Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Page 75

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Page 75
að endurskapa þessi stöðluðu gildi heldur að skapa nýtt. Sköpunin er byggð á tilvistarlegri glímu við tungumálið, glímu sem er merkt leit og tilraun til að höndla merkingu gegnum tákn, goðsögur og frummyndir. Hin nýja sýn lesandans á veruleikann opnast ekki nema að formið sé endurskoðað og umskapað og nái þar með að gefa merkingarleit mannsins nýtt gildi. SAMBANDIÐ VIÐ LESANDANN Skrif og ummæli Matthíasar mótast skiljanlega af hlutverki hans sem verjanda og boðbera táknsæisins en þau opna engu að síður dyr að betri skilningi á því hvað greinir í raun táknsæi og raunsæi að, eða öllu heldur hvað gerir það ekki. Það má því segja að það sé ekki formið sjálft sem greinir stefnurnar í sundur heldur afstaða höfundanna til þess. Hinn raunsæislegi þáttur í byggingu táknsæju verkanna vex beint út úr nýraunsæinu og þó að sáttmálinn við lesandann, sem lá táknheimi og merkingarmynd nýraunsæju verkanna til grundvallar, sé rofinn á margvíslegan hátt hefur það hins vegar ekki í för með sér að raunsæisforminu sé varpað fyrir róða. Þetta er mjög áberandi einkenni á ýmsum verkum sem standa á mörkum nýraunsæis og táknsæis, svo sem Vinur vors og blóma (1983) eftir Anton Helga Jónsson, Sólin og skugginn (1981) eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur og fleiri verkum. Svipur þeirra með nýraunsæinu er mjög áberandi en ýmsir nýir þættir í formgerð og stíl halda innreið sína og ljá verkunum nýjan blæ sem þó getur ekki talist fullkomiega táknsær. Táknsæ geta verkin í raun fyrst talist þegar veruleikaskilningur þeirra hættir að fela í sér að hin "konkreta" raunvera sé ein raunveruleg. Táknsæið sér veruleikann fremur sem skapaðan veruleika, sem afmarkaðan táknheim í verkunum, og því verður verkið sjálft í raun að veruleika eða veruleikaígildi. Heimurinn sem tákn verksins vísa til er ekki til nema í verkinu sjálfu eða öllu heldur í tungumálinu, í táknmiðakeðjunni. Þessi útvíkkun veruleikahugtaksins felur samt ekki í sér að lesandanum sé gert 73

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.