-
inn af Lönu sinni.
Þetta 'ferðalag var því alldýrt, því
auk þess sem hún tafði fyrir „Sig-
urvegaranum" var beðið eftir henni
í Hollywood. Eina sárabótin var sú,
að þetta varð auðvitað prýðilegasta
auglýsing fyrir kvikmyndafélagið.
Það var sagt að fyrst fyrir alvöru
hafi hlaupið snurða á þráðinn milli
þeirra Lönu og Tyrone, er hann
kom úr Evrópuferð sinni s. 1. haust,
að sjálfsögðu hefur hún frétt hve vel
honum leizt á íslenzku stúlkurnar,
en það mun þó ekki hafa orðið að
vinslitum, heldur hitt, að Tyrone
hafði áður borið því við að hann
fengi ekki skilnað 'hjá Onnubellu
og gæti því ekki gifts Lönu, en
þegar það var svo allt klappað og
klárt, sýndi hann engan áhuga á
hjónabandstali. En þetta er nú kann-
ski orðum aukið. Ovíst hvort Lana
er svo sólgin í gi'ftingar, sem óvil-
hallir menn vilja vera láta.
En nú er Tyrone frí og frjáls,
sem fuglinn, enda nýtur hann þess
í ríkum mæli, 'hann er um allar jarð-
STJÖRNUR T 7