Upp í vindinn - 01.05.2011, Side 77
JARÐSICJÁLFTAMIÐSTÖÐIN EINS OG
Rannsóknarmiðstöð Háskóla Islands
í jarðskjálftaverkfræði á Selfossi er alla
jafna nefnd í daglegu tali hefur nú verið
starfrækt í rúman áratug. Síðasta ár er
um flest eitt hið merkasta í sögu miðstöðvarinnar.
Þar ber hæst doktorsvarnir tveggja starfsmanna,
þeirra Rajesh Rupakhety frá Nepal og Teraphan
Ornthammarath frá Tælandi. I báðum tilvikum
fjölluðu rannsóknirnar um áhrif jarðskjálfta á
mannvirki og byggðu á mælingum sem einkum
tengdust Suðurlandsskjálftunum árið 2000 og
2008. Hér eru á ferðinni rannsóknir sem vakið
hafa verðskuldaða athygli á alþjóða vettvangi.
Þá ber að geta þess að tveir nýir doktorsnemar
bættust í hópinn á árinu sem leið. Það eru
verkfræðingarnir Sigurður Unnar Sigurðsson og
Sólveig Þorvaldsdóttir.
Þjálfun nemenda í rannsóknartengdu
framhaldsnámi er snar þáttur í starfseminni,
og raunar einn þeirra fjögurra hornsteina sem
starfsemin hvílir á ásamt undirstöðurannsóknum,
þróun og ráðgjöf fyrir íslenskt atvinnulíf ásamt
alþjóða samstarfi.
Starfsmenn miðstöðvarinnar tóku virkan
þátt í stærstu ráðstefnum í Ameríku og Evrópu
á sviði jarðskjálftaverkfræði, sem haldnar voru
annars vegar í Toronto, Kanada, og hins vegar
Ohrid í Makedóníu. Á þessum ráðstefnum
voru kynntar alls 7 greinar, sem byggðar eru
á rannsóknum starfsmanna miðstöðvarinnar,
auk þess sem prófessor Ragnar Sigbjörnsson,
forstöðumaður, átti sæti í undirbúningsnefnd
Evrópuráðstefnunnar í Ohrid. Ritun greina
í alþjóðleg vísindatímarit er snar þáttur
í starfseminni; ritalistinn fyrir árið 2010
inniheldur alls 19 titla, en margar greinanna
eru unnar í samstarfi við erlenda samstarfsaðila
miðstöðvarinnar.
Á árinu 2010 hefur verið tekið á móti fjölda
erlendra og innlendra gesta; sérstaklega ber að
minnast á heimsókn vísindamanna frá Kína
og Japan. Japanir voru mjög áhugasamir um
rannsóknir okkar á öskudreifmgu eldsgossins
í Eyjafjallajökli og buðu vísindamanni frá
miðstöðinni til Japan til þess að halda fyrirlestur
um málefnið á ráðstefnu viku eftir veru þeirra
hér hjá okkur. Líldegt er að framhald verði á því
samstarfi. Þá hefur Sólveig Þorvaldsdóttir hlotið
styrk frá Japan til þess að vinna að rannsóknum
ásamt gestunum sem hingað komu.
Á Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði
er mikil áhersla lögð á mælingar og öflun ýmis
konar gagna með það að markmiði að skilja eðli
og áhrif jarðskjálfta. Hornsteinn þessara mælinga
er landsnet hröðunarmæla sem nær yfir helstu
jarðskjálftasvæði landsins. Tilgangur mælinganna
er að afla gagna sem nauðsynleg eru fýrir
hönnun og rekstur mannvirkja, áhættumat og
áhættustjórnun. Mælakerfið er einstakt á Islandi
og er jafnframt stærsta kerfi sinnar tegundar sem
rekið er í norðanverðri Evrópu.
Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði
er í miklu og góðu samstarfi við Háskólafélag
Suðurlands sem m.a. er fólgið því í að bjóða
sumarnámskeið á alþjóðavettvangi. Opnaður
hefur verið vefur fýrir fýrsta námskeiðið sem
fjallar um náttúruhamfarir og er slóðin www.
Þann 13. ágúst 2010 varði Rajesh Rupakhety
dokcorsricgerð sína við Háskóla Islands.
earthquake.is. Það verður einnig haldin
alþjóðleg ráðstefna á vegum miðstöðvarinnar 29.
apríl n.k. og er hún liður í hátíðarhöldum vegna
aldar afmælis Háskóla íslands. Allar upplýsingar
um ráðstefnuna er að finna á vefnum www.eerc.
hi.is/ISSEE2011. Við hvetjum fólk til þess að
skoða heimasíðu Jarðskjálftamiðstöðvarinnar
en þar er að finna ítarlegar upplýsingar um
starfsemina svo og starfsfólk. Slóðin er www.
jardskjalftamidstod.hi.is.
Ragnar Sigbjörnsson prófessor rók þáct í hringborðsumræðum
á rannsóknarþingi í Kína, þar sem íjallað var um scóra
Wenchuan jarðskjálfcann. Ráðscefnan bar nafnið Incernacional
Symposium on “5.12”Massive Wenchuan Earchquake
Reconscruccion & Cacascrophic Disascer Managemenc og
var haldin í Chengdu, Sichuan, dagana 21. — 22. sepcember,
2010. Scjórnvöld íSichuan héraði buðu Ragnari að caka þácc /
ráðscefnunni og greiddu ferðakoscnað.
Hópur kinverskra embæccismanna var íheimsókn hjá
Sveicafélaginu Árborg 2. sepcember s.l. Hópurinner frá
bænum Wande I Sichuan héraði sem varð illa úciþegar
öflugur jarðskjálfci skók jörðu 12. maí2008 og var hann
8 að scærð. Jarðskjálfcahrina sem scóð fram /ágúsc 2008
olli gífurlegri eyðileggingu á scóru svæði og calið erað 70
þúsund manns hafl lácisc og hácc í flmm milljónir manna
capað heimili sínu.
77