Mímir - 01.09.1968, Side 40

Mímir - 01.09.1968, Side 40
Hallvard Lie: Norsk verslære, Oslo 1967 Universitetsforlaget. 878 tölusettar síður. Að því má spyrja, hvert erindi umsögn um norska bragfræði eigi í tímarit stúdenta í ís- lenzkum fræðum. Eru þar að mínu viti til ærn- ar ástæður tvær. Hin fyrri er sú, að engin norsk, dönsk eða sænsk bragfræði (nema þá eingöngu samtímaleg) verður samin án þess þar sé komið inn á ýmis atriði, er mjög svo varði íslenzka bragfræði, uppruna hennar og eigindir. Hin ástæðan er fátæki okkar að því er varðar skyn- samlegar bækur um þessi fræði á íslenzku. Mun það reynsla fleiri stúdenta en mín, að þar sé um fáskrúðugan og æði arfaskotinn garð að gresja. Sýnist mér af þessum sökum full ástæða til að verja ofurlitlu af dýrum pappír Mímis í kynn- ingu á hinni nýju bragfræði Hallvards Lies. Bók þessi er gífurlegt þrekvirki, og segir þar stjarnfræðilegt blaðsíðutal nokkra sögu, en fjarri því alla, því að baki hverri síðu hlýtur að liggja óhemjuleg nákvæmnisvinna og yfirlega. Fyrstu 150 síður bragfræðinnar eru hvort tveggja í senn inngangur og meginmál. Höf- undur fjallar þarna um ýmis vandamál fræði- greinarinnar og er margt fróðlegt að finna í því, en hér skal á fátt eitt drepið. Lie fer að dæmi ýmissa síðari tíma fræði- manna og forðast hið forna hugtak „pes" (flt. pedes, n. fptter) um bragliði, en notar í þess stað „takt." Væri í sjálfu sér ekkert athugavert við að nefna þessa takta bragliði á íslenzku, ef menn aðeins hafa í huga, að önnur hugsun liggur að baki því að tala um takt en fot eða pes. Standa taktar Lies í nánu sambandi við takta í tónlist, og sýnir hann mörg fróðleg dæmi því til sönn- unar, að svipuð lögmál gildi, þótt hann forðist að ganga jafnlangt og ýmsir fræðimenn, aðal- lega þýzkir. Á sama hátt notar Lie sem grófustu táknum bragliða ekki strik og boga eins og tíðkazt hefur hér, heldur aðeins S og s. Táknar þá S áherzlusamstöfu eða þunga samstöfu, en s áherzlulitla eða létta. Tvíliður yrði þannig táknaður SsSsSs..., þríliður SssSssSss... o. s. frv. Þetta kerfi verður að ýmsu leyti mjög hand- hægt og ætti að gleðja þá, sem rita þurfa um bragfræði á venjulega ritvél! I sambandi við þetta gerir Lie skemmtilega grein fyrir því, að Ss og Ss þurfi alls ekki ætíð að vera hið sama, þ. e. a. s. lengd taktsins geti verið mismunandi. Tvíliður geti á stundum verið jafnlangur þrílið, þríliður geti jafngilt venjulegum tvílið vegna áherzlumismunar. Jafnframt bendir hann á, að einkvætt, áherzluþungt orð geti verið fullgildur tvíliður að lengd. Þar tekur hann gott dæmi, þar sem er fyrsta hending í verkalýðsmarsi eftir Björnson: Takt, takt, pas pá takten, þar sem engum dytti í hug (vonandi) að greina Takt, takt sem tvílið (Ss) heldur tvo liði, í þessu tilviki einliði, sem hvor um sig er jafn- gildur tvíliðunum sem á eftir fara. Þetta mun að vísu ýmsum hafa verið ljóst í sambandi við ís- lenzka bragfræði, en hvergi hef ég séð þess getið né bent á mikilvægi þess að taka tillit til slíkra hluta við greiningu bragarhátta. Hér skal til gamans sýnt eitt dæmi um rýni Lies á notkun bragarhátta. Hann bendir á, að einliður eigi sér vísan stað í vinnusöngvum og barnagælum, nefnir dæmi þess, en segir síðan: En unntagelse fra regelen finner vi i A. Munchs „Vuggesang": Sov min | Spn, o | slumre | s0dt! Endnu gaaer din Vugge blpdt, ak, skj0nt Hun, Dig Livet gav, ligger i den kolde Grav. F0rste vers (vers: vísuorð) ville unektelig blitt rytmisk bedre om dette meningsl0se o var sl0yfet; bl. a. ville da den naturlige meningspause efter S0n blitt til- godesett. Men A. Munch var ná engang av dem som foretrekker á f0lge skjemaet i stedet for geh0ret, og skjemaet sa her: „troké," og det stakkars o mátte — o veh! for hvilken gang! — hjelpe en versmaker ut av „fot"-knipen. Bls.45. 40

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.