Upp í vindinn - 01.05.2011, Síða 51
Nýsköpunarmiðstöð
íslands
IIL
SIGLINGASTOFNUN
BJORGUN
Reykjavíkurborg
Landsvirkjun BM'VAIIÁ
STEYPUSTOÐIN
Steinsteypunefnd hefur frá upphafi verið ein helsta stoð steinsteypurannsókna við Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins (Rb), nú Nýsköpunarmiðstöð íslands. Steinsteypunefnd var sett á fót érið 1967 af iðnaðarráðuneytinu að
frumkvæði Haralds Ásgeirssonar, þáverandi forstjóra Rb. Verkefni nefndarinnar var að vinna að rannsóknum sem
hindrað gætu grotnun í steinsteypu. Kveikjan að stofnuninni var sú að svonefndar alkalískemmdir í steinsteypu höfðu
verið uppgötvaðar í USA. Rannsóknir Haralds sýndu að möguleiki á slíkum skemmdum væri einnig á íslandi.
í upphafi snérust rannsóknirnar mikið um alkalívirkni og alkalískemmdir í steypu. Á seínni árum hefur rannsókna-
sviðið breikkað og spannar nú öll svið sem lúta að framförum í steypugerð, aukna hagkvæmni og betri endingu
steyptra mannvirkja. Árangur rannsókna sem Steinsteypunefnd hefur kostað er afar góður og má þar nefna m.a. að
alkalískemmdir eru ekki lengur vandamál á íslandi, nýting kísilryks hefur stórlega bætt gæði sements og steyptra
mannvirkja, notkun sílanefna er áhrifarík aðferð og einföld til að hindra grotnunarskemmdir í útveggjum húsa,
viðhaldsaðferðir hafa batnað, gæðaeftirlit stórlega aukist og svo má lengi telja.
Aðilar Steinsteypunefndar hafa frá upphafi kostað starfsemi Steinsteypunefndar. Núverandi aðilar eru: Framkvæmda-
og eignasvið Reykjavíkurborgar, Vegagerðin, Landsvirkjun, Sementsverk.smiðjan, Siglingamálastofnun, Nýsköpunar-
miðstöð íslands, B.M. Vallá, Steypustöðin og Björgun.
Nú hefur Steinsteypunefnd opnað heimasíðu þar sem að veittur er opinn endurgjaldslaus aðgangur að öllum skýrsl-
um rannsóknarverkefna nefndarinnar.
''//vm
Sm
VEGAGERÐIN
Steinsteypunefnd | www.steinsteypunefnd.is | Nýsköpunarmiðstöð íslands | Keldnaholti | 11 2 Reykjavík | Sími 522 9000