Stjörnur - 01.06.1948, Síða 41

Stjörnur - 01.06.1948, Síða 41
inni „Hefndin“, myndatökumaður- inn hét Lucien Ballard. Hann er mjög slyngur í sinni grein og auk þess hið mesta kvennagull. ÞaS var því ekki að undra þótt hinni fögru lávarSarfrú léki forvitni á að hafa af honum sannar sagnir. Hún náði því tali af Joan Bennett og spurði hana spjörunum úr um Lucien Ball- ard, en hann hafði tekið myndir í kvikmynd, sem hún ha-fði leikið í fyrir skömmu. Joan Bennett átti ekki til í eigu sinni nógu sterk orð til að lýsa að- dáun sinni á snilli Lucien Ballard, hugmyndaríki hans — og þó fyrst og fremst persónulegum yndisleik. „Þú munt verða hei'lluð a'f >honum“, spáði Joan Bennett fyrir stallsystur sinni. Og hún reyndist meir en sannspá. Lucien Ballard var að ýmsu ó- venjulegur maður. Hann var mjög eftirsóttur myndatökumaður. Þegar hann var í Hollywood gekk hann upp í starfi sínu af liífi og sál og var sannnefndur galdramaður í list- grein sinni. Hann batt sig aldrei með -samningum nema skamma stund í senn. Þegar hann hafði unn- ið sér inn nokkur þúsund dollara, tók hann saman pjönkur sínar og keypti farseðil trl Mexíkó, þar vissi hann um lítið og friÖsælt fjallalþorp þar sem gott var að búa. Hann eyddi tíma sínum við að mála landslagið og ekki hvað sízt hina sérkennilegu íbúa þorpsins. Og þarna undi hann glaður, unz pyngjan var tóm og hann neyddist til að hverfa aftur til kvikmyndaborgarinnar, þar sem honum var ætíð tekið tveim hönd- um. Það var meir en lítið ævintýra- legt við þennan mann, enda var hann draumur al'lra kvenna. Meðal þeirra var ung blaðakona, sem átti viðtal við ihann og varð svo yfir sig ástfangin, að Lucien Ballard komst ekki hjá því að giftast henni, enda hafði bún margt til síns ágætis, var meðal annars prýðisfalleg. Þau eignuðust tvö börn, en skildu svo samvistum. En fráskildir karlmenn virðast hafa enn meira aðdráttarafl og rómantíska gloríu í Hollywood en jafnvel ihinir óreyndu og ógiftu. Alk þetta hafði Merle Oberon fengið að vita, er þau sáust í fyrsta sinn. Hún var í klæöaherbergi sínu og var - að líta í spegilinn í allra síðasta sinn, er létt var klappað á dyrnar. Það átti að fara að taka fyrstu „senurnar“ í „Hefndinni“, og það var beðiÖ eftir Merle Oberon. Þarna sáust þau í fyrsta sinn. Bæði forvitin, bæði undrandi. Hann var hærri og grennri en hún hafði gert sér í hugarlund. Hún stóð þarna í fegursta skrúði. „Þetta er það feg- ursta, sem ég hef augum litið“, varð honum ósjálfrátt að orði. Lucien Ballard tók svo glæsilegar myndir af Merle Oberon, að annað- eins hafÖi varla sézt áður. Það var ekki um það að villast að hann lagði STJÖRNUR 41

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.