Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 491
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Hér á landi eru lýðheilsusjónarmið
látin víkja. Rekinn hefur verið áróður
fyrir meira frelsi í áfengissölu.
Alþingismenn leggja fram frumvörp
sem leiða til greiðara aðgengis að
áfengi en jafnframt að lögð skuli meiri
áhersla á forvarnir. Það felst æpandi
mótsögn í því.
doi 10.17992/lbl.2023.11.764
Skorpulifur er lokastig margvíslegra lifrarsjúk
dóma en algengustu orsakir eru óhófleg áfengis
neysla, fitulifrarkvilli og veirulifrarbólga, einkum
lifrarbólga C. Skorpulifur er alvarlegur sjúkdómur
og dánartíðni er há.
Sem námslæknir eftir útskrift úr læknadeild
árið 1985 sá ég einn sjúkling með skorpulif
ur. Námslæknar á Íslandi upplifa nú allt annan
veruleika: alltaf eru nokkrir skorpulifrarsjúklingar
á legudeildum Landspítala og umönnun þeirra
er hluti af daglegum störfum þeirra. Hvað veldur
þessum umskiptum?
Rannsóknir undanfarinna ára varpa skýru ljósi
á þessa þróun og orsakir hennar.
Nýgengi skorpulifrar á Íslandi var lengi vel
það lægsta á Vesturlöndum. Árin 19942003 var
nýgengi skorpulifrar einungis 3,3 tilfelli fyrir
hverja 100.000 íbúa.1 Nýlega var birt rannsókn á
nýgengi og orsökum skorpulifrar á Íslandi fyrir
tímabilið 20102015.2 Nýgengi skorpulifrar á þessu
tímabili var 9,7 tilfelli fyrir hverja 100.000 íbúa.
Það er þreföld aukning á nýgengi miðað fyrri
rannsókn en var ennþá nokkru lægra en þekktist
meðal annarra Norðurlandaþjóða. Meginorsakir
skorpulifrar voru áfengisneysla (31%), fitulifrar
kvilli (22%) og lifrarbólga C (21%).
Nokkrar ástæður liggja að baki þessari hækkun
á nýgengi. Mikil aukning hefur orðið á áfengis
neyslu meðal Íslendinga, eða frá 4,3 lítrum á hvern
íbúa eldri en 15 ára árið 1980 í 7,5 lítra á árunum
20162020. Þá eru offita og sykursýki, sem eru
helstu áhættuþættir fitulifrarkvilla, hratt vaxandi
vandamál og hafa leitt til þess að fitulifrarkvilli er
önnur algengasta orsök skorpulifrar hér á landi.
Mikil aukning á skorpulifur vegna lifrarbólgu C
kom ekki á óvart og skýrist af faraldri meðal fólks
sem sprautar sig með vímuefnum í æð og langs
meðgöngutíma frá smiti til skorpulifrar.
Í ársbyrjun 2016 var hrundið af stað meðferðar
átaki gegn lifrarbólgu C hér á landi með það að
markmiði að bjóða öllum smituðum lyfjameðferð
og lækningu og útrýma þannig lifrarbólgu C sem
meiriháttar heilbrigðisvá.3 Á fyrstu þremur árum
átaksins náðist að greina og meðhöndla yfir 90%
smitaðra. Í þessum hópi, sérstaklega á fyrsta árinu,
voru margir greindir með skorpulifur og fengu
þeir allir lyfjameðferð. Meðferðarátakið hefur
meðal annars leitt til þess að undanfarin ár hafa
einungis örfáir Íslendingar greinst með skorpulif
ur af völdum lifrarbólgu C.
Þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur
varðandi lifrarbólgu C eykst nýgengi skorpulifr
ar áfram. Nýlega birtist rannsókn á alvarlegum
áfengistengdum lifrarsjúkdómum (áfengisskorpu
lifur og áfengislifrarbólgu) á Íslandi. Rannsókn
in náði til áranna 19842020 og greindust alls
314 einstaklingar, þar af 244 með skorpulifur. Á
tímabilinu 19842000 var nýgengi 0,77 á 100.000
íbúa á ári en jókst í 6,1 árin 20162020. Það er átt
föld aukning! Færri en fimm sjúklingar greindust
árlega á tímabilinu 19841993 og sum árin enginn!
Það rímar vel við reynslu undirritaðs á námsár
unum. Fimm ára lifun þeirra sem greindust með
skorpulifur var einungis um 50%. Höfundar skýra
þetta með mikilli aukningu áfengisneyslu undan
farna áratugi. Þeir benda jafnframt á samhengi
aukinnar neyslu við greiðara aðgengi að áfengi
undanfarin ár.
Rannsóknir hafa sýnt beint samband áfengis
neyslu og dánartíðni af völdum skorpulifrar.4
Aukin áfengisneysla hefur jafnan í för með sér
vaxandi nýgengi og dánartíðni af völdum þessa
kvilla. Meira aðgengi leiðir til meiri áfengisneyslu
og aukið aðgengi að áfengi er vafalítið ein af
meginorsökum vaxandi nýgengis skorpulifrar hér
á landi.
Sé horft til lýðheilsuúrræða eru einkum þrír
þættir sem áhrifaríkast er fyrir stjórnvöld að hafa
áhrif á til að stemma stigu við áfeng
isneyslu meðal þjóða: verðlagning,
aðgengi (áfengiskaupaaldur, fjöldi og
þéttni sölustaða og afgreiðslutími) og
markaðssetning/auglýsingar.5
Hér á landi eru lýðheilsusjónar
miðin nú látin víkja. Á undanförnum
árum hefur verið rekinn mikill áróð
ur fyrir greiðara aðgengi og meira
frelsi í áfengissölu. Alþingismenn
leggja stöðugt fram frumvörp sem
miða að því að auka framboð og að
gengi að áfengi. Slíkum frumvörpum
fylgja gjarnan greinargerðir þar sem tiltekið er
að jafnframt skuli lögð aukin áhersla á forvarnir.
Það felst æpandi mótsögn í því að vilja vinna að
forvörnum en leggja á sama tíma fram frumvörp
sem veikja þær forvarnir sem hafa sýnt sig að gera
mest gagn! Það kann að vera sjónarmið í sjálfu
sér að aukið frelsi á þessu sviði sé réttlætanlegt
þótt það leiði til aukinnar sjúkdómsbyrði og heil
brigðisútgjalda – en það þarf þá að koma skýrt
fram í málflutningi.
Skorpulifur í stórsókn
Major increase in the
incidence of cirrhosis in
Iceland
Sigurður Ólafsson
MD, FACP
Consultant, Division of
Gastroenterology and
Hepatology, Department of
Medicine, Landspitali – The
National University Hospital
of Iceland, Clinical Associate
Professor of Medicine,
University of Iceland Faculty
of Medicine
Sigurður Ólafsson
læknir,
sérfræðingur í
meltingar- og lifrarsjúk-
dómum á Landspítala,
klínískur dósent við
læknadeild Háskóla
Íslands
Sýnt hefur verið fram á
verkun og öryggi ELIQUIS® fyrir
allar samþykktar ábendingar
Meðferð við segamyndun í
djúplægum bláæðum (DVT)
Meðferð við
lungnasegareki
(PE)
Forvörn gegn endurtekinni
segamyndun í djúplægum
bláæðum og lungnasegareki
Forvörn gegn
bláæðasegareki (VTEp)
eftir valfrjáls hnéliðskipti
Forvörn gegn
bláæðasegareki
(VTEp) eftir
valfrjáls
mjaðmarliðskipt
Forvörn gegn heilaslagi og
segareki í slagæð hjá sjúklingum
með gáttatif sem ekki tengist
hjartalokusjúkdómum
(NVAF)
1. Samantekt á eiginleikum lyfs - Eliquis®
PP-ELI-NOR-2068 / PP-ELI-DNK-0472 / PFI-23-10-01 Október 2023
Heimildir
1. Gunnarsdottir SA, Olsson R, Olafsson S, et al. Liver cirrhosis in
Iceland and Sweden incidence, aetiology and outcomes. Scand J
Gastroenterol 2009; 44: 98493.
2. Olafsson S, Rögnvaldsson S, Bergmann OM, et al. A nationwide
populationbased prospective study of cirrhosis in Iceland. JHEP
Rep 2021; 3: 100282.
3. Olafsson S, Fridriksdottir RH, Love TJ, et al. Cascade of care during
the first 36 months of the treatment as prevention for hepatitis C
(TraP HepC) programme in Iceland: a populationbased study.
Lancet Gastroenterol Hepatol 2021; 6: 62837.
4. Björnsson ES, Johannsson A, Sigurdarson SS, et al. Development
of severe alcohol related liver disease over four decades in Iceland:
impact of increased access and use of alcohol. Scand J Gastroenterol
2023; 8: 111.
5. Babor TF, Casswell S, Graham K, et al. Alcohol: No Ordinary
Commoditya summary of the third edition. Addiction 2022; 117:
302436.