Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 83

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 83
tilhneiging margra listaverka nútímans sé eitt af einkennum póstmóderismans og hana megi rekja til þess að hin móderníska sjálfsvera, sem áður stóð að baki listsköpun og gerði ráð fyrir að hægt væri að túlka hið innra í hinu ytra, hafi verið jöðruð og eftir standi yfirborð þessarar sjálfsveru, sem þar af leiðir megni aðeins að skapa verk þar sem dýptin er skyggð af yfirborðinu 12. Þessi upplausn sjálfsverunnar hafi um leið í för með sér að tíminn og skynjun hans víki fyrir rúmi og rúmskynjun, þannig víki öll tilfinning fyrir sögulegu samhengi stflbrigða fortíðarinnar, sem og tilfinning fyrir persónulegum stfl, og þess í stað grípur hin afmiðjaða sjálfsvera til einhverra af þeim fjölmörgu stílum sem listasagan hefur látið henni í té. Listsköpunin verður því að tilviljanakenndri ránsferð um fortíðina, sem nú er orðin að eins konar safni af ímyndun; eftirmyndum frummynda sem enginn veit svo gjörla hverjar eru. Samkvæmt Jameson byggist því nálgun sögunnar í listaverkum samtímans á því að henni er mætt sem ímynd þess veruleika sem var. Þessi ímyndasköpun birtist í tilhneigingunni til að líta á ákveðið tímabil sem texta, sem síðan er notaður sem ígildi sögunnar. Tímabilið birtist þá í formi þeirra stfltegunda sem einkenndu það og þessar stfltegundir framkalla ímynd sögunnar. Þegar litið er til Djöflaeyjunnar sést að strangt til tekið er þetta ferli í verkinu framandi, þar sem í því er ekki verið að vinna með stíleinkenni eða tilvitnanir í stfla sem tilheyra fortíðinni, heldur er fremur verið að reisa sjálfstæðan söguheim á rústum hinnar jöðruðu fortíðar. Kenning Jamesons skýrir út hvers vegna slíkt er yfirleitt mögulegt, hún tengir þetta ferli við þróun kapítalismans og einkenni á vöruframleiðslu síðustu áratuga, að þessi einkenni eru sögulega skilyrt. Hugmyndir og sýnir Jamesons um þetta efni byggja á hinu áhrifaríka riti Ernst Mandels Siðkapítalisminn og því megin þema þess að í þróun kapítalismans megi greina þrjú megin stig sem ætíð eru díalektískar útfærslur stigsins á undan. Þessi stig eru: markaðskapítalisminn, einokunarstigið eða heimsvaldastefnustigið og stig fjölþjóðakapítalismans sem er ríkjandi nú á dögum. Ákvarðandi fyrir þessa þróun er notkun véla 81

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.