Læknablaðið - 01.11.2023, Page 34
518 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
V I Ð T A L
„Það væri gaman að geta tengt þessar
rannsóknir okkar á stofnfrumuígræðsl
um við Ísland. Draumurinn væri að
geta boðið íslenskum sjúklingum þessar
meðferðir í framtíðinni,“ segir Arnar
Ástráðsson heila og taugaskurðlæknir.
Rannsóknarteymi hans við Harvard,
undir stjórn Ole Isacson, stefnir að því
að prófa þessa stofnfrumumeðferð á
mönnum á nýju ári í Boston.
Ævintýramennska og útþrá hafa nú
dregið Arnar til NýjaSjálands. Hann
hefur starfað sem læknir á erlendri
grundu í um aldarfjórðung og verður
næstu mánuði á Wellingtonsjúkrahús
inu. Þá snýr hann aftur til Danmerkur
sem sérfræðingur á Ríkisspítalanum í
Glostrup við Kaupmannahöfn. Hann úti
lokar ekki fleiri ferðir til NýjaSjálands
og er nú á leið inn í sumarið á sama tíma
og veturinn geisar hér heima. Draumur
inn er að koma einn daginn heim.
„En nóg er af heila og taugaskurð
læknum á Íslandi eins og er,“ segir
Arnar sem hefur gert yfir 2500 aðgerðir
erlendis og lauk doktorsprófi frá Kaup
mannahafnarháskóla 2018. Spurður um
þróunina á þessum tíma segir hann
skurðaðgerðirnar hafa orðið flóknari
með betri þjálfun og meiri kröfum. Þá
hafi tækninni fleygt fram.
„Aðgerðasmásjár eru til dæmis orðn
ar fullkomnari og myndgreiningartengd
leiðsögukerfi sem bæta nákvæmni við
heilaaðgerðir hafa komið til sögunnar.“
Miklu færri komast að en vilja í rannsókn þar sem stofnfrumum er sprautað í heila
Parkinson-sjúklinga. Rannsókninni verður hrundið af stað í Boston í Bandaríkjunum í
byrjun næsta árs, segir Arnar Ástráðsson heila- og taugaskurðlæknir. Hann hefur síðustu
17 ár unnið með rannsóknarteymi Harvard að stofnfrumuígræðslum. Teymið hefur þegar
læknað apa af Parkinson og stefnir nú að því að ná sama árangri hjá mönnum
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Við stefnum að því að
lækna Parkinson“
Hann var síðast í sex ár í Árósum í Dan
mörku áður en hann flaug hinum megin
á hnöttinn í haust. Hver er munurinn?
„Mikil sérhæfing er í Danmörku,“
segir Arnar og þar hafi hann aðallega
gert aðgerðir við vatnshöfði, heilaáverk
um og á hrygg. „En hér á NýjaSjálandi
eru færri sérfræðingar á íbúatölu og
læknar þurfa því að vera færir í öllu. Hér
er því mikið af flóknum aðgerðum, svo
sem heilaæxli í höfuðkúpubotni, sem ég
geri hér, en gerði ekki í Danmörku.“
Vildi lækna systkini sitt
Arnar lýsir því að upphaflega hafi hann
ekki ætlað sér að verða læknir. Tón
list eða arkitektúr hafi einnig komið til
greina.
„En það var út af systur minni sem
var mjög fötluð eftir heilaskaða við
fæðingu sem mig langaði að geta hjálp
að fólki eins og henni,“ lýsir Arnar og
hvernig hann hafi fengið þá köllun eftir
stúdentspróf.
Ásdís Jenna lifði síðasta ár sitt sem
Blær Ástríkur og skráði sig karlkyns.
Hún var landsþekkt og barðist fyrir
réttindum fatlaðra, þremur árum yngri
en Arnar og lést í janúar 2021. „Hún
var margslunginn persónuleiki og fyrir
okkur sem elskuðum hana verður hún
alltaf Ásdís Jenna,“ segir Arnar sem fór í
læknisfræði til að geta gert við heilann.
„Þá þurfti ég að fara í heilaskurð
lækningar. Það hefur átt hug minn allan
og tekið megnið af mínum tíma,“ segir
Arnar sem er auk þess með undirsér
menntun frá Oxford í djúpkjarnaaðgerð
urm, rafskautameðferð, við Parkinson.
„Ásdís Jenna fæddist sjö vikum
fyrir tímann, fékk fyrirburagulu og
heilaskaða í kjölfarið og gat ekki stjórn
að útlimum almennilega. Hún átti erfitt
með tal en var með fulla greind. Mér
fannst alltaf erfitt að horfa upp á systur
mína og sá fyrir mér að hægt væri að
gera við heilann í henni. Það var tak
markið mitt en því miður kom andlátið
í veg fyrir að við gætum farið alla leið
með þá meðferð, en hún fékk þó aðra
meðferð,“ segir hann.
„Hún fór tvisvar í heilaskurðað
gerð þar sem græddir voru rafvírar
við djúpkjarnaaðgerð í heilann sem
hjálpuðu við að ná stjórn á ofhreyf
ingum og stífni líkamans. Takmarkið
var heilafrumuígræðsla sem ekki varð
af,“ segir Arnar sem hefur síðustu 17
ár rannsakað heilafrumuígræðslu fyrir
Parkinsonsjúklinga í rannsóknarteymi
frá Harvard.
„Parkinsonsjúkdómur er líka hreyfi
röskun sem á sér stað í djúpkjörnum
heilans. Sú meðferð nýtist því örugg
lega einnig þeim sem glíma við skylda
sjúkdóma.“ Arnar er sonur Ástráðs B.
Hreiðarssonar læknis og Ástu Bryndísar
Þorsteinsdóttur hjúkrunarfræðings.
„Ég held ekki að ég hafi farið í lækn