Mímir - 01.09.1968, Qupperneq 7

Mímir - 01.09.1968, Qupperneq 7
Fiatatungu í Skagafirði, þar sem hann var norsk- ur kaupmaður og vænta hefði mátt að væri á Keldum á Rangárvöllum á sama tíma. Sættin, sem þarna var gerð, gæti bent til þess, að Ólaf- ur hafi lagt orð í belg, enda er ekki ólíklegt, að það hafi verið tilgangur hans, fyrst hann var þarna kominn. Niðurstaðan varð sú, að Magnús biskup skyldi gera um öll mál Kolbeins og Sighvats, en hann hafði komið út tveimur ár- um áður með utanstefnur til Þorvalds Gissurar- sonar, Sighvats og Sturlu. Virðist hann frá þeim tíma til dauðadags vera eindreginn erindreki erkibiskups, sem hins vegar rak erindi konungs hér á landi (smbr. um Magnús ísl.s. 396). Aldrei varð þó af gerð biskups, því að Sighvatur kom ekki til að heyra dóm hans, sem ekki er undmn- arefni.* Tekið var fram, að Ólafur hafi verið í sinni fyrsm ferð, er fundurinn var í Flatatungu. Það má túlka svo, að hann hafi oftar komið út hing- að. Þó er aðeins vitað um eitt annað skipti fyrir dauða Sturlu Þórðarsonar (1284) höfundar Isl.s. Það var árið 1239, en þá bjó Ólafur af Steini skip sitt til hafs fyrir norðan land. Þetta var sama sumar og Snorri kom út í óleyfi. Sama sumar komu og út Sigvarður og Bótólfur í fyrsta skipti a. m. k. sem biskupar. Ólafur braut skip sitt og var hér því veturinn 1239—40 og e. t. v. lengur (Isl.s. 445—6). Hefur hann eflaust haft margt að sýsla, því að mikið stóð til á þessum tíma og mörgu þurfti að koma í kring. Þórir totmr hét stýrimaður, Austmaður. Hans er fyrst getið árið 1246, eftir Haugsnesbardaga. Fór Gissur Þorvaldsson þá norður og mættust herir þeirra Þórðar kakala. „Eftir þat tókust meðalferðir ok fóru þeir á milli Þórir tottr Arn- þórsson, — hann hafði skip á Eyrum ok var með Ghuri —, margir menn fóru aðrir á milli, ok varð saman komit sættum með því, at Hákon konungr skyldi gera með þeim við þá menn, sem hann vildi við hafa. Skyldi þeir fara utan um sumarit báðir, Þórðr ok Gizurr. Sóru tólf # Þess ber að geta, að Kálfur og sonur hans voru vígðir menn. menn sátt þessa ór hváru tveggja ríkinu ok at halda þessa sætt, en þeir fundust ekki sjálfir, Gizurr ok Þórðr" (Þ.s. kak. 81). Hákon kon- ungur felldi úrskurð sinn um mál þetta árið eftir 1247 með ráðum Vilhjálms kardinála um- boðsmanns páfa. Hákon konungur hafði vorið 1244 fengið vinsamlegt bréf frá páfa. Árið 1245 fór Hákon að hreyfa því máli, að kardináli kæmi af hendi páfa að vígja hann (Hák.s. 319 —20). Sætt sú, er Þórir totmr og fleiri gerðu 1246 var á þá leið, að „Hákon konungr skyldi gera með þeim við þá menn, sem hann vildi við hafa". Það virðist því sem svo, að Hákon konungur hafi viljað láta væntanlegan kardi- nála dæma í máli þeirra Gissurar og Þórðar, og þess vegna sent Þóri tott til að koma þeim utan. Þetta sýnir, hvers Hákon var megnugur með aðstoð kaupmanna. Að vísu voru þeir hand- gengnir menn Þórður og Gissur, en þeir töluð- ust ekki við, svo að Þórir varð að koma þessu fram upp á eigin spýtur með því að fá menn úr báðum flokkum til aðstoðar og ganga á milli. Það átti eftir að reynast sterkur leikur hjá kon- ungi að láta kardinála dæma í máli þeirra Giss- urar og Þórðar, því að þar með hafði verið fenginn páfalegur úrskurður, sem var alveg í anda stefnu konungs. Næst er Þóris getið í brúðkaupinu á Flugu- mýri 1253 og nýmr þar virðingar af hálfu Giss- urar (ísl.s. 482). Ekki er þess getið, að Þórir lenti í neinum háska í brennunni, hefur senni- lega verið farinn áður. Sjálfur er hann í öðru brúðkaupi árið eftir sínu eigin og Herdísar Ein- arsdóttur, bróðurdótmr Gissurar. Þar var Brand- ur Jónsson „ok margt annarra góðra manna ok göfugra, bæði norrænir menn og íslcnzkir" (Isl. s. 505). Ekki er þess getið, hvaða göfugu Aust- menn það voru. Fyrst verið er að ræða um brúðkaup Þóris totts er ekki úr vegi að minnast á Olaf tott, sem veldur heilabromm. Hann á það sammerkt með Austmönnum almennt, að uppruni hans er alveg ókunnur. Hann hefur verið í liði Gissurar í Ör- lygsstaðabardaga, en er ekki getið að öðru þar en því, að hann kastaði skildi yfir Sturlu Sig- 7

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.