Mímir - 01.09.1968, Page 26
inn. Þessar upplýsingar getum við svo notað til
þess að krydda réttinn, ef okkur sýnist svo.
Annars er Lao-tse talinn fæddur 604 f. Kr.
Faðir hans var bóndi í þorpinu Koh-jen (þjak-
aður mannkærleiki) í sveitinni Le (hræðileiki)
í héraðinu Koo (biturleiki) í ríkinu Tsau (þján-
ing). Eftir því, sem næst verður komizt, munu
þessi nöfn hafa átt stað einhversstaðar norð-
arlega í Kiangsu í grennd Jangtse fljótsins.
Nafnið Lao-tse var ekki upprunalegt nafn hans,
heldur heiðurstitill og merkir gamli meistarinn
eða eitthvað í líkingu við það. Ættarnafn Lao-
tse var hinsvegar Li (plómutré) og fornafnið
E’r (eyra).
Lao-tse varð síðan bókavörður við keisara-
hirðina í Loyang. Sagt er, að hann hafi á efri
árum sínum farið úr landi vegna vaxandi upp-
lausnar innan ríkisins, en á leið sinni út ur land-
inu hafi hann gist hjá tollverðinum Yin Hsi, og
hafi sá góði maður fengið hann til þess að rita
niður kjarnann úr kenningu hans, 5000 kín-
versk tákn, Tao-teh-king.
Sagan um það, hvernig Tao-teh-king varð til,
er að öllum líkindum ein af fjölmörgum þjóð-
sögum utanum líf og starf meistarans mikla.
Tii eru jafnvel þeir, sem halda því fram, að
Lao-tse hafi ekki skrifað Tao-teh-king, eða að
minnsta kosti mikið af bókinni sé síðari tíma
viðbót. Það sjónarmið er einkum rökstutt með
því, að bygging taóismans sé á ýmsan hátt and-
svar gegn uppbyggilegum siðfræðikenningum
Konfúsismans, en Kong-fú-tse var heldur yngri
en Lao-tse, fæddur 552 f. Kr. Telja sumir, að
hluti bókarinnar sé jafnvel ekki ritaður fyrr en
á 3. öld f. Kr., enda verður taóisminn ekki að
trúarhreyfingu, formlega séð, fyrr en þá. Ýmsir
þekktir fræðimenn hafa þó borið þetta til baka
með gildum rökum. T. d. telja þeir James Legge
og Karl Ludvig Reichelt báðir, að bókin sé að
langmestum hluta upprunaleg og lítið sé um
síðari tíma áhrif. Benda þeir og á, að í ýmsum
kínverskum verkum frá litlu yngri tímum en
Lao-tse er vitnað í Tao-teh-king.
Tao-teh-king, Bókin um veginn eða Bókin
um dyggðina og veginn, er 81 kapítuli að lengd.
26
Fyrstu 37 kaflarnir eru tilraun til þess að skil-
greina Tao. Næstu 44 kaflarnir eru um Tao í
áhrifum sínum = teh, sem sumir þýða með orð-
inu dyggð.
Maður, sem öðlazt hefur Tao og lifir í því,
öðlast einnig ávöxt Taolífsins, teh. Hann nær
frelsi og hamingju. Norski fræðimaðurinn Karl
Ludvig Reichelt þýðir þetta með „Taos særpreg".
í þýðingu Jakobs Smára og Yngva Jóhannes-
sona er þetta nefnt dyggð eða hin æðstu gæði
og Sören Sörenson nefnir þetta dyggð.
Einsog mörg rit austurlenzkrar trúar- og
heimspeki er Bókin um veginn mjög óljós og
torskilin. Við verðum einnig að hafa það í huga,
að erfitt er að leggja út af kínversku táknunum.
Reichelt nefnir til dæmis fyrstu setninguna í 50.
kapítula. Sú setning er aðeins 4 kínversk tákn.
Fyrsta táknið merkir „að fara inn", annað merk-
ir „lífið", þriðja „að fara til baka", fjórða „dauð-
inn". Reichelt þýðir þetta þannig: „Menneskene
trer ut gjennom livet, og gár igjen tilbake
gjennom dpden."1 James Legge þýðir þannig:
„Men come forth and live; they enter (again)
and die."2 Yngvi og Jakob þýða þannig: „Menn
koma út í lífið og fara aftur inn í dauðann."3
Sören Sörenson þýðir þannig: „Menn fara út úr
lífinu og hverfa inn í dauðann."1
Það er því sízt að furða, þó að Tao-teh-king
sé þýtt og skilið á ýmsan veg, og sé og verði
alltaf bitbein fræðimanna um þessi mál. Til
skýringar á margræðni taósins skulum við grípa
niður í greinina Þessi hlutur — eða tónlist af
streingjum, ferðaminning Laxness frá Kína.
Yeh rithöfundur les það sem skrifað stendur,
kímir við og lætur sér fátt um finnast; þetta er blá-
skært Tao, segir hann, útleggur síðan: Fáirðu skemt
þér við þenna hlut (sem hér er nú), þarftu ekki f,'n-
list af streingjum iútunnar.
Já það þarf sannarlega ekki að gera því á fæturna
hvar þessi texti eigi heima. Mér er sérstök hugfró að
rekast loksins á spakmæli úr Taó á réttum stað. Og
einsog stundum áður veit ég ekki fyren tilbrigðin eru
farin að hljóma gegnum frumstefið; frumstefið um
tilbrigðin:
Ef þú unir við þenna hlut, þá er tónlist af streingj-
um lútunnar góð viðbót; en ekki heldur meira.