Upp í vindinn - 01.05.2011, Blaðsíða 66
Sandburður við Landeyjahöfn, inn í höfn og
við hafnamynni
Mat á efnisburði í sniði framan við Landeyjahöfn
er metinn í fjörunni að meðaltali um 150.000
m3 á ári, eftir sandrifinu um 270.000 m3 á ári
nettó. Eins og áður er getið ná hafnargarðarnir
um 600 m frá ströndinni. Það þýðir að
suðvestan- og suðaustan ölduáttir bera efni að
görðunum. Samkvæmt þessum reikningum
tekur það efnisburðinn um 10 ár að fylla að
hafnargörðunum í meðalárferði.
Heildarefnið, sem berst inn um
hafnarmynnið, var áætlað allt að 30.000 m3
á ári en þó minna fyrstu árin. Vegna mikilla
breytinga milli ára á öldufari við suðurströndina
má reikna með að efnismagnið, sem berst inn um
hafnarmynnið, verði mjög breytilegt milli ára.
Hönnunarforsendur Landeyjahafnar
Rannsóknir og hönnun Landeyjahafnar er
tæknilega krefjandi verkefni. Þegar Landeyjahöfn
var hönnuð var m.a. gengið út frá eftirfarandi
forsendum:
• Dýpið í hafnarmynni og innan hafnar er í
jafnvægi við 5,5 m dýpi og því þarf að halda
með viðhaldsdýpkunum
• Dýpi á rifi getur minnst verið 5,0 m en það
er ákvarðandi fyrir djúpristu ferju.
• Ferja þarf að rista 3,3 metra. Lengd ferju er
allt að 70m og breidd allt að 15m.
• Halda þarf dýpi nægjanlegu með
viðhaldsdýpkunum.
• Form garða og lögun þarf að vera sem mest
í sátt við umhverfið þannig að inngrip
hafnarinnar í efnisburð verði sem minnst.
til jafnvægi er nað en þá getur talsvert af því
efni borist inn í höfnina.
• Þybbupúðar séu við garðsenda.
• Hönnunaralda er 100 ára alda með
kenniöldu 6,8 m með sveiflutíma 14 sek.
• Bryggja hönnuð fyrir notálag 2 t/m2 og
punktálagi upp á 80 tonn.
• Snúningsrými ferju væri að lágmarki 1,3
lengd ferju.
• Miðað er við bílaferju með flutningsgetu
fyrir allt að 90 fólksbíla og 400 farþega.
Meginforsenda við staðarval og hönnun
Landeyjahafnar var að raska ekki því jafnvægi
náttúrunnar sem þarna ríkir milli efnisburðar með
ströndinni og gerðar og mótunar strandarinnar.
Bygging Landeyjahafnar
Landeyjahöfn, var tekin í notkun í júlí 2010.
Bygging hennar hófst með undirbúningi
uppgræðslu Bakkfjöru haustið 2007.
Landgræðslan hefur stýrt uppgræðslu á um 600
hektara af sandi við Bakkafjöru. Haustið 2008
hóf Suðurverk byggingu 12-14 metra breiðs vegar
frá Þórsmerkurvegi upp í grjótnámu. Vinnsla
grjóts hófst svo í desember 2008. Námutrukkar,
100 tonna, fluttu grjótið frá námu og í lager í
Markarfljóti. I maí 2009 hófst keyrsla úr lager
í Markarfljóti í grjótgarða. Heildargrjótmagnið
sem keyrt var niður var um 750.000 m3.
Aðalbrimvarnargarðarnir eru byggðir eftir
íslenskri hönnun. Islenski bermugarðurinn er
hönnun á grjótgörðum sem hefur verið þróuð
af Siglingastofnun og nýtt hér á landi og í
Noregi. Hún gengur út á m.a. að nýta grjótið
úr grjótnámunni sem best. I verkinu fólst einnig
lagning 13 km vegar og 5 km af flóðvarnar-
er steypt bryggja á stálstaurum. Upphaflega stóð
til að vera með stálþil en með gengishruninu
samfara bankahruninu varð hagkvæmara að vera
með steypta bryggju úr hágæða steypu. Verktaki
var Suðurverk. A sama tíma hófst bygging
farþegaaðstöðu um 400 m2 að flatarmáli, verktaki
var SÁ verklausnir. Um vorið hófst dýpkun
Landeyjahafnar en verktaki var Björgun. Smíði
20 m ekjubrúar og 15 m farþegalandgangs hófst
í mars og var verktaki Stál og Suða. Snemma
sumars 2010 hófst vinna við lóðafrágang og var
verktaki SÁ verkalausnir.
Siglingastofnun hannaði höfnina,
brimvarnar-, sjóvarnagarðana, bryggjuna, ekju-
og farþegubrúnna. Landmótun deiluskipulagð
hafnasvæðið. Sveinn Ivarssonar hannaði
farþegaaðstöðuna ásamt Teiknistofu Páls
Zophaníusarsonar er sá um verkfræðiteikningar.
Landmótun og Verkís hönnuðu lóðina,
hæðarlegu og lagnir. Efla hannaði veginn.
Eftirlitsaðili var Verkfræðiþjónustan
Strendingur, Vegagerðin og Siglingastofnun.
Verkefnisstjórn var í höndun Siglingastofnunar.
Haustið 2007 fór í gang forval á rekstri og
smíði nýrrar ferju milli lands og Eyja. í apríl
2008 voru tilboð opnuð og voru þau Iangt
yfir kostnaðaráætlun og því öllum hafnað. I
framhaldi af því var boðin út smíði á nýrri ferju.
I byrjun október 2008 höfðu samningar náðst
en þá hrundu bankarnir og ákveðið var að fresta
kaupum á nýrri ferju.
Verkið gekk í megindráttum samkvæmt
verkáætlun frá 2007 nema hvað í kjölfar
bankahruns var ákveðið að fresta nokkrum
verkþáttum fram til ársins 2010. Eldgosið í
Eyjafjallajökli hafði einnig sín áhrif, en aðstæður
á verkstað voru oft hvimleiðar, aska í loftinu og
Ef mikið efni er til staðar myndast sandalda sjóvarnargörðum.
mikið mistur. Einnig þurfti að leggja niður vinnu
ASRUR
sem þarf að berast fyrir hafnarmynnið þar í byrjun árs 2010 hófst smíði bryggju sem um tíma. Þrátt fyrir erfiðleika þá lögðu
Notalegur staður
fyrir alla fjölskylduna
Steikur &
fiskiréttir
frá Kr. 2.390.-
Súpa og salatbar
innifalið í verði