Stjörnur - 01.06.1948, Síða 36

Stjörnur - 01.06.1948, Síða 36
hinum enda herbergisins. — Þér megið fara, sagði hann. — Þessa leið. Dyrnar vissu út að svölum, er lágu fram með allri bakhlið húss- irns. Það lá við hafsvík, og undir gein myrkur sjórinn, langt niðri. Hana hryflti við, er Sam tók undir hönd henni og ætlaði að leiða hana eftir mjóum 'svölunum. Hún hljóð- aði upp yfir sig og sleit sig lausa og þaut inn í skrifstofuna aftur, og áður en Sam hafði lunnist tími til að skjóta fæti milli stafs og hurðar, hafði hún læst hann úti. Hún þaut fram í ganginn beint í fangið á Johnny, sem stóð þar í þjarki við annan fylgdarmann hennar. — Sam er ekki hér, heyrði hún manninn segja. — Eg ætla að athuga það sjálfur, sagði Johnny og ætlaði að víkja manninum úr vegi. En hann reiddi hnefann tii höggs og hæfði Johnny undir hökuna. En Johnny var fljótur að átta sig. Hann snérist til varnar af trylltum móði, og kom strax góðu höggi á mótstöðumanninn. Hann missti jafn- vægið og gafst aldrei færi á að hefja vörn, sem að gagni kæmi. Loks tókst honum að ná í skammbyssu sína, en Johnny sá við því og spark- aði í hönd hans svo skotið reið af og 'hæfði dólginn sjálfan í aðra höndina. Hann hljóðaði upp af sárs- auka og engdist sundur og saman af kvölum. En á meðan á þessu stóð hafði hinn fylgdarmaðurinn ráðist á Paul- ette. En hún snérist til varnar, reif hann og beit. Hann hafði ekki ráð- ið niðurlögum hennar, er Johnny kom henni til hjálpar og gaf mann- inum svo vel útilátið högg, að hann var úr sögunni. Þau yfirgáfu síðan vígvöllinn og héldu niður í strætið. Þar var Cele- stial fyrir með 'bíl sinn og þau óku með fullum hraða burt. — Nú liggur þetta nokkuð ljóst fyrir, sagði Jdhnny, er þau voru kom- in inn í bílinn. — Nú veit ég nóg til þess, að við getum látið lögregl- una sjá um afganginn. Það er bara eitt, sem ég verð að fá að vita fyrst, og það er hvar þeir geyma gullið. ★ Það var aðeins ein manneskja, sem gat sagt honurn hvar gullið var fólgið. Það var Lilah. Hann varð að hitta hana og fá að tala við hana í næði. Best væri, ef hann gæti fengið hana til að koma um borð til hans. Hann hringdi til hennar. Hún viidi óð og uppvæg hitta hann. Hún ók bíl sínum strax niður að höfninni •til hans. Þau læstu að sér skipstjóra- klefanum hans og ræddust þar við. — Það er allt búið milli okkar Gusty, sagði hún. — Héðan í frá er mér enginn maður neitt nema þú. Kysstu mig, ástin mín. Sýndu mér að þú elskir mig. — Segðu mér hvar gullið er, sagði hann. — Ef þú vísar mér veg þang- 36 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar: 4. hefti (01.06.1948)
https://timarit.is/issue/435800

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

4. hefti (01.06.1948)

Gongd: