Mímir - 01.09.1968, Blaðsíða 30

Mímir - 01.09.1968, Blaðsíða 30
V. Af þessum samanburði sjáum við, að Laxness reynir að draga fram þann þátt taóismans, að þögnin, lítillætið, jákvæð hjáseta leiði til góðs. Hin innhverfa ögun og kyrrleiki smðlar að æðsta jafnvægi, sem verður öllum til blessunar. Þessi niðurstaða kemur því varla heim við rit- dóminn um síðari þýðingu Bókarinnar um veg- inn, þar sem hann tekur upp ummæli Lin Jút- angs um „old-roguish wisdom", kæringarlaus- an rónahátt og ruglandi og eyðandi efasemdar- stefnu. Þegar Laxness vitnar í Lin Jútang sem hæstarétt um kínverska speki, ber þess að gæta, að Lin Jútang var Konfúsíusarsinni, þegar hann ritaði þessi orð, — og sem slíkur andvígur taó- isma. Þannig eru því orð hans villandi. Það breytir þó engu um afstöðu Laxness og undir þá afstöðu strikar Þórbergur Þórðarson í grein- inni Rangsnúin mannúð, Tímarit Máls og menn- ingar 1964, en sú grein er svar við Skáldatíma. Þar segir svo meðal annars: Eg býst við, að það hafi farið líkt fyrir Halldóri og mér og öðrum dýrkendum taós hér á landi, að Bókin um veginn hafi fremur verið honum skemmti- pési en lærdómskver til undirbúnings að heilagri konfirmasjón fyrir altari taós, og þvi fremur hef ég ástæðu til að bera hann þeim grun, að hann virtist vera sammála þeirri kenningu kínversk-ameríska rit- höfundarins Lin Yu Tang, að Bókin um veginn væri rónasmíði og eiginlega skemmdarverk við þjóð- félagið, og fannst mér Halldór fagna þessum upp- lýsingum. Reis af þessu lítils háttar þráttan milli okkar eitt kvöld í Unuhúsi. En það verður ekki af Halldóri haft, að hann hef- ur hagnýtt sér taó til að flikka upp á sumar persónur sínar í nokkrum skáldritum sínum, eins og Peter Hallberg hefur gefið sér tíma til að hugleiða í ritgerð sinni: Litla bókin um sálina. Þessi beiting Halldórs á taó fær oftast það útfall að ýkja nokkuð þá hjartamenningu, sem hér hafði þróazt um aldaraðir, en reynzt hefur, því miður, oft endingarlítil, þegar þetta fólk hefur komizt í kynni við peningaþefinn á mölinni.11 Hver er þá skoðun Laxness á taói? Hvaða á- hrif hefur það haft á verk hans? Þórbergur segir að hann hafi hagnýtt sér taó til þess að „flikka" 30 upp á siunar persónur sínar. Ög Peter Hallberg bendir á ýmis taómerki víða í verkum Laxness í grein sinni Litla bókin um sálina og Halldór Laxness í Tímariti Máls og menningar 1962. Þegar við gaumgæfum þessi taómerki sjáum við, að þau eru ekki „old-roguish wisdom". Þvert á móti stefna þau öll að sama skilningi á taói og fram kemur í sögunni um Temúdjín. Eg álít því, að samstaða Laxness með Lin Jútang sé fjarri því að vera einlæg, og taka beri því meira mark á orðunum um draum „sveita- sælunnar, sem ævinlega hefur verið einn sterk- astur þátmr og töfrafyllstur í lífi, list og bók- mennmm Kína." Við skulum því til sönnunar grípa niður í önnur verk skáldsins. I blaðagrein 1944 um fiskveiðar við Island segir hann svo um gamlan, íslenzkan sjómann: Látlausri, hlédrægari og góðviljaðri öðiing þekkti ég ekki. Allt sem kom náiægt honum lifði. Af tali um hversdagslegustu hluti við hann skildist manni betur orðið taó, alvaldið, sem vinnur án erfiðismuna og hættu, kemur öllu til þroska, sigrar án hetju- skapar og er voldugt án frægðar.12 I fyrrnefndri grein um bækur í Alþýðubók- inni segir Laxness svo um ömmu sína: Eg hefi mörgum kynst, sem kapp hafa lagt á bók- vísi, en þeir hafa oftast verið fremur mannúðarlitlir í hugsjónum og nokkuð ofstopasamir hið innra með sér, en snauðir að þeirri menningu hjartans, sem hún amma mín var gædd og lýsti sér í gamansemi, elju, afskiftaleysi í trúmálum, jafnaðargeði í sorgum, kurteisi við bágstadda, hugulsemi við ferðamenn, óbeit á leikaraskap, góðsemi við skepnur.13 I ieikritinu Dúfnaveislunni lætur Laxness pressarann segja: En vinna sitt lítilfjörlega verk eftir getu í horni þar sem ekki er hávaði og einginn tekur eftir manni, það er mitt rórill kona, og það veistu; og hafa fyrir soðníngu og kartöflum. —14 í þessum tilvitnunum birtist íslenzka almúga- fólkið, eða að minnsta kosti sá þáttur þess, sem

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.