Læknablaðið - 01.11.2023, Side 4
488 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
495
Ragnar P. Ólafsson, Karól Kvaran, Kristín Ketilsdóttir, Kolbrún Hallgrímsdóttir, Emil L. Sigurðsson,
Engilbert Sigurðsson
Hugvíkkandi efni og meðhöndlun geðraskana á Íslandi: Þekking og viðhorf
geðlækna, heimilislækna og sálfræðinga
Í greininni eru greind svör úr vefkönnun í þremur fagfélögum við spurningum um níu
tegundir efna sem almennt eru talin til hugvíkkandi ofskynjunarefna, viðhorf til meðferðar
með hugvíkkandi sveppum, um eðli, útfærslu og þjálfun ef slík meðferð yrði veitt og hugs-
anlegar hindranir við að veita slíka meðferð. - Þörf er á viðameiri viðhorfskönnun til að efla
faglega umræðu frekar og fylgjast með þróun þekkingar og viðhorfa á þessu sviði.
F R Æ Ð I G R E I N A R
11. tölublað · 109. árgangur · 2023
491
Sigurður Ólafsson
Skorpulifur í
stórsókn
Hér á landi eru lýðheilsu-
sjónarmið látin víkja.
Rekinn hefur verið áróður
fyrir meira frelsi í áfengis-
sölu. Alþingismenn leggja
fram frumvörp sem leiða
til greiðara aðgengis að
áfengi en jafnframt að
lögð skuli meiri áhersla á
forvarnir. Það felst æpandi
mótsögn í því.
L E I Ð A R A R
493
Ragnar Bjarnason
Lyfjaskortur á
Íslandi. Heima-
tilbúinn vandi?
Lyfjastofnun tekur
skráningargjald fyrir
alla styrkleika og form.
Töflur eða mixtúrur
sem henta börnum bera
þannig sama skrán-
ingargjald og lyfið sem
selt í þúsundum til full-
orðinna. Þannig hefur
þetta ástand bitnað hvað
verst á börnum.
Á FORSÍÐU – LYFJABÚÐ
504
Jens Stensrud, Óskar Örn Óskarsson, Helga Erlendsdóttir, Valtýr Stefánsson Thors
Heilahimnubólga hjá börnum á Íslandi af völdum pneumókokka –
sjúkratilfelli og yfirlit
Ellefu mánaða gömul stúlka var send á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins vegna hita og
slappleika. Stúlkan var bráðveik við skoðun með sveiflukennda meðvitund. Henni versnaði
mjög hratt stuttu eftir komu og reyndist hún vera með heilahimnubólgu af völdum Strept-
ococcus pneumoniae. Frá mars 2022 hafa greinst nokkur tilfelli af heilahimnubólgu af völd-
um baktería hjá börnum og S. pneumoniae verið algengasti meinvaldur.
508
Brynhildur Thors, Bjarni Guðmundsson
Vaxandi máttleysi í ganglimum hjá fimmtugum manni – sjúkratilfelli
Karlmaður leitaði á heilsugæslu vegna versnandi vöðvaverkja og máttleysis. Hann gekk
á milli lækna áður en greining fékkst. Hann var með þráláta verki í stærri vöðvum sem
versnuðu við áreynslu, fætur gáfu sig undan honum þegar verst lét. Væg einkenni voru í
handleggjum. Einkenni voru sveiflukennd, verri á morgnana en skást á kvöldin og næturnar.
Engin skyntruflun eða áberandi einkenni frá ósjálfráða taugakerfinu. Hann var hættur að
gera sjálfsagða daglega hluti og farinn að halda kyrru fyrir vegna verkja við alla hreyfingu.
Með elstu fyrirtækjum landsins eru
apótekin eða lyfjabúðirnar. Stofn-
inn í Reykjavíkurapóteki má rekja til
lyfjabúðar Bjarna Pálssonar fyrsta
landlæknisins í Nesi við Seltjörn sem
sett var á laggirnar 1760, var síðar
starfrækt við Austurvöll og frá 1933 í
Austurstræti 14, í tímamóta stórhýsi
sem Guðjón Samúelsson teiknaði.
Þar er nú veitingastaður sem heitir
Apótekið.
Orðið apótek er komið úr grísku og
er notað í norrænu málunum og til
dæmis í pólsku og þýsku.
Þrátt fyrir fjölda og fjölbreytileika
lyfja nútímans er jafnframt viðvarandi
og hættulegur lyfjaskortur víða um
heim.
Ljósmyndari/Sigfús Eymundsson – Þjóðminjasafn Íslands
Mynd úr apótekinu við Austurvöll tekin um 1890.
Á myndinni eru Sigtryggur Sigurðsson lyfjasveinn og
Guðmundur Jónsson faðir Erlendar í Unuhúsi. Ekki
eru til upplýsingar um konuna sem stendur baksviðs á
myndinni. VS