Læknablaðið - 01.11.2023, Page 51
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 535
Krister Blær Jónsson
Dagur í lífi sérnámsgrunnslæknis
Vakna 6:50, teygi mig yfir á náttborðið
og slekk á vekjaraklukkunni. Kveiki á
Rás 1 í sömu hreyfingu, Morgunvaktin.
Snooza fram yfir morgunfréttir og stekk
svo fram úr.
Vigta kaffibaunir, skelli þeim í
kvörnina og mæli vatnið í réttu hlutfalli
(1g:16ml). Set svo nýmalaðar baunirnar
í kaffivélina og kveiki. Örstutt sturta á
meðan kaffið mallar. Drekk morgunboll
ann og hlusta áfram á útvarpið, kem mér
að lokum fyrir í hægindastól á meðan
kærastan klárar að gera sig til.
Leggjum saman af stað í Fossvoginn
7:40. Ég stekk út og hún heldur áleiðis á
lögmannsstofuna. Tek lyftuna upp á 7.
hæð, mér verður starsýnt út um lyftu
gluggann og sé stigann hæðast að mér á
meðan ég lyftist upp. „Tek hann kannski
á morgun,” hugsa ég með mér.
Fer í Landspítalanáttfötin, lyflækninga
hvítur frá toppi til táar (í stíl við kloss
ana), næli mér í kaffibolla og kem mér
fyrir í Blásölum, klukkan er 8:03. Med
isín. Fragtflutningaskip Landspítala. Hér
er ég bara kandídat á plani. Kemst að
því hvort að plan dagsins standist, fæ ég
sama teymi og í gær? Jú, heppnin er með
mér í dag.
Labba niður á deild og finn höktandi
sýndartölvu, kynni mér nýju sjúklingana
og allt sem hefur gerst hjá þeim eldri.
Geng stofugang, hringi konsúlt, fæ mér
meira kaffi og panta blóðprufur. Há
degismatur. Minn uppáhaldstími, hitti
gamla bekkjarfélaga sem eru einnig að
stíga sín fyrstu skref á kandídatsárinu.
Hér deila allir sögum af hinum ýmsu
deildum spítalans. Tölum um rafræn
eyðublöð, áhugaverð tilfelli og mat dags
ins. Erum ekki byrjuð að stunda ganga
lækningar. LSHBistro fær misjafna
einkunn og er þeim eiginleika gætt að
matreiða kjúklingaleggi úr fjórum mis
munandi kryddblöndum og nefna alla
réttina eftir framandi löndum.
Klára hádegismatinn, fylli á tómann
kaffibollann og kem mér aftur upp á
deild. Tek stigann núna, vil ekki sjást
of oft í lyftunni. Næst þarf að huga að
útskriftum dagsins, LSH hefur jú tekið
við af BSÍ sem samgöngumiðstöð lands
manna með daglegar áætlunarferðir á
HVest, HSu, Landakot og SAk. Endur
komutímar, lyfseðlar og bréf til sjúk
lings – sérfræðigrein kandídatsins, allt
þarf þetta að vera klárt. Vaktaskipti, segi
gömlu bekkjarsystkini frá veikustu sjúk
lingunum á deildinni, passa sérstaklega
upp á góða yfirfærslu ábyrgðar, en losna
ekki við þá tilfinningu að hér sé haltur
að leiða blindan. Held heim, furða mig á
ákvörðun Reykjavíkurborgar að loka ⅓
akreina Kringlumýrarbrautar í septem
berbyrjun, traffíkin umlykur einkabílinn
á meðan.
Plan eftirmiðdagsins, golf. Nýjasta
áhugamálið. Tók það upp eftir útskrift,
ég átti þegar hjól og gönguskó. Þurfti
því að velja um annaðhvort skíði eða
golfkylfur og enginn var snjórinn í júní
(þó meðalhitinn í Reykjavík hafi verið
<10°C). Staldra ekki lengi við heima og
stekk af stað í GKG að hitta félagana.
Mætum aðeins fyrir rástímann til að
hita upp. Höldum svo af stað, 9 holur
framundan. Fáum það staðfest að sum
arið á Íslandi sé enn á fullu flugi í sept
ember, 710°C. Höggin eru síbreytileg og
kúlan hvikul, enda undirritaður nýbyrj
aður, líkt og á kandídatsárinu. Tölum
ekki um læknisfræðina fyrr en á 7. holu.
Held svo heim með einn fugl, par og
nokkra skolla.
Kvöldmaturinn er alveg að verða klár
þegar ég kem heim, næ að hjálpa aðeins
til og leggja á borð áður en maturinn
er klár. Ég sé þá um kvöldmatinn næst,
en við kærastan reynum að skiptast á.
Kveikjum á kvöldfréttunum á meðan við
borðum og tölum um daginn. Eftir mat
inn tekur það helsta á streymisveitunum
við. Oftast er þetta einn þáttur, stundum
tveir. Kíki á skema morgundagsins fyr
ir svefninn, hvað ætli bíði mín? Jú, nýtt
teymi og ný deild en sami spítalinn. Velti
því svo fyrir mér áður en ég sofna „verð
ur það stiginn eða lyftan?”
P.S. Gaman að fá svo útborgað mánað
arlega.
D A G U R Í L Í F I L Æ K N I S
Mynd af mér á SGL-árinu, Barnaspítala
Hringsins, í 5 daga skoðun. Með á mynd
er Theodór Kári Alexandersson, birt með
leyfi foreldra.