Mímir - 01.09.1968, Side 32

Mímir - 01.09.1968, Side 32
JÓN G. FRIÐJÓNSSON: HUGLEIÐINGAR UM VÍSNABÓK GUÐBRANDS BISKUPS ÞORLÁKSSONAR Bókaútgáfa Guðbrands biskups Þorlákssonar mun vafalaust halda nafni hans lengst á loft, þó að hann léti og mjög að sér kveða á öðrum sviðum. Meginmarkmið Guðbrands með bóka- útgáfu sinni var að uppræta hinn forna sið og efla hinn nýja. Að þessu markmiði keppti hann óhvikull og einsýnn og skirrðist jafnvel ekki við að reyna að uppræta heilar bókmenntagrein- ar í þeirri von, að þá stæði hann nær marki sínu en áður. Einkum réðst Guðbrandur gegn döns- um, vikivökum og rímum og vildi, að skáld sinntu andlegum efnum en ekki veraldlegum. —- Þessi afstaða Guðbrands kemur glöggt fram í formála, er hann reit að sálmabókinni, sem út kom árið 1589, en þar segist hann setja sálm- ana til höfuðs veraldlegum rímum, soralegum mansöngvum og öðrum slíkum kveðskap. — Sálmabók Guðbrands vann ekki það verk, er hann hafði ætlað, en ekki gafst hann upp, held- ur sló fram enn stærra trompi, ef svo mætti að orði komast, en það var Vísnabókin, sem út kom árið 1612. Þó að ekkert kvæði Vísnabókarinnar verði eignað Guðbrandi, má með réttu telja hana hans verk fremur en nokkurs annars. Þetta verður augljóst, ef athugað er á hvern hátt bókin varð til. — Guðbrandur kallar saman ýmis góðskáld og segir þeim fyrir um form, efnisval og anda þeirra kvæða, sem hann vill fá í bókina. Auk þess safnaði hann saman gömlum kaþólskum kvæðum, er hann taldi nýtileg, og tók upp í Vísnabókina, -— flest að vísu nokkuð breytt. Af þessu leiðir, að Vísnabókin gefur gott yfir- lit yfir ákveðið tímabil íslenzkrar bókmennta- 32 sögu. Hún hefur að geyma úrval kvæða frá liðlega 250 árum og mikið af bezta kveðskap síns samtíma. Vísnabókin skipar því veglegan sess í íslenzkri bókmenntasögu, m. a. sem sýnis- bók þess tímabils, sem hún nær yfir. Með Vísnabók sinni hugðist Guðbrandur ríða slig á vissar greinar veraldlegs kveðskapar, eins og áður var sagt. Þar átti hann við ramman reip að draga, þar sem bókmenntasmekkur þjóðar- innar var fastmótaður af fornri hefð. Rímur voru geysivinsælar, danskvæði sömuleiðis, auk hins forna bókmenntaarfs. Ofan á þetta bættust fornaldarsögur, riddarasögur og margs kyns þýð- ingar. Guðbrandur hugðist stemma stigu við lestri slíkra bókmennta og leggja fram andlega lesningu eingöngu, og í formála að Vísnabók- inni segir hann m. a., að tilgangur sinn sé: „að af mættu leggjast þær brunavísur og afmors- kvæði, sem allmargir elska og iðka, en í stað- inn upp takast þessar andlegar vísur, sem góðir menn hafa ort og kveðið guði til lofgerðar, fróðleiks og skemmtunar. Menn hafa áður kveð- ið rímur af fornmönnum til skemmtunar og dægrastyttingar og í frásögur fært þeirra gerðir. Hví skyldu nú þá menn ekki heldur kveða rím- ur og kvæði af heilögum mönnum, þar bæði eru í heilsusamlegur lærdómur og góð dæmi eftir að breyta?" Þarna kemur fram skoðun Guð- brands á veraldlegum kveðskap, en þetta sjón- armið var þó engan veginn nýtt af nálinni, heldur gætti þess víða í lútherskum sálmabók- um fyrir hans daga. Þó að Guðbrandur stefndi að þröngu marki með Vísnabók sinni, er efni hennar þó all fjöl-

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.