Læknablaðið - 01.11.2023, Síða 21
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 505
S J Ú K R A T I L F E L L I O G Y F I R L I T
með belg og gjörgæslan var kölluð til. Hún fékk aciclovir 180
mg i æð til að meðhöndla mögulega Herpes simplexveirusýk
ingu.
Það vaknaði grunur um krampa þegar hún var með inn
snúna ökkla og úlnliði og augu leituðu upp. Hún var því svæfð
og barkaþrædd á staðnum. Blóðprufur sýndu hvít blóðkorn
19 x 109/L og voru kleyfkirningar 15 x 109/L, CRP mældist 104
mg/L. Tölvusneiðmynd af höfði sýndi ekki bráðar breytingar.
Á gjörgæsludeild var gerð mænuvökvaástunga og þrýstingur
mældist mjög hár, um 40 cmH20. Mænuvökvinn var skýjað ur
með hækkun á hvítum blóðkornum 347 x 106/L, þar af voru
80% kleyfkirningar. Einnig var hækkun á próteinum 1045
mg/L (viðmiðunargildi 200500 mg/L). Blóðsykur mældist 7,8
mmól/L, glúkósagildi í mænuvökva var 3,5 mmól/L, hlutfall
0,44 (eðlilegt hlutfall 0,50,8).6 HraðPCR (FilmArray) úr mænu
vökva var jákvætt fyrir Streptococcus pneumoniae sem seinna
ræktaðist úr bæði blóði og mænuvökva. Einnig var hún með
rhinoveiru í nefkoksstroki. Meðferð var haldið áfram með
ceftriaxone 100 mg/kg einu sinni á sólarhring ásamt dexa
methasone. Á gjörgæsludeild var stúlkan svæfð i tvo sólar
hringa. Segulómun af heila sýndi ekki sjúklegar breytingar.
Tveimur dögum eftir innlögn var ástand stúlkunnar batn
andi. Hún var tekin af öndunarvél og færð yfir á Barnaspít
ala Hrings ins. Í ljós kom að meinvaldurinn var fjöl ónæmur
(ónæmi fyrir þremur sýklalyfjaflokkum) Streptococcus pneumon-
iae, hjúpgerð 6C.
Stúlkan útskrifaðist frá Barnaspítalanum sex dögum eft
ir komu og lauk ceftriaxonemeðferð á sjúkrahúsi í hennar
heimabæ, samtals tveggja vikna meðferð. Tæplega mánuði eftir
útskrift af Barnaspítala Hringsins var hún byrjuð aftur í dag
gæslu og albata án fylgikvilla sýkingarinnar.
Umræður
Á árunum 1975 til 2011 greindust 47 börn eldri en eins mánað
ar á Íslandi með heilahimnubólgu af völdum S. pneumoniae
samkvæmt gagnagrunni sýkla og veirufræðideildar Landspít
ala, eða 1,6/100.000 börn á ári á meðaltali. Faraldsfræði fyrir
árin 19752000 var lýst í grein í Læknablaðinu árið 2002.7 Við
höfum því borið saman nýgengi heilahimnubólgu hjá börnum
eins mánaða til átján ára árin 20012011 og 20122022, sem eru
11 ár fyrir og eftir að bólusetning gegn pneumókokkum varð
hluti af barnabólusetningum á Íslandi. Frá 20012011 greindust
14 börn, eða 1,6/100.000 börn á meðaltali árlega. Eftir 2011 hafði
fjöldi ífarandi sýkinga af völdum pneumókokka farið lækkandi
og hafa 7 börn, eða 0,78/100.000 börn, að meðaltali greinst með
heilahimnubólgu af völdum pneumókokka á ári frá 2011 til
2022 (mynd 1). Frá 2017 til mars 2022 voru hins vegar engin til
felli heilahimnubólgu af völdum baktería hjá börnum á Íslandi.
Þetta er athyglisverður árangur, ekki síst þar sem eingöngu
börn fædd 2011 og síðar eru bólusett. Einnig þarf að hafa í
huga að nýgengi smitsjúkdóma lækkaði almennt i SARSCoV2
faraldrinum8 og mögulegt að þetta hafi einnig haft áhrif á ný
gengi heilahimnubólgu.9,10 Frá mars 2022 hafa hins vegar sex
börn greinst með heilahimnubólga af völdum baktería, þar af
þrjú með pneumókokka, allt hjúpgerðir sem ekki eru í bóluefn
inu. Samtals sjö tilfelli af pneumókokkaheilahimnubólgu hafa
greinst síðan 2011 og öll af völdum hjúpgerða sem voru ekki í
bóluefninu. Þessar breytingar á Íslandi samræmast þróun sem
lýst hefur verið bæði i Evrópulöndum og Bandaríkjunum þar
sem bóluefnishjúpgerðum hefur verið nánast útrýmt en aðrar
hjúpgerðir hafa komið í staðinn.35 Tíu árum áður en bólusetn
ing hófst voru hjúpgerðir 14, 7F og 23F algengustu meinvaldar
og orsökuðu um 64% af öllum tilfellum heilahimnubólgu hjá
börnum (sýkla og veirufræðideild Landspítala). PHiDCV10
bóluefnið sem notað var á Íslandi innihélt allar þessar þrjár
hjúpgerðir og síðan 2011 hefur engum tilfellum af heilahimnu
bólgu sem orsakast af þessum hjúpgerðum verið lýst á Íslandi.
Í staðinn er hjúpgerð 19A, sem ekki er í PHiDCV10 bóluefn
inu, orðin algengust með þrjú tilfelli af sjö síðustu tíu árin
(mynd 2)
Af hjúpgerðum á mynd 2a eru 14, 7, 23F og 6B í PHiDCV
10. Af hjúpgerðum á mynd 2b er 19A í 13 gilda bóluefninu
(PCV13) og 19A og 22F í 15 gilda bóluefninu (PCV15) sem síð
an 2023 er í notkun hér á landi. Aðrar hjúpgerðir eru i hvorugu
bóluefninu.
Ef blóðsýkingum er bætt við hafa bólusetningarhjúpgerðir
orsakað samtals 8% af ífarandi sýkingum hjá börnum síðan
2011 á móti 81% fyrir árið 2011. Af þessum er hjúpgerðin 19A
meinvaldur í 36% tilfella.
Mynd 1. Tilfelli heilahimnubólgu af völdum pneumókokka hjá börnum árin 2001-2022, alls 21. Fyrir bólusetningu 14, eftir bólusetningu 7.