Upp í vindinn


Upp í vindinn - 01.05.1996, Page 33

Upp í vindinn - 01.05.1996, Page 33
Verkfraeðistofnun Háskóla Íslands Vet'kfuebi (tfM UíetiM fmfélaý OT II rkfræðistofn ■RK£1 ■MQMHU lilElnmiiap VERKFRÆÐISTOFNUN Háskóla íslands er vettvangur rannsókna háskólakennara og sérfræðinga í verkfræði við Háskólann. Starfseminni má skipta í þrjá meginflokka: I) Undirstöðurannsóknir, II) samningsbundnar þjónusturannsóknir og III) rannsóknir og uppbyggingu aðstöðu í tengslum við kennslu í verkfræði. Stofnuninni tengjast um 60 stöðugildi. Rannsóknir eru stundaðará sviði aflfræði, kerfisverkfræði, upplýsinga- og merkjafræði, varma- og straumfræði, vatna- verkfræði, efnistækni o.fl. Verkfræðistúdent- ar vinna að sérverkefnum og lokaverkefnum á vettvangi stofnunarinnar. Með tilkomu náms til meistaraprófs við verkfræðideild HÍ hefur stofnunin í æ ríkari mæli orðið vett- vangur margvíslegra rannsókna stúdenta. Velta VHÍ var á síðasta ári 89 milljónir. Þar af komu 5.8 milljónir sem ríkisframlag til stofnunarinnar. Verkfræðistofnun er eini vettvangur grunnrannsókna í verkfræði hér á landi. Stofnunin verður 20 ára 1997. Stjórnarformaður verkfræðistofnunar er Ragnar Sigbjörnsson prófessor. Aðrir í stjórn eru prófessorarnir Anna Soffía Hauksdóttir, Björn Kristinsson, Jónas Elías- son, Sigfús Björnsson, Valdimar K. Jónsson og Sæmundur Þorsteinsson sérfræðingur. Framkvæmdastjóri Verkfræðistofnunar er Þorsteinn I. Sigfússon prófessor. Hér á eftir verða nefndar helstu stofur stofnun- arinnar og viðfangsefni þeirra.

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.