Upp í vindinn


Upp í vindinn - 01.05.1996, Page 26

Upp í vindinn - 01.05.1996, Page 26
L U K Maplnfo Kerfi Kort Upplýsingar Skráning W\ \ \ \\ ' - j . - Samþykktar sumarhúsalóðir í sveitarfélagi - □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ Númei Heiti sveitaifélags Samþykktai lóðii ] ♦ 1606 Kjósarhreppur 151 - 2300 Grindavík 1 3501 H valf jarðarstrandarhr. 187 3503 I nnri-Akraneshreppur 1 3505 Andakílshreppur 17 3506 Skorradalshreppur 534 3508 R eykholtsdalshreppur 15 3509 Hálsahreppur 69 3601 Hvítársíðuhreppur 108 3602 Þverárhlíðarhreppur 42 3605 Borgarhreppur 279 3607 Álftaneshreppur 62 □ □ 3609 Borgarbyggð 89 3701 | | .c 1 66 4- ■II 1 4.mynd - Frá upplýsingahlutanum getur notandinn fengið upplýsingar úr gagnagrunni. Úrvinnsla gagna Undirbúningsvinna við kort í LUK Á þessu stigi eru upplýsingar fengnar úr gagnasafninu, ýmist texti eða tölur, og birtast upplýsingarnar á sama hátt og þær eru skráðar. Á síðari stigum er gert ráð fýrir að hægt verði að vinna tölfræðilegar upplýsingar og birta þær t.d. í súlu- eða kökuriti. Tæknileg hönnun og útfærsla Eftirfarandi mynd sýnir tengslin milli lag- anna þriggja þ.e. miðlæga gagnasafnsins, tæknilegrar virkni kerfisins og notandans. Gagnasafn í Oracle Gagnasafnið er hannað af gagnasafnsfræð- ingi og gagnasafnskerfið Access notað á meðan á hönnun stendur. Gögnin verða vistuð í mið- lægum Oracle gagnagrunni. "Datalink" verður notað til þess að tengja Oracle gögnin við kortagögnin í Maplnfo. „Datalink” er forrit frá Maplnfo hannað sérstaklega sem samskiptaliður milli gagna- safna s.s. Oracle og Maplnfo. Tæknileg uppsetning Tæknileg uppsetning kerfisins er á ábyrgð kerfisstjóra og hann sér jafnframt um að gera nauðsynlegar prófanir með „Datalink”. LUK sérfræðingur ber ábyrgð á vinnslu og nauðsynlegum undirbúningi LUK korta- grunna s.s. hreinsun LUK gagna, leiðrétting- um og grunntengingum við gagnagrunn í Maplnfo. Hann er jafnframt verkefnisstjóri og tengiliður milli kerfisstjóra og notanda. Landsskipulagsstig og LUK Að lokum vil ég ítreka að sumarbústaða- verkefnið er fyrsta gagnasafnið á stofnuninni sem verður gert miðlægt í LUK og ber að líta á það sem mótunarverkefni fyrir frekari vinnu með gögn Skipulags ríkisins á landsvísu. Á Skipulaginu er unnið að undirbúningi landsskipulagsstigs þar sem stefnt er að sam- ræmingu ýmissa skipulagsáætlana (s.s. vegaá- ætlunar, orkuáætlunar o.s.frv.) á landsvísu og samhæfingu við lægri skipulagsstig (svæðis- skipulag og aðalskipulag). Rétt er að benda á að verkefnið sem fjallað hefur verið um hér að ofan, tekur til landsins alls og myndar því hluta af þeirri yfirsýn sem landsskipulagsstigi er ætlað að skapa. Ljóst er að í tengslum við sumarbústaða- verkefnið er nauðsynlegt að safna ýmsum landfræðilegum upplýsingum á landsvísu. Má þar nefna helstu ferðamannastaði, vegi, línu- lagnir og jarðhitasvæði og þurfa kort og önnur gögn að vera aðgengileg í LUK. Jafnframt er nauðsynlegt að taka eitt skref í einu og gína ekki yfir of miklu í einu. Samstarf og gagnaskipti Mikil þörf er á að byggja upp almenna lcortagrunna í LUK og helst þyrfti að vera hægt að kaupa einfalda grunna s.s. póstnúm- eraþekjur, staðsetningu sveitabæja o.fl.. Mark- miðið er að geta með Iitlum tilkostnaði tengt mismunandi gögn og upplýsingar og samnýta þannig upplýsingar með öðrum, svo sem Hagstofu Islands, Fasteignamati ríkisins og fleirum. Grundvallaratriði er þó að gögn séu skráð þannig að hægt sé að tengja þau saman. Staðan í dag er hins vegar sú að flestir eru að vinna eigin grunna til þess að geta unnið með LUK. Því fýlgir mikil vinna, kostnaður og oft á tíðum tvíverknaður þar sem margir eru að gera svipaða hluti. Framtíðarsýn LUK á framtíð íýrir sér og margt mun breytast í starfi sveitarstjórna, fýrirtækja, fjöl- miðla og stofnana þegar þessi kerfi ná út- breiðslu. Hver vill ekki geta séð t.d. upplýsing- ar um mannfjölda á korti? Gott dæmi um LUK er starfsemi neyðarlín- unnar nýju sem byggist á sérhönnuðu LUK sem mun koma landsmönnum öllum til góða. Mikilvægt er að aðilar reyni að vinna saman með heildarhagsmuni að leiðarljósi. I því sam- hengi vil ég benda á samtökin LlSU þ.e. sam- tök um samræmd landfræðileg upplýsingakerfi á Islandi. Þau eru vettvangur samstarfs á sviði landfræðilegra upplýsingakerfa og eitt helsta markmið þeirra er að efla samstarf aðila með landfræðileg gögn. Að loktim vill greinarhöfundur taka fram að í greininni er verið að þýða, túlka og staðfæra ýmis orð og hugtök sem í mörgum tilvikum má gera á annan hátt. Ábendingar eru því vel þegnar og hlutaðeigandi beðnir að snúa sér til Skipulags ríkisins. Unnið úr John J. Donovan, 1994, Business Re-engineering with Information Technology, Prentice Hall, London. Maplnfo Version 3.0 for Windows, Reference- and User's Guide, Maplnfo Corporation,Troy, New York. Maplnfo, SQL DataLink 1.1, Client/Server Conn- ectivity Module for ORACLE and SYBASE, Maplnfo Corporation,Troy, New York. Scholten H.J., M.J.C. de Lepper (1995). An In- troduction to geographical information systems. In "The Added value of Geographical Information Systems in Public and Environmental Health"; ed- ited by Marion JC de Lepper, Henk J Scholten and Richard M; Stern, Kluwer Academic Publishers, Dordrecth/Boston/London 1995. AronoffStan (1989). Geographic Information Sy- stems: A Management Perspective. WDL Publications, Ottawa. Scholten H.J., Padding P. (1990). Working with GIS in a policy environment. In "Environment and Planning B: planning and design”. 26 ...upp í vindinn

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.