Upp í vindinn - 01.05.1996, Qupperneq 7
V IÐTAL
eða um 340 þúsund manns. Jafnframt er hann
vagga íslenskrar flugstarfsemi í þeim skilningi
að flestir atvinnuflugmenn okkar hafa fengið
þar flugþjálfun að meira eða minna leyti. Þá
hefur hann gegnt mikilvægu hlutverki sem
varaflugvöllur fyrir Keflavíkurflugvöll sem
Akureyrarflugvöllur hefur raunar líka verið og
nú hefur verið byggður fullkominn varaflug-
völlur á Egilsstöðum. Þá hefur Reykjavíkur-
flugvöllur til skamms tíma verið eini flugvöll-
urinn á landinu þar sem alhliða þjónusta hefur
verið veitt fyrir einkaflugvélar í millilandaflugi,
þ.m.t. ferjuflugi.
Hvar væri hugsanlegt að staðsetja
kennslu- og ferjuflug og innan hvaða
radíusar frá höfuðborgarsvæðinu?
Erfitt er að sjá hvert flytja ætti kennslu-
flugið. Enginn fysilegur staður fyrir sérstakan
kennsluflugvöll er á höfuðborgarsvæðinu.
Enda þótt svo væri myndi hann kosta hundr-
uð milljóna sem greiðast yrðu af skattfé borg-
aranna þar sem flugskólarnir gætu ekki borið
slíkan kostnað. Mér finnst alveg eins koma til
greina að snúa spurningunni við og spyrja:
hvers vegna vilja menn flytja kennsluflugið frá
Reykjavíkurflugvelli? Mjög fá slys hafa orðið
vegna þessa flugs á flugvellinum eða við hann í
hálfrar aldar sögu hans. Nokkur hávaði stafar
af kennslufluginu en ýmsar ráðstafanir hafa
verið gerðar til að draga úr honum og þar
kemur fleira til greina. Millilandaflug einka-
flugvéla er mjög lítill hluti af heildarumferð
um flugvöllinn eða innan við 5% af lending-
um og flugtökum. Ymsir erfiðleikar eru á því
að banna slíkt flug meðan Reykjavíkurflug-
völlur er skráður alþjóðlegur flugvöllur. Hins
vegar er hugsanlegt að takmarka það að
einhverju leyti, t.d. með því að útiloka hávaða-
samar flugvélar. Ef flytja ætti þetta flug af
Reykjavíkurflugvelli er ekld annan kost að sjá
en Keflavíkurflugvöll.
Hvert er framtíðarskipulag
flugvallarmála í Reykjavík og er
hugsanlegt að hafa flugvöllinn í
Vatnsmýrinni um ókomna tíð?
Ekki verður séð að annar betri kostur sé fyrir
hendi en að endurbyggja Reykjavíkurflugvöll,
þannig að hann geti áfram gegnt því hlutverki
sem hann hefur í dag. Þó er hugsanlegt að setja
einhverjar takmarkanir varðandi þær tegundir
flugvéla sem þar mega lenda. Jafnframt kemur
til greina að setja frekari reglur um það
hvernig haga skuli flugi til að draga úr
hávaðamengun og áhættu fyrir byggðina á
höfuðborgarsvæðinu.
Frá tæknilegu sjónarmiði kemur ekkert í
veg fyrir að flugvöllurinn geti verið á
núverandi stað til frambúðar. Tæknilegar
framfarir í gerð flugvéla hafa einmitt gert
flugvelli í grennd við þéttbýli fysilegri en áður
og frá samgöngulegu sjónarmiði, hvort sem
við horfum til landsbyggðarinnar eða innri
mála höfuðborgarinnar, hefur það alla kosti að
flugvöllurinn verði áfram á sama stað og nú.
Hvernig verður fyrirhuguð flugstöð og
hver verður megintilgangur hennar?
Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvenær
unnt verði að ráðast í byggingu flugstöðvar á
Reykjavíkurflugvelli. Hins vegar mun undir-
búningur að slíkri framkvæmd fara fram í
tengslum við endurbyggingu flugbrautanna á
Reykjavíkurflugvelli.
Megintilgangurinn er auðvitað sá að allir
þessir 340 þúsund farþegar, sem nú fara árlega
um flugvöllinn, fari um sömu flugstöðina. Það
veldur óneitanlega ruglingi oft á tíðum að
flugrekendurnir skuli ekki hafa afgreiðslu á
sama staðnum. Þó ég kunni vel við aðstöðuna
hjá Flugleiðum, viðurkenni ég að hún er orðin
gömul og lúin og við sjáum fram á það að
flugfarþegum muni fjölga ef við náum þeim
árangri með fjölgun erlendra ferðamanna sem
við stefnum að. Þess vegna tel ég óhjákvæmi-
legt að ráðast í byggingu nýrrar flugstöðvar. Ég
tel að vangaveltur um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar einhvern tíma þegar kemur fram á
næstu öld séu ekki efnislegt innlegg í þetta
mál. Mannsaldur .er talinn þrjátíu ár og ætli
það hafi nokkurn tilgang að hugsa lengra fram
þegar við erum að velta fyrir okkur hvernig
þjónustu við flugfarþega verði best fyrir komið
á Reykjavíkurflugvelli.
GLER
GERÐAVOTTUN
Merki sem tryggir gæðagler
„Glerborgarglerborgarsig"
GLERBORG SÍMI 565 0000
...upp í vindinn
7