Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 33
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 517 Eflaust hafið þið mörg lesið bókina This is going to hurt eftir breska lækninn Adam Kay. Bókin fjallar um veruleika ungs læknis í breska heilbrigðiskerfinu, NHS. Við fylgjum Adam í gegnum sér­ nám þangað til hann er alveg kominn að því að verða sérfræðingur. Frásögnin er uppfull af svörtum húmor og stundum óþægilega kunnugleg. Það sem skín í gegn er ástríða og skyldurækni Adams gagnvart starfinu, sama hvað á dynur – eða allt þar til í lokakaflanum. Á þessum nótum þá er ég starfsmað­ ur í íslensku heilbrigðiskerfi. Mér finnst starfið sem læknir allt í senn heillandi, skemmtilegt og gefandi. Þungamiðjan eru samskipti við fólk, bæði sjúklinga og samstarfsfólk, og það að vera sífellt að læra eitthvað nýtt. Starfið býður líka upp á ótal möguleika, til að mynda klínísk störf, rannsóknir, kennslu og stjórnun. Í einu orði sagt, spennandi! Starfið er sömuleiðis fullt af áskor­ unum til að takast á við, en sumar gera mér þó erfitt um vik. Ég get til dæmis ekki sett mörk um mína vinnu eða hvað ég sinni mörgum verkefnum. Það fer allt eftir flæðinu og flæðið er duttlungafullt. Því fleiri sjúklingar, því meiri ábyrgð sem fellur okkur í fang. Mönnunin er hins vegar alltaf sú sama óháð fjölda sjúklinga. Þegar læknar fóru í verkfall 2015 kom raunar í ljós að skilgreind neyðarmönnun í verkfalli var betri held­ ur en grunnmönnun á tilteknum deild­ um. Umhugsunarvert. Ég hef heldur ekki stjórn á eigin vinnuaðstæðum eða umhverfi sjúklinga. Samkvæmt lögum er mér skylt að veita fullkomnustu meðferð sem völ er á en aðstæður bjóða ekki alltaf upp á það. Nýlegt dæmi er háaldraði sjúklingurinn minn sem fyrir furðulegar sakir lenti í Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. óráði verandi á ganginum á bráðamót­ tökunni. Hann var líka búinn að bíða í eitt ár eftir liðskiptaaðgerð. Hugmyndir hans í óráðinu sneru fyrst og fremst að því að ríkisstjórnin viðhefði samsæri gegn honum. Það er áliðið nætur á vakt­ inni og ég treysti mér ekki til að meta hvort það sé ranghugmynd eða ekki, löngu búin að týna minni dægursveiflu og dómgreind. Er ekki eitthvað til í því að biðlistar séu pólitísk ákvörðun? Kannski ekki óráð eftir allt saman. Eftir stendur að ég er starfsmaður í þessu kerfi, rétt eins og Adam var. Sér­ námslæknir, nánar tiltekið. Fyrir tveim­ ur árum sendi Félag almennra lækna frá sér könnun um starfsánægju sérnáms­ lækna á Landspítala. Niðurstöður sýndu að 43,5% almennra lækna á Landspítala höfðu oft eða mjög oft upplifað einkenni kulnunar síðustu 12 mánuði á undan og 25% voru frekar eða mjög sammála að hafa íhugað alvarlega að fara í veik­ indaleyfi. Þessar tölur valda áhyggjum og fá mann til að staldra við. Af hverju leiðir þetta starf, sem getur líka veitt manni svo mikla ánægju, til kulnun­ ar? Óánægja sérnámslækna virðist enn fremur ekki vera einangrað vandamál, heldur miklu frekar ein birtingarmynd á djúpstæðum vanda heilbrigðiskerfisins. Læknafélag Íslands hefur margsinnis bent á vandann og svona tölur ættu að hvetja okkur til aðgerða og breytinga. Mig langar að starfa í íslensku heil­ brigðiskerfi í framtíðinni en stundum er erfitt að taka upp hanskann og standa með kerfinu. Þið sem þekkið mig vitið líka að ég er fingurköld og þjáist af Raynaud’s svo hanskaleysið kemur sér illa. Mönnun lækna er þegar orðin stór áskorun og verður ekki bara leyst með því að fjölga læknanemum heldur þarf LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna Sólveig Bjarnadóttir, Teitur Ari Theódórsson Félag íslenskra heimilislækna Margrét Ólafía Tómasdóttir, Oddur Steinarsson Félag sjúkrahúslækna Theódór Skúli Sigurðsson, Magdalena Ásgeirsdóttir Læknafélag Reykjavíkur Ragnar Freyr Ingvarsson, Katrín Ragna Kemp Steinunn Þórðardóttir formaður Stjórn Læknafélags Íslands Hanskaleysi í íslensku heilbrigðiskerfi að hlúa að þeim læknum sem eru hér við störf og gera störfin aðlaðandi. Á þeim nótum er lausnin heldur ekki fólgin í opnum vinnurýmum á nýjum Landspít­ ala heldur verður það sennilega náðar­ högg. Nýlega tók til starfa innan heilbrigð­ isráðuneytis starfshópur um framtíð læknisþjónustu á Íslandi með aðkomu Læknafélagsins. Hópnum er falið að fjalla um mönnun læknisþjónustu og skila fyrstu tillögum fyrir áramót. Jafn­ framt hefur Landspítali verið að vinna að því að innleiða starfsáætlanir fyrir sérfræðilækna til að tryggja að þeir geti nýtt sína þekkingu til fulls og fái svig­ rúm til að sinna öllum þáttum starfsins. Læknafélagið bindur miklar vonir við þessa vinnu en meira þarf til. Setja þarf mörk um álag, skilgreina betur störf lækna, skapa viðunandi starfsaðstæður, huga að styttingu vinnuvikunnar og öðrum umbótum, og ég hef fulla trú á að það sé hægt! Það er enda margt í húfi – þar á meðal hanskarnir. Sólveig Bjarnadóttir sérnámslæknir í almennum lyflækningum, formaður Félags almennra lækna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.