Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2023, Síða 31

Læknablaðið - 01.11.2023, Síða 31
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 515 „Þetta hefur heilmikla þýðingu,“ segir Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, yfir læknir ónæmisfræðideildarinnar. Deildin sé nú í hópi stofnana víða um heim sem hafa verið valdar önd­ vegismiðstöðvar, Center of Excellence, af Alþjóðaofnæmisstofnuninni, World Allergy Organization. „Þetta er ákveðin viðurkenning á því að við stöndum fyrir gæðum í klínískri þjónustu við sjúklinga, í rannsóknum, kennslu og ákveðinni þróun og nýsköpun,“ segir hún. „Þessi viðurkenning getur hjálpað okkur í alþjóðlegu samstarfi, í vís­ indasamstarfi og við kennslu og nám nemenda sem vonandi fara í ofnæm­ is­ og ónæmislækningar,“ segir hún. „Þetta auðveldar okkur að leita til annarra áþekkra stofnana um sam­ starf,“ segir hún og að innan þeirra sé hvatt til samstarfs ungs vísinda­ fólks. Sigurveig segir félag íslenskra ofnæmis­ og ónæmislækna vera aðila að þessum alþjóðasamtökum. Þau hafi séð ávinning og líkur á því að fá gæðastimpilinn og sótt um. „Við erum mjög stolt af þessu,“ segir Sigurveig, sem hefur frá síð­ ustu áramótum verið yfirlæknir deildarinnar. Fyrirrennarar hennar, Helgi Valdimarsson og Björn Rún­ ar Lúðvíksson, hafi unnið mikið og merkilegt starf, hlúð að vísindum og menntun og mannað deildina góðu vísindafólki með þessum árangri. Sigurveig er þar öllum hnútum kunnug enda hefur hún unnið þar frá árinu 1991. „Það hefur heilmikið breyst á þeim tíma. Ónæmisfræðin hefur þró­ ast mikið og þekking á ónæmiskerf­ inu vaxið gífurlega. Nú skoðum við boðefni og yfirborðssameindir sem við vissum ekki að væru til fyrir 10­ 20 árum síðan. Við greinum frumur mikið nákvæmar og sjáum samhengi milli þeirra og sjúkdóma,“ segir hún. „Það er svo dásamlegt að upplifa tíma þar sem farið er að framleiða einstofna mótefni gegn ákveðnum frumum eða sameindum sem hrein­ lega lækna sjúkdóma sem áður gerðu fólk að öryrkjum.“ En bjóst hún við svona hraðri þróun þegar hún byrj­ aði og að henni fleygði áfram svona hratt fram? „Já, þróunin verður áfram svona hröð og nei, ég hugsaði ekki svona langt þegar ég byrjaði hér. Alls ekki,“ segir hún róleg. „Við vitum ekki hvað bíður okkar í framtíðinni. Ég tel þó að þessi þróun haldi áfram og að meðferð við mörgum sjúkdóm­ um verði persónubundin. Meðferðir verða sérsniðnar að hverjum og ein­ um í meira mæli.“ Ónæmisfræðideild Landspítala fær alþjóðlegan gæðastimpil Alþjóðaofnæmisstofnunin hefur veitt ónæmisfræðideild Landspítalans viðurkenningu fyrir gæði „Siðanefnd Alþjóðalæknafélagsins setur sig al­ gjörlega á móti dauðarefsingum,“ segir Steinunn Þórðardóttir, formaður LÍ og siðanefndar Al­ þjóðalæknafélagsins, WMA. Hún sótti árlegan aðalfund WMA í Kigali í Rúanda dagana 4.­7. október síðastliðinn. Fulltrúar 49 landslækna­ samtaka um allan heim sóttu fundinn. Stjórn Alþjóðalæknafélagsins fordæmdi lög­ gjöf í Úganda þar sem samkynhneigð er ólögleg og varðar dauðarefsingu. „Löggjöfin er skelf­ ing,“ segir Steinunn. Kallað var eftir vopnahléi í Súdan og fordæmt að sjúkrabílar í Íran væru notaðir í annarlegum tilgangi. Stærst mála á fundinum var þó að Alþjóða­ læknafélagið fordæmdi framferði kínverskra yf­ irvalda gegn Úígúrum, múslimsk um minnihluta í Xinjiang­héraði. Þar hafi læknum verið beitt til að framkvæma þungunarrof og ófrjósemisað­ gerðir til að koma í veg fyrir barneignir innan hópsins. Í ályktuninni var einnig endurtekið ákall mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna frá miðju ári 2019 um að óháðum alþjóðlegum eftirlitsaðilum verði hleypt á svæðið. Steinunn stýrði sínum öðrum fundi sem formaður siðanefndar félagsins. „Þessi samtök eru stofnuð eftir seinni heimsstyrjöldina vegna stríðsglæpa sem læknar frömdu. Við Íslendingar viljum vera aðilar að því samtali og taka þátt í að móta siðferðisgrundvöll lækna um allan heim.“ Steinunn segir stuðningsnet lækna afar mik­ ilvægt. Vegið sé að læknafélögum víða um heim. „Formaður tyrkneska læknafélagsins var til að mynda handtekin í kjölfar útvarpsviðtals. Þá hafa stjórnvöld í Ísrael þjarmað að læknafélaginu þar.“ Læknar þurfi sterkt bakland. „Alþjóðasam­ starf er styrkur fyrir lækna um allan heim.“ Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítala, og fyrirrennari hennar í starfi og nú framkvæmdastjóri klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu, Björn Rúnar Lúðvíksson. Mynd/gag Mannréttindi í brennidepli í Rúanda Formaður LÍ stýrði árlegum fundi siðanefndar Alþjóðalæknafélagsins Formenn norrænu læknafélaganna. Anne-Karin Rime, frá því norska, Sofia Rydgren Stale, formaður þess sænska, Camilla Noelle Rathcke, formaður þess danska, Niina Koivuviita, for- maður finnska, og Steinunn Þórðardóttir, formaður LÍ.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.