Upp í vindinn - 01.05.1996, Síða 36
Önnurtengd starFsemi
• Rannsóknir á efniseiginleikum samsetninga
(komposit) eru stundaðar við VHÍ. Rannsóknaráð ís-
lands kostaði stöðu sérfræðings á þessu sviði árið
1995 með aðstöðu við stofnunina.Titrings og bilana-
greining á vélum og burðarvirkjum ásamt hönnun og
svokallaðri erfðafræðilegri bestun.
• Á sviði Ijóstækni er tilraunaaðstaða við stofnunina.
• Fræðilegar rannsóknir á sviði gæðastjórnunar með
tilliti til mismunandi atvinnuvega. Gerð náms-
gagna fyrir evrópskan sjávarútveg sem unnin var af
verkfræðideild og Sammennt.Tölfræðileg bestun-
arfræði í sjávarútvegi.
• Á sviði skipulagsfræði eru stundaðar rannsóknir,
einkum tengdar umhverfisskipulagi.
Upplysinga- og
merkjaFræðistoFa
Unnið er að sérhæfðri merkjafræðilegri úr-
vinnslu mæligagna, fjölrásaskráningu, síun og
breytingu merkja á tölvutækt form. Þróun forrita
til merkjagreiningar og frekari tölfræðilegrar úr-
vinnslu á sviði lífverkfræði, lífeðlisfræði, jarðvís-
inda o.fl. Gervigreind og tauganet eru sérsvið
innan stofunnar. Á stofunni eru stundaðar fjar-
könnunarrannsóknir og mælingar úr flugvélum,
m.a. eftirlit með virkum eldfjöllum og breytingum
á jarðhitasvæðum, kortlagningu á gróðurþekju,
og mælingar á blaðgrænu og mengun í sjó.
Þróaðar hafa verið tauganetsaðferðir sem
byggja á samdómafræðum (consensus theory) til
flokkunar flókinna gagna, t.a.m. fjarkönnunar-
gagna frá mörgum gagnalindum. Einnig hafa ver-
ið þróaðar tauganetsaðferðir sem byggja á
höfuðþáttagreiningu (principal component ana-
lysis). Þessar aðferðir hafa verið notaðar með
góðum árangri til rannsókna á truflun heila-
starfsemi hjá geðklofasjúklingum með notkun
heilarita og hrifrita.
Framkvæmdastjóri
Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor
Sími: 525 4690 • Símhréf: 525 4913
AFlfræðistoFa
Ragnar Sigbjörnsson, prófessor
Sími: 525 4918
KerFisverkFræðistoFa
Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor
Sími: 525 4671
Upplýsinga- og merkjafræðistoFa
Sigfús Björnsson, prófessor
Sími: 525 4668
Varma- og straumFræðistoFa
Valdimar K. Jónsson, prófessor
Sími: 525 4653
VatnaFræðistoFa
^ Bæklingur unninn af Ara Guðmundssyni fyrir VerkFræðistoFnun, april ‘96. j
Jónas Elíasson, prófessor
Sími: 525 4651