Upp í vindinn - 01.05.1996, Síða 29
STORABELTI OG EYRARSUN D
L
1
t 0 N =f=
Vu '\
CJ
rSP=Eh
Þversniö botnganganna í Drogden vió Amager
Austurállinn er annars vegar brúaður fyrir
bílaumferð með 6,8 km hengibrú, þeirri
stærstu sinnar tegundar, sem fer yfir saltan sjó,
og fer umferðin um hana á fjórum akreinum.
Stærsta haf sem spennt er yfir er 1.624 m.
Brúargólfið er rúma 60 metra yfir hafifletin-
um þar sem hæst er og stögin ná hæst í meira
en 250 metra, og er það töluvert hærra en
hæsta fjall Danmerkur. Járnbrautin milli
Halsskov og Sprogo er aftur á móti lögð í 8
km löng jarðgöng, þar af 7,4 km boruð berg-
göng, en að öðru leyti byggð á landi beggja
vegna. Gegnum göngin komust bormenn
Danmerkur 15. október 1994. Göngin eru
tvöföld og eru 31 þvergöng milli þeirra, m.a.
til nota sem flóttaleið.
Heildarkostnaður við Stórabeltistenginguna
er áætlaður 27 milljarðar danskra ltróna á verð-
lagi ársins 1995, en það eru nálægt sextíu
Hvalfjarðargöngum. Til að greiða niður þessa
geypilegu fjárfestingu er reiknað með vegtoll-
um af 14.000 ökutækjum fyrsta árið, sem
tengingin er í notkun, og síðan 1% aukningu
umferðar á ári. Með þessu mun veghluti teng-
ingarinnar greiðast á 14 árum.
Eyrarsund
Ríkisstjórnir Danmerkur og Svíþjóðar und-
irrituðu 23. mars 1993 samkomulag um að
koma á föstu sambandi milli landanna um
Eyrarsund, með fyrirvara um samþykki þjóð-
þinga landanna. Samningurinn var síðan stað-
festur 14. ágúst í Danmörku og 24. sama mán-
aðar í Svíþjóð. Áður en kom að samningum
milli ríkjanna hafði staðið yfir undirbúningur í
mörg ár og margir komið að málinu. Sérstak-
lega voru uppi áhyggjur um að umhverfi staf-
aði veruleg hætta af framkvæmdinni, mun
meiri en forsvarsmenn þeirra vildu vera láta.
Af þeim sökum var efnt til mikilla umhverfis-
rannsókna og mjög vel staðið að áhrifamati.
Samt var það svo að litlu munaði að hætt yrði
Skipurit um stjórnun Stórabeltis- og
Eyrarsundstenginganna.
við allt saman vegna efasemda Svía um að
endurnýjun sjávar í Eystrasalti yrði nóg eftir
að tengingin hefði verið byggð.
Árið 1993 hófust framkvæmdir við þessa
mestu tengingu milli landa síðan Ermasunds-
göngin voru gerð. Er fyrirhugað að þær standi
yfir í 7 ár og Ijúki árið 2000. Þó er reiknað
með að framkvæmdum á landi Danmerkur-
megin verði lokið 1998, en byrjað var á þeim
nokkru fyrr. Heildarlengd milli landa er 16
km, og er frá Lernacken Svíþjóðarmegin til
Amagereyju við Sjátand, rétt norðan við
Kastrupflugvöll og iiggur leiðin framhjá flug-
stöðinni.
Fyrstu hugmyndir um tengingu voru að
fara yfir á svonefndum Salthólma, sem liggur í
sundinu milli landanna. Eyjarnar Amager og
Saltholm hafa verið nefndar landtuðrur í ís-
lenskum bókum, enda lágar og landslag elcki
rismikið. Dönum og Svíum þótd þó svo vænt
um Salthólminn og það dýralíf sem þar fyrir-
finnst, að ákveðið var að þyrma honum og
þess í stað að gera nýja eyju sunnan hólmans.
Skiptist tengingin um þessa tilbúnu eyju og er
brú austanmegin en göng vestanmegin.
Brúin yfir Flinterenden, sem er austurállinn,
er alls 7,5 km, og samanstendur af tveim
stöplabrúm, 2.650 m vesturbrú og 3.740 m
austurbrú, en milli þeirra er hábrú, ríflega
kílómetralöng stagbrú. Stagbrúin hefur mest
haf 490 m og hæð yfir sjó um 60 metrar. Sjálf
siglingarennan, sem er 370 metra breið, er
undir lengsta hafi hábrúarinnar.
Hin tilbúna eyja sunnan Salthólmans er sér-
kennileg, um 2 km á lengd en um 100 m á
breidd. Fyllingarmassar eru áætlaðir um 4 millj-
ónir rúmmetra, þar af 0,7 milljón rúmmetra
grjótvörn. Á austanverðri eynni kemur brúin í
land og á henni vestanverðri koma botngöngin
upp frá vesturálnum, Drogden.
Botngöngin eru 3.750 metra löng og verða
steypt í einingum á landi. Þær verða síðan
dregnar út á sundið og sökkt í þar til gerða
rennu á botninum og tengdar saman. Eining-
arnar verða lokaðar í endana og ekki opnað á
milli þeirra fyrr en allar eru komnar á sinn
stað. Einingarnar eru 26 talsins og er hver
þeirra 135 metrar á lengd. Þversnið ganganna
má sjá á meðfylgjandi mynd. Þegar göngun-
um hefur verið komið fyrir eins og fyrirskrifað
er verður lögð ofan á þau 1,5 metra grjótvörn.
Göngin koma svo á land á Amager í mikilli
gjá og tekur stefnuna á vegi sem gerðir eru sér-
staklega vegna Eyrarsundstengingarinnar. Jafn-
framt er hér um að ræða að hluta endurbygg-
ingar vega- og járnbrautarnetsins á Kaup-
mannahafnarsvæðinu og færa það í nútíma-
legra horf. Við það batnar aðgengi að flugvell-
inum við Kastrup, sem nú heitir reyndar
Kaupmannahafnarflugvöllur. Alls eru nýjar
stofnbrautir Sjálands vegna tengingarinnar um
18 km og nýjar járnbrautir um 9 km.
Austanmegin sundsins í Svíþjóð munu
verða byggðir 10 km af nýjurn stofnbrautum
og nýjar járnbrautir verða 20 km. Innheimta
vegtollsins verður í Lernacken í Svíþjóð og
verða byggð allmikil mannvirki þess vegna.
Kostnaður við þann hluta framkvæmdanna
sem telst tenging milli landa er áætlaður um
21 milljarður danskra króna á verðlagi 1995.
Gert er ráð fyrir að ríkisjárnbrautir þjóðanna
tveggja borgi 300 milljónir DKK á ári og með
umferð, sem áætluð er 10.000 ökutæki strax á
fyrsta ári með 1,7% árlegri aukningu, er þess
vænst að það taki 24 ár að greiða niður lánin af
framkvæmdunum. Lengri tíma tekur að end-
urgreiða fyrir allar landframkvæmdirnar Dan-
merkurmegin, eða um 30 ár, en þeim mun
fyrr Svíþjóðarmegin.
Þessi tvö stórvirki, sem stuttlega hefur verið
sagt frá hér, verður gaman að kynnast þegar
þau hafa verið tekin í notkun. Þeir sem ekki
geta beðið eftir því er bent á að í Korsor og
Kaupmannahöfn í Danmörku og í Málmey í
Svíþjóð hafa verið opnaðar sérstakar sýningar
tileinkaðar þessum framkvæmdum. Hver veit
nema við Islendingar gætum lært af frændþjóð-
um okkar um gerð stórra samgöngumannvirkja
og ef til vill einnig um vönduð vinnubrögð við
umhverfis- og áhrifamat. Víst er að danskir og
sænskir verkfræðingar geta verið ánægðir með
vel unnið verk um næstu aldamót þegar þess-
um stórframkvæmdum lýkur.
Heimildir:
1.0resundskonsortiet, Miljo 0resundsforbindel-
sen kyst til kyst anlægget 1993, Kaupmannahöfn
1993.
2. 0resundskonsortiet, Den faste forbindelse over
0resund, Kaupmannahöfn 1994.
3. 0resundskonsortiet, 0resundsforbindelsen -
Rapport til Vattendomstolen, Kaupmannahöfn,
1994. Þýtt úr sænsku.
4. A/S Storebæltsforbindelsen o.fl., World Bridges
in Denmark, Kaupmannahötn 1995.
...upp í vindinn
29