Mímir - 01.09.1968, Qupperneq 5

Mímir - 01.09.1968, Qupperneq 5
HELGI ÞORLÁKSSON: KAUPMENN í ÞJÓNUSTU KONUNGS Norskir kaupmenn hér á landi á þjóðveldisöld voru hinir hörðustu í horn að taka alla jafn- an og var ekki gjarnt að gefa hlut sinn. Þetta sannast 1218, er þeir vega Orm Jónsson. Upp úr 1220 fer framkoma þeirra að breytast, að því er virðist um það leyti, er áhrifa Hákonar Hákonarsonar fer að gæta í Noregi og er ekki getið árekstra kaupmanna og höfðingja næstu þrjátíu og fimm ár. Kaupmenn reyna að gæta hlutleysis og afla sér vinsælda í stað þess að koma fram af hörku. Skagi hvíti Austmaður með Sturlu Sighvatssyni skýtur þannig af boga sínum á Vatnsfirðinga árið 1232, að allt geigar, og ekkert gagn varð að skotum Jósteins glennu Austmanns, er var með Þorleifi í Görðum í Bæjarbardaga 1237, er þeir börðust Þorleifur og Sturla Sighvatsson. Skagi hvíti og Jósteinn glenna koma ekki fram eins og Austmenn, sem berjast fram í rauðan dauðann með höfðingja sínum eða húsbónda íslenzkum gegn öðrum ís- lenzkum höfðingja eins og áður hafði tíðkazt og næg dæmi eru um. Þeir eru farnir að hegða sér eins og konungur hefði gert í þeirra sporum, þeir eru fulltrúar konungs og hans menn fyrst og fremst. Islendingar virðast einnig vera farnir að líta á kaupmenn sem hlutlausa aðila. I Sauðafellsför 1229 voru allir meira og minna limlestir, „en Sveinn prestr, Eyvindur brattr, Kristrún farkona, Helga Asbjarnardóttir og Oddný váru lítt sár" (Isl.s. 329). Var þá mjög hart sótt að Sveini og tilviljun, að hann var ekki veginn (Isl.s. 326—7). Mætti halda, að Eyvind- ur brattur hafi verið í felum, en svo var ekki. Honum hefur verið hlíft að mesm, og er það at- hyglisvert í svo miskunnarlausri árás, þar sem konum var ekki einu sinni hlíft. I bardaganum í Geldingaholti 1255 var Þórir totmr, norskur stýrimaður. Hann var nýkvæntur Herdísi bróð- urdóttur Gissurar Þorvaldssonar. Var Þórir með Oddi Þórarinssyni í Geldingaholti gegn óvinum Gissurar, Hrafni Oddssyni og Eyjólfi ofsa. Þórir barðist vasklega, en skamma smnd, og er þess ekki getið, að hann særði neinn. „Þórir komst í kirkju", segir Isl.s. (514) og bætir við: „Eigi þykkjast menn þat séð hafa, hverju faraldi hann komst í kirkju" (þ. e. með hvaða hætti). Er líklegt, að menn Eyjólfs hafi hleypt Þóri í kirkju, því að þeir drápu umsvifalaust aðra, sem reyndu hið sama. Virðist Þórir njóta hér sér- stöðu, sem hann hefur skapað sér eins og fleiri landar hans ur kaupmannastétt. Það var eftir vonum, að konungur notaði kaupmenn sem er- indreka sína. Fjórir þeirra a. m. k. koma fram sem launaðir erindrekar konungs, en stunda þó kaupmennsku engu að síður. Helzmr kaupmanna í þjónustu konungs er Eyvindur bratmr Eyvindsson, stýrimaður og hirðmaður. Þ.s. skarða getur þess, að hann væri hér 1252 og segir um hann (122): „Eyvindr var hirðmaðr Hákonar konungs. Var hann gamall maðr ok óskyggn ok vinr Smrlunga, en óvinr Gizurar". Eyvinds er fyrst getið hér á landi ár- ið 1229 að Sauðafelli hjá Sturlu. Þarf ekki að velkjast í vafa um, að hann hefur látið ýmis fög- 5

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.