Læknablaðið - 01.11.2023, Side 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 533
Af hverju vildir þú verða læknir?
Ég var uppátækjasamur krakki með afsláttarkort á slysa og
bráðamóttökunni og mig grunar að áhuginn hafi kviknað þar
þegar mér var lappað saman af umhyggjusömu og skemmti
legu heilbrigðisstarfsfólki.
Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?
Doktorsnámið hefur verið skemmtilegt og það eru forréttindi
að fá tækifæri til að rannsaka efniviðinn en þetta hefur verið
mjög krefjandi. Ég hef unnið að þessu í 8 ár í hlutastarfi sem
frítíma og myndi segja 10 af 10. Á rannsóknarstofunni þurfa
doktorsnemar að vinna allar tilraunir sjálfstætt frá grunni og
verið þolinmæðisvinna að setjast aftur á skólabekk. Það sem
hefur drifið mig áfram er viljinn að klára rannsóknirnar á
sýnum frá íslenskri fjölskyldu sem var viðfangsefnið í tveim
ur af fjórum verkefnum.
Hvað er framundan í námi og starfi?
Ég ætla að njóta þess að geta einbeitt mér að því að þróa starf
semi barnamóttökunnar í Landskrona. Ég kláraði verkefnin í
doktorsnáminu og allar fjórar vísindagreinarnar höfðu verið
birtar fyrir doktorsvörn þannig að vinnunni í hópi prófessors
Diönu Karpman er lokið en framtíðin í rannsóknum er
óráðin.
Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?
Vinna að því að auðvelda aðgengi að heilbrigðisþjónustu og
bestu fáanlegu meðferðum. Koma á fót ríkisstyrktu styrkja
kerfi að fyrirmynd Svíþjóðar til að efla rannsóknarstörf heil
brigðisstarfsfólks. Gera doktorsverkefni frá Háskóla Íslands
aðgengileg í rafrænu formi fyrir áhugasama.
Hvaða bók, þættir, músík, líkamsrækt er best?
Uppáhaldsbókin er Babettes gæstebud eftir Karen Blixen.
Bestu þættirnir eru Fólkið í blokkinni. Besta músík er tónlist
góðra minninga frá menntaskólaárunum. Mér var sendur
slíkur spotifylisti fyrir doktorsvarnarpartíið og nota hann
áfram til að koma mér í gang á morgana. Fjallgöngur, nátt
úruhlaup, sjóböð og skíði eru mín vítamínsprauta.
Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?
„Fredagsmys“ eða kósýkvöld með fjölskyldunni og cava stund
með mömmu eða í góðra vina hópi.
Doktorsvörn frá Háskólanum í Lundi
Sigríður Sunna Aradóttir
Hvað segir nýdoktorinn?
Sigríður Sunna Aradóttir varði doktorsritgerð sína í lækna
vísindum við læknadeild Háskólans í Lundi þann 13. október
síðastliðinn. Ritgerðin ber heitið: Magnakerfis-miðlaðir nýrna-
sjúkdómar: Arfgerð, svipgerð og rannsóknir á hemjandi meðferð
(Complementmediated kidney diseases: Genotype, phenotype
and inhibition studies).
Andmælandi var Sally Johnson, sérfræðingur í barnanýrna
lækningum Háskólasjúkrahúsinu Newcastle. Sally Johnson fer
fyrir nefnd sem stýrir meðhöndlun með magnakerfishemlum
í Bretlandi. Í matsnefnd voru dósentarnir Nadine Gretenkort,
Háskólanum Lundi, Maria Rasmussen, Háskólanum Suður
Danmörku, og Charlotte Dahle, Háskólanum Linköping. Aðal
leiðbeinandi var prófessor Diana Karpman og meðleiðbeinandi
Zivile Bekassy, dósent, Háskólanum Lundi.
Úr ágripinu
Markmið doktorsverkefnisins var að lýsa sjaldgæfum erfða
breytileika í magnakerfinu og athuga orsakasamhengi við
magnakerfismiðlaða nýrnasjúkdóma. Nýtt meðferðarúrræði
var athugað. Niðurstöður doktorsverkefnisins eru eftirfarandi:
• Þrátt fyrir að stökkbreyting í geni leiði til próteins sem valdi
hömlulausri virkjun magnakerfisins og orsakasamband sé
skýrt, þá eru þessar stökkbreytingar áhættuþáttur og samspil
fleiri þátta ákveður þróun sjúkdóms.
• Magnakerfishemillinn danicopan hindrar ofvirkni magnakerf
isins í sermi sjúklinga með faktor B stökkbreytingu.
• Hlutverk „faktor Hrelated 5“ próteinsins er mögulega að vera
hemill á magnakerfismiðluðu blóðrauðalosi og stökkbreytingar
sem leiða til skorts á FHR5 eru mögulegur áhættuþáttur fyrir
magnakerfis miðluðum nýrnasjúkdómum.
Doktorinn
Sigríður Sunna Aradóttir er stúdent af náttúrufræðibraut MR.
Hún stundaði læknanám við Kaupmannahafnarháskóla og
lauk þaðan embættisprófi 2007. Hún lauk sérnámi í barnalækn
ingum árið 2015 frá Háskólasjúkrahúsinu Skáni í Svíþjóð og
í barnanýrnalækningum árið 2021. Hún býr ásamt sambýlis
manni og tveimur börnum í Malmö og starfar sem yfirlæknir á
barnasviði á Sjúkrahúsinu í Helsingborg.
Doktorsritgerðin er aðgengileg hér: https://portal.research.
lu.se/sv/persons/sunnaaradottir