Læknablaðið - 01.11.2023, Síða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 487
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Halla Viðarsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Oddur Ingimarsson
Sæmundur Rögnvaldsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
1850
Áskrift
23.400,- m. vsk.
Lausasala
2340,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
„Við höfum áhuga á að semja áfram um aðgerðir og meðferðir þar sem biðlistar hafa myndast,“
segir heilbrigðisráðherra. Hann hyggst gefa sjúklingum tækifæri til sjúkratryggðra aðgerða
á einkareknum stofum þar sem þörf er á
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ráðherra vill nýta allt
kerfið gegn biðlistum
„Nóg er komið af tímabundnum átökum til að
ná niður biðlistum,“ segir Willum Þór Þórs
son heilbrigðisráðherra. Hann sjái fyrir sér
frekari samninga Sjúkratrygginga Íslands um
nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, jafnvel til
lengri tíma, nú þegar fyrirséð er að þörfin auk
ist enn.
Ráðherra nefnir liðskiptaaðgerðir, aðgerðir á
augasteinum, kvennaaðgerðir vegna til dæmis
endómetríósu, sem og ýmsar hryggaðgerðir og
efnaskiptaaðgerðir. „Fyrir mér eru aðgerðirnar
partur af lýðheilsu,“ segir hann: „Við þurfum
að ná tökum á því að fólk bíði ekki of lengi og
sé virkt í vinnu eða öðru sem það gerir í lífi
sínu.“
Willum segir þó mikilvægt að aðgerðirn
ar verði líka hluti af sjúkrahúsunum og þeirri
færni sem þurfi að vera til staðar inni á þeim.
Hann sjái fyrir sér að skjólstæðingar kerfisins
geti valið hvert þeir fara í aðgerðirnar.
„Við vinnum að þessu aukna aðgengi núna.
Þetta er sýn og ég get því ekki svarað nákvæm
lega til um tímasetningar.“ Þó sé ljóst að fram
hald verði á útboðum liðskiptaaðgerða á nýju
ári.
Heilbrigðisráðuneytið bauð út 700 aðgerðir
í upphafi árs. Klíníkin og Handlæknastöðin
(Cosan) fengu verkin. „Það var óhjákvæmilegt
að fara í útboðið svona og fara af stað og opna á
þetta. Ég er ánægður með að við skyldum taka
skrefið. Ég held að það sé óumdeilt að það var
rétt að gera,“ segir hann.
Alls voru 858 liðskiptaaðgerðir gerðar fyrstu
níu mánuði ársins, samkvæmt mælaborði Emb
ættis landlæknis. Nú er svo komið að Klíníkin
hefur gert fleiri aðgerðir en Landspítali, eða
283, eða 33%, á meðan spítalinn gerði 248 að
gerðir, 29%. Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi gerði 15% þeirra, Sjúkrahúsið á Akur
eyri gerði 14% og Handlæknastöðin 9%.
Sigurður Ingibergur Björnsson, fram
kvæmda stjóri Klíníkurinnar, segir þrjá
bæklunar lækna skera. „Við förum í um 700
aðgerðir á Klíníkinni í ár og erum stærsta lið
skiptaklíníkin á landinu,“ segir hann en eins
og sjá má á orðunum eru flestar án greiðslu
þátttöku ríkisins. „Við stefnum á að gera um
1000 aðgerðir á næsta ári.“
Ráðherra segir nú unnið að því að taka
saman hvernig tekist hafi til og gögnin verði
svo rýnd. Hann leggur áherslu á mikilvægi
sýnar sinnar. „Það eru sífellt fleiri sem þurfa
til að mynda að fara í augasteinsaðgerðir og
vandinn stækkar.“ Það kosti sannarlega að
vinna niður biðlista.
„Aðalkostnaðurinn er þó fyrir samfélagið
í heild þegar fólk verður óvirkt, kemst ekki til
vinnu eða virkni í öðru. Við viljum koma þessu
á og bæta aðgengi. Þetta þarf að vinnast með
spítölunum og öllum sem geta gert aðgerðirnar.
Þeir sem þurfa aðgerðirnar þurfa að hafa þetta
aðgengi,“ segir hann. „Spítalarnir geta bara
ekki einir og sér sinnt þessu.“
Nú sé unnið með að ná upp nýtingu á skurð
stofum Landspítala. „Vísbendingar eru um að
það sé að takast hægt og rólega.“
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
var gestur á aðalfundi Læknafélags
Íslands sem haldinn var 20. október.
Hér er hann við hlið Steinunnar Þórðar-
dóttur, formanns félagsins. Mynd/gag