Stjörnur - 01.06.1948, Side 34

Stjörnur - 01.06.1948, Side 34
og hann skoðaði ekki hug sinn um að nota sér það. Hann gaf henni ó- spart undir fótinn og svaraði ástar- játningum hennar í sömu mynnt. En hann lést vera afbrýðisamur vegna viðskipta hennar og Sam Jewells. Lilah hló bara. — Vertu ekki að hugsa um Sam, sagði hón, — Það er bókstaflega ekkert okkar á milli. Eg kem 'bara stundum í klúbbinn til hans út ór leiðindum. Stundum höfum við farið saman í ’smá túra á bátnum hans, en nú er því ekki lengur að heilsa. Eg veit ekki hvað er orðið af þeim skrjóð. O, elsku Johnny, segðu að þér þyki pínu- agnarlítið vænt um mig. Ó, segðu að þú elskir mig, sárbað hún. — Við gætum orðið svo hamingjusöm sam- an. Eg hef nóga peninga, Johnny. Við gætum farið I'angt, langt burt frá Gusty og öllum þessum leiðindum hér. — Með hans peninga, skaut Johnny inn í. — Nei. Með mína peninga, sagði hún. — Ósvikið gull, Johnny. Nú ert þú forvitinn, elskan, ertu það ekki ? Johnny lét sem þetta snerti hann ekki. Hún horfði á hann og hélt svo áfram: — Eg veit ekki hvort mér er ó- hætt að treysta þér. Eg er ekki viss um að þú elskir mig. Hún hallaði sér að honum og hann sagði við sjálfan sig: Eg kyssi hana, ég geri allt sem nauðsyn kref- ur, til þess að komast að því hvar gullið er falið. En í sömu andrá var hurðinni að baki þeirra hrundið-upp og Gusty stóð í dyrunum sótsvartur í framan af bræði: — Ut héðan! öskraði hann. Johnny sleppti tökum á Lilah. Hún var fljótari að átta sig. Hún snéri sér að Gusty — um leið og hún gaf Johnny leynilegt merki — og sagði: — Angel skipstjóri þóttist eiga hingað erindi. Segðu honum að fara, Gusty. Gusty rauk umsvifalausit á Johnny og reiddi til höggs, en Johnny sá við því og greip í handlegg honum, svo hann riðaði sjálfur og féll aftur- ábak í mjúkan sóffa. Johnny hélt honum þar í járngreipum. Þarna lá hann hjálparvana og svo hlægilega lítill og feitur. Lilah horfði á, og augu hennar gátu ekki leynt því, hve mjög hún fyrirleit mann sinn, en dáðist að sigurvegaranum. Gusty öskraði framan í Johnny: — Ég hata þig. Þú hafðir mig einu sinni undir og barðir mig, þeg- ar við vorum litlir. Ég hef aldrei fyrirgefið þér það. Ég hef látist vera vinur þinn, en ég hef alltaf hatað þig. Farðu! Þú ert hér með rekinn úr minni þjónustu. Johnny yfirgaf þau hjónin. Og lokaði á eftir sér hurðinni. Hann heyrði Lilah segja: 34 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.