Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.11.2023, Side 12

Læknablaðið - 01.11.2023, Side 12
496 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 R A N N S Ó K N að ganga yfir.6 Meðferð með þessum efnum víkur frá hefð­ bundinni lyfjameðferð geðraskana á þann hátt að efnin eru einungis tekin inn í eitt eða örfá skipti samhliða því að fræðsla á að vera veitt í aðdraganda meðferðar og samtalsmeðferð eða stuðningur veittur á meðan áhrifin ganga yfir og að því loknu. Því er um að ræða meðferð á rannsóknarstigi með hug­ víkkandi ofskynjunarefnum samhliða samtalsmeðferð eða stuðningsmeðferð (psychedelic assisted psychotherapy) þar sem meðferðin samanstendur af undirbúningsfasa, inntökufasa þar sem efnið er tekið inn undir eftirliti meðferðaraðila og úrvinnslufasa þar sem unnið er úr upplifunum fólks í samtöl­ um.7 Umræða í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum um efnin hefur aukist samhliða fréttum af mögulegum meðferðarávinningi þeirra. Ekkert þeirra hefur þó enn hlotið markaðsleyfi til með­ ferðar í Bandaríkjunum eða Evrópu. Reynsla þeirra sem taka vaktir og sinna ráðgjöf fyrir Geðþjónustu Landspítala bendir til að útbreiðsla notkunar efnanna sé talsverð í samfélaginu, þótt notkun þeirra í meðferðartilgangi hafi ekki enn mætt þeim skilyrðum sem gerð eru til þess að þessi efni hljóti mark­ aðsleyfi sem lyf.8 Það er því viðbúið að heilbrigðisstarfsfólk á stofu, bráðamóttökum og legudeildum komi að því að sinna skjólstæðingum sem hafa notað efnin eða hafa áhuga á því. Þekking og viðhorf fagfólks á hugvíkkandi efnum hefur verið athuguð í nokkrum erlendum rannsóknum.9­13 Í ljósi aukinnar umræðu og nokkurrar útbreiðslu notkunar hugvíkkandi efna úti í samfélaginu, töldum við mikilvægt að safna upplýsingum um viðhorf fagaðila til efnanna, ásamt því að skoða hversu vel fagaðilar telja sig þekkja slík efni, virkni þeirra og hugsanlegan meðferðarárangur. Einnig er áhugavert að kanna hugmyndir heilbrigðisstarfsfólks um veitingu slíkrar meðferðar, það er, hvar og hvernig ætti að veita hana, hverj­ ir ættu að sinna því og hvar þjálfun fagfólks væri best fyrir komið, ef til þess kæmi að meðferð með efnunum yrði veitt. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar við skipulag þjónustu síðar meir, hljóti einhver þessara efna markaðsleyfi á næstu árum. Þótt notkun efnanna í meðferðartilgangi sé alls ekki tímabær, geta þessar upplýsingar nýst þegar fram í sækir og eflt faglega umræðu um efnin. Með þetta í huga, var vefkönnun fram­ kvæmd meðal félaga í fagfélögum geðlækna, heimilislækna og sálfræðinga þar sem félögum á skrá var boðið að svara spurn­ ingalista á netinu. Í þessari grein eru svör greind við spurn­ ingum um þekkingu á alls níu tegundum efna sem almennt eru talin til hugvíkkandi ofskynjunarefna, viðhorf til meðferð­ ar með hugvíkkandi sveppum, um eðli, útfærslu og þjálfun ef slík meðferð yrði veitt, hugsanlegar hindranir við að veita slíka meðferð ásamt spurningum um hvað helst hafi mótað afstöðu svarenda og hvað þeir helst vilji fræðast um frekar. Efni og aðferðir Þátttakendur Þátttakendur voru alls 256, og svöruðu 177 sálfræðingar, 38 geðlæknar og 41 heimilislæknir könnuninni, sem er um 27% sálfræðinga, 58% geðlækna og 18% heimilislækna miðað við skráða starfandi félagsmenn í fagfélögum þeirra þegar könnunin var gerð. Helstu bakgrunnsupplýsingar úrtaksins eru birtar í töflu I. Meirihluti geðlækna og heimilislækna voru karlar, en konur voru í meirihluta svarenda úr hópi sálfræðinga. Langflestir í úrtaki rannsóknarinnar sögðust annaðhvort sinna skjólstæðingum eldri en 18 ára eða skjól­ stæðingum á öllum aldri. Spurningalisti Vefkönnunin innihélt 21 spurningu og voru sumar þeirra í nokkrum liðum. Bakgrunnsspurningar voru 7 og var meðal annars spurt um kyn, aldur, tímalengd starfsleyfis og á hvaða sviði það væri ásamt spurningum um eðli starfs svarenda, en einnig var spurt hvort svarendur hefðu fengið spurningar um meðferð með hugvíkkandi efnum í starfi sínu og hvort þeir hefðu hitt einhvern undir áhrifum þeirra (sjá töflu I). Alls voru 14 spurningar um reynslu, þekkingu og viðhorf til mismun­ andi tegunda hugvíkkandi efna, með áherslu á psilocýbín, og um mat svarenda á eðli og fyrirkomulagi meðferðar með slíkum efnum ef til þess kæmi. Einnig var spurt hvert svar­ endur hefðu sótt þekkingu sína á efnunum og hvort þörf væri á viðbótarfræðslu um efnin og notkun þeirra og þá um hvað helst. Spurningar um hugvíkkandi efni byggðu á sambærilegri könnun rannsakenda við Center of Psychedelic & Concious­ ness Research við Johns Hopkins­sjúkrahúsið í Bandaríkjun­ um, að fengnu góðfúslegu leyfi þeirra. Spurningalistann er hægt að nálgast hjá höfundum greinarinnar. Framkvæmd Í samráði við stjórn fagfélaga geðlækna, heimilislækna og sál­ fræðinga, var kynning á könnuninni send út í tölvupósti til allra skráðra félagsmanna þar sem viðtakendum var boðið að taka þátt og gátu þeir svarað könnuninni í gegnum krækju í kynningarpóstinum. Könnunin var opin frá 3. til 29. maí 2022 og áminning send út í eitt skipti á þessu tímabili. Framkvæmd rannsóknarinnar var tilkynnt til Persónuverndar en vísinda­ siðanefnd taldi framkvæmd hennar ekki vera háða leyfi frá sér þar sem unnið yrði með ópersónugreinanleg gögn. Úrvinnsla gagna Svarmöguleikum var slegið saman í nokkrum spurningum vegna svardreifingar og úrtaksstærðar. Til dæmis var svar­ möguleikum fækkað úr fimm í þrjá í spurningum um þekk­ ingu á mismunandi tegundum hugvíkkandi efna, um viðhorf til hugvíkkandi sveppa og lögleiðingar, um helstu hindranir við að veita slíka meðferð og um mikilvægi sálfræðimeðferðar. Munur í svörum milli fagstétta var metinn með Fisher­prófi. Úrvinnsla gagna fór fram í SPSS, útgáfu 28.0. Niðurstöður Bakgrunnur og starfsvettvangur svarenda Svarendur úr röðum sálfræðinga voru að jafnaði yngri en úr hópi geðlækna og heimilislækna, 46,9% sálfræðinga voru á aldrinum 20 til 40 ára en 13,1% geðlækna og 14,6% heimilislækna (tafla I). Sömu sögu er að segja um lengd starfs­ leyfis þar sem 58,2% sálfræðinga höfðu haft starfsleyfi í 10 ár eða skemur, en 34,2% geðlækna og 22% heimilislækna. Algengara var að geðlæknar hefðu haft kynni af fólki und­

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.