Upp í vindinn


Upp í vindinn - 01.05.1996, Blaðsíða 13

Upp í vindinn - 01.05.1996, Blaðsíða 13
SENDIRÁÐ í BERLÍN Þó að samkeppnirnar um sendiráðsbyggingarnar sjálfar séu ekki haldnar sameiginlega af Norðurlöndunum, eru þær í nánu samstarfi þjóðanna á milli og eru haldnar samtímis í löndunum. Danir, Svíar og Norðmenn eru með lokaða samkeppni að undangengnu forvali, Finnar og Islendingar, eins og áður sagði, halda opnar samkeppnir. Verkefni keppenda er ekki einfalt þar sem leitað er að sjálfstæðri og hagkvæmri byggingu sem dregur fram íslensk einkenni og hæfir þeirri starfsemi sem þar mun fara fram en fellur jafnframt vel að heildarskipulagi svæðisins. Dómnefndarstörf munu að hluta til fara fram hér á landi og að hluta til í Berlín. Dómnefndin mun velja 5 tillögur sem til greina koma til verðlauna eða innkaupa. Þær tillögur sem valdar verða, verða síðan skoðaðar nánar af dómnefnd og ráðgjöfum hennar á samnorrænum dómnefndarfundi sem haldinn verður í Berlín. Skarphéðinn Berg Steinarsson, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu er formaður dómnefndar. Með honum í nefndinni sitja Sigríður Sigurðar- dóttir, arkitekt Framkvæmdasýslu ríkisins og Sigurður Einarsson, arkitekt FAÍ. Áætlað er að byggingaframkvæmdir hefjist í desember á þessu ári. Þá verður fýrsta skóflustungan tekin, með þeim fyrirvara að öll skilyrði fyrir byggingarleyfi hafi verið fengin. 011 stjórnun og samræming bæði hvað varðar hönnun og framkvæmdir á sameiginlegu byggingunni og á sendiráðunum fimm verður stjórnað af einum aðila, þ.e. Statens Fastighetsverk, systrastofnun Framkvæmdasýslu ríkisins í Svíþjóð. Statens Fastighetsverk til aðstoðar verður ráðið þýskt ráðgjafarfyrirtæki til að auðvelda samskipti við þarlenda aðila og tryggja að þýskum reglugerðum verði framfylgt. Stjórnunarhópur sem í sitja fulltrúar allra Norðurlandanna mun síðan fylgjast með að óskum verkkaupa verði uppfyllt. Mótorvindingar og aðrar rafvélaviðgerðir á vel búnu verkstæði Raflagnaþjónusta í skipum, verksmiðjum og hjá einstaklingum Vatnagörðum 10 • Reykjavík S 568-5854/568-5855 • Fax: 568-9974 ...upp í vindinn 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.