Upp í vindinn - 01.05.1996, Qupperneq 24
L U K
Landíræðileg upplýsingakerfi
(LUK) og sumarbústaðaskráning
í LUK á Skipulagi ríkisins
I grein þessari verður fjallað um notkun LUK á Skipulagi ríkis-
ins og gerð grein fyrir fyrsta miðlæga LUK gagnasafninu á stofn-
uninni, uppbyggingu þess og mótun. Jafnframt er að finna
nokkrar útskýringar og umræðu um helstu þætti sem hafa áhrif á
vinnuferli innan stofnana allt frá gögnum til gagnasafna, gerð
viðfanga (forrita) að virkni upplýsingakerfanna í heild. Lykilat-
riði er að stjórnendur geri sér fulla grein fyrir því hvernig ferlið
virkar.
Hvað er LUK og hver notar það?
Þegar sérfræðingar sem vinna með LUK eru beðnir að útskýra það
(kerfið) í starfi sínu eru svörin sem gefin eru engan veginn einhlít. Það
lýsir einungis fjölbreytileika og ólíkum möguleikum kerfanna.
Eftirfarandi eru almennar skilgreiningar og atriði sem vert er að hafa
í huga þegar fjallað er um LUK:
Landfræðileg upplýsingakerfi (á ensku Geographic Information Sy-
stem, GIS) eru gagnasöfn og hugbúnaður sem geyma og nota stað-
bundnar (hnitbundnar) upplýsingar. Hugbúnaður kerfisins tengir
myndræn gögn við önnur gögn t.d. töflugögn í gagnasafni.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að kaup á LUK hugbúnaði eru
aðeins fyrsta skrefið á löngu ferli við að byggja upp stafrænt land-
fræðilegt gagnasafn. Kerfið sjálft er eins og áður er getið eingöngu
tæki til þess að varðveita og vinna þau landfræðilegu gögn (upplýs-
ingar) sem hver aðili fyrir sig metur að skipti máli í viðkomandi
gagnasafni.
LUK er hægt að nota til þess að vinna landfræðilegar greiningar af
ýmsu tagi, sumir leggja megináherslu á kortahlutann, aðrir gagna-
safnið að baki, enn aðrir ýmiss konar greiningarmöguleika s.s. halla-
og skuggagreiningar á landslagi, landlíkön, yfirlagsgreiningar
(overlay) og svo mætti Iengi telja.
Eitt er sameiginlegt öllum sem vinna með LUK en það er að þau
vinna með landfræðilegar upplýsingar á stafrænu formi og nota
kerfið til þess að miðla upplýsingunum á korti eða landlíkani.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að firnin öll eru til af landfræði-
legum gögnum s.s. um mannfjöldatölur, atvinnuþátttöku o.s.frv.
en þau verða ekki LUK gögn fyrr en búið er að tengja þau land-
fræðilegri staðsetningu s.s. fólksfjölda eða atvinnuþátttöku í sveitar-
félagi eða bæjum.
I tölvutímaritum er æ meira um að þessi kerfi séu kynnt sem verk-
færi til markaðsrannsókna.
LUK er hluti af heild - ,,LUK húsið”
Algengt er að alltof mikil áhersla sé lögð á tæknivinnuna við LUK
sem á sér eðlilegar skýringar þar sem mörg kerfanna eru viðamikil, öfl-
ug og flókin.
Mikilvægt er því að aðilar sem hyggjast kaupa LUK byrji á að skil-
greina þarfir, efnahag og mannafla, að því loknu er hægt að kaupa kerfi
sem hentar best viðkomandi starfsemi.
Bergljót S. Einarsdéttir er arkitekt á Skipu-
lagi ríkisins og sér um uppbyggingu og mótun
landfræðilegra upplýsingakerfa ástofnuninni.
Lokapróf frá arkitektadeild Tækniháskóla
Noregs í Þrándheimi árið 1982. Kennararétt-
indi fyrir arkitekta og verkfræðinga frá upp-
eldisfræðiskorTækniháskóla Noregs i Þránd-
lieimi árið 1983. Stundar fjarnám í land-
fræðilegum upplýsingakerfum í gegnum fjar-
kennslumenntanetið UNIGIS (áður InterGIS)
við Frjálsa háskólann í Amsterdam.
Til er líking þar sem upplýsingakerfi er líkt við múrsteinshús, kallað
„The GIS House”samanber 1. mynd.
Þakið táknar KERFIN og
VERKEFNIN eitt af þeim
gæti t.d. verið sumar-
bústaðaverkefnið sem
fjallað er um síðar í
greininni.
Múrsteinar eru
GAGNASÖFN.
Sementið er VIÐFÖNG.
Grunnurinn táknar
GÖGNIN þar á meðal eru
gögn um
sumarbústaðamál.
l.mynd - LUKhúsið
En til þess að LUK húsið verði starfhæft þarf að taka tillit til margra
þátta, á ensku kallað „The OPA FIT Concept” en OPA FIT er
skammstöfun á „Organisation, People, Agreements, Finances, In-
formation, Technology” samanber eftirfarandi texta.
Hver þáttur fyrir sig er mikilvægur og með þessu er verið að leggja
áherslu á að LUK er hluti af heild.
Stofnunin: Skilgreining ábyrgðar og verkaskiptingar þarf að vera
skýr. Stofnunin ber ábyrgð á því að kerfin virki.
FÓIkíð: Starfsmenn þurfa að fá nauðsynlega þjálfun til þess að geta
nýtt sér nýja tækni (LUK, Oracle....) jafnframt því þarf að leggja áherslu
á samvinnu milli hlutaðeigandi aðila. Skilgreina þarf hvaða þekkingu
vantar og hvernig hægt er að afla hennar.
Samkomulag og samningar: Staðlaðar skilgreiningar á því hvernig
framkvæma á verkefni með notkun þeirrar tækni sem í boði er innan
stofnunarinnar ásamt samningum við ráðgjafa utan stofnunarinnar.
Fjármál: Kostnaðaráætlanir sem taka tillit til og gera kröfur um
aukna hagkvæmni og vinnuhagræðingu fyrir starfsfólk.
24
... upp í vindinn