Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Síða 79
hann. Þau stíleinkenui sem finna má í Djöflaeyjunni og miða að
því að fanga lesandann og halda áhuga hans í krafti skemmtunar,
ýkjukenndra frásagna og hálf gróteskra persónuleika eru
torfundin í Einkamálum Stefanfu, enda virðist höfundurinn ekki
líta á það sem hlutverk sitt.
Sé Þar sem djöflaeyjan rís athuguð út frá sömu forsendum og
Einkamál Stefaníu sést að táknvinnsla hennar er í
grundvallaratriðum sú sama og í Einkamálunum. Nafnhverft
samband tákna innan merkingarkjarnanna leiðir af sér
veruleikablekkingu sem byggð er á raðkvæmum venslum
táknanna. Rökrétt samband atburða í tíma, en einkum þó í rúmi,
gerir ytri formgerð Djöflaeyjunnar að raunsærri frásögn þar sem
táknmyndirnar verða merkingarbærar út frá því nafnhverfa
samhengi sem þær standa í. Tengsl merkingarkjarna og
merkingarauka eru á hinn bóginn frábrugðin þeim tengslum sem
einkenna Einkamálin, því táknmynd hins nafnhverfa
merkingarkjarna leiðir af sér myndhverfa táknmynd í
merkingaraukanum. Það þýðir að á vissum stöðum í verkinu þar
sem dregin eru fram orð og viðburðir með hliðstæðum,
endurtekningum eða öðrum áherslum, er opnuð leið til víðari
skírskotunar. Hin myndhverfa táknmynd merkingaraukans
tengir við nafnhverft samhengið, eða einstaka þætti innan þess,
atriði sem ekki eru hlutar af því eða tengjast því í gegn um
orsakasamhengi. Á grundvelli þessa myndhverfa sambands
táknmynda merkingarkjarna og merkingarauka birtist merking
sem er all frábrugðin þeirri sem lesa má út úr hinu nafnhverfa
yfirborði og myndar það sem er táknsætt í textanum. Dæmi um
slíkt er atriði sem brugðið er upp þegar í fýrsta kafla verksins eftir
að lesandinn hefur verið leiddur inn í miðpunkt þess, Gamla
húsið, og virðist vera eins konar samantekt á sögu hússins og
íbúanna. Gildi frásagnarinnar sem fyrirboða er að sjálfsögðu
mikið þar sem hún er staðsett í fyrsta kafla verksins og reyndar
vísar hún ekki aðeins á framgang viðburða í Djöflaeyjunni
heldur langt út fyrir hana, allt til enda Gulleyjunnar og áfram til
nýjustu bókar Einars Fyrirheitna landsins. Þannig verður þessi
litla frásögn til að opna lesandanum einskonar dyr að herbergjum
77