Læknaneminn - 01.01.2017, Side 9
8
Áv
ör
p
og
an
ná
lar
8
Alþjóðanefnd læknanema
er aðildarfélag að IFMSA
(Inter national Federation
of Medical Students’
Associations) en það eru
stærstu og elstu alþjóð legu
samtök læknanema samtaka
sem saman standa af 132
aðildar félögum. Alþjóða nefnd hefur verið
fulltrúi í sam tökunum frá 1957 og til heyrir því
undir sviði sem sér um klínískt skipti nám en
það veitir lækna nemum tæki færi á að kynnast
heilbrigðis þjónustu og lifnaðar háttum annarra
landa.
Sumarið 2016 var metþátttaka íslenskra
skiptinema í starfinu en 18 læknanemar fóru
í mánaðarskipti til Indónesíu, Danmerkur,
Belgíu, Frakklands, Ítalíu, Ghana, Hollands,
Perú, Taívans og Japans. Á Íslandi tókum við
á móti 22 skiptinemum frá Spáni, Þýskalandi,
Ítalíu, Danmörku, Frakklandi, Svíþjóð, Belgíu,
Sviss, Indónesíu, Kanada, Japan, Hollandi,
Taívan, Síle, Portúgal, Perú og Möltu. Sumarið
hér heima einkenndist af fjöri og góðu félagslífi
með erlendum skiptinemum og íslenskum
tengiliðum. Í júlí var helgarferð um Suðurland
og dagsferð í Gjábakkahelli. Í ágúst var einnig
farin helgarferð um Suðurland auk dagsferðar
á Snæfellsnes. Í hvorum mánuði voru haldin
vikuleg bjórkvöld og svo alþjóðakvöld þar
sem skiptinemarnir komu með mat frá sínu
heimalandi og smökkuðu íslenskan mat með
misgóðri lyst. Hingað til lands kom fjölbreyttur
hópur 22 erlendra skiptinema sumarið 2017
auk þess sem við sendum út átta íslenska nema
í skipti víðsvegar um heiminn.
Húsnæðismál fyrir erlendu skiptinemana hafa
verið erfið en gott húsnæði er grundvallaratriði
þess að geta haldið uppi skiptafyrirkomulagi
sem þessu. Við höfum undanfarin ár fengið
afnot af húsnæði við Kleppsspítala en í ár
var mikið umrót hjá spítalanum og átti ekki
að halda því fyrirkomulagi áfram. Fyrir
til stilli nefndar meðlima Alþjóða nefndar, Ólafs
Baldurs sonar, framkvæmdastjóra lækn inga,
Magnúsar Karls Magnússonar og Engilberts
Sigurðs sonar, fyrr verandi og nú verandi forseta
Læknadeildar, Sig ríðar Hafberg, mannauðs
ráðgjafa geðsviðs, Maríu Einisdóttur,
framkvæmda stjóra geð sviðs og Guðmundar
Sævar Sævarssonar, hjúkrunar deildarstjóra
á geðsviði, er nú í vinnslu samningur á milli
Alþjóðanefndar og umsjónarmanna Klepps
um samstarf og eiga þau mikið hrós skilið fyrir
það. Þar fáum við húsnæði fyrir nemana okkar
gegn vinnuframlagi í Batamiðstöðinni á Kleppi
í formi hreyfingar og fræðslu. Fyrir hugað
er að Hugrún, samstarfsfélag okkar, og fleiri
læknanemar taki þátt í þessu verkefni. Þar með
mun loksins vera komið öruggt húsnæði til
nokkurra ára sem er það sem við höfum stefnt
að lengi.
Árlega eru haldnar ráðstefnur á vegum
IFMSA þar sem gerðir eru samningar næsta
sumars, mynduð tengsl og umræðufundir
setnir. Í ágúst 2016 sendi Alþjóðanefnd þrjá
eldhressa fulltrúa á August Meeting í Mexíkó,
þau Herdísi Hergeirsdóttur, Jóhannes Davíð
Purkhús og Tryggva Ófeigsson. Í nóvember
fóru þrír fulltrúar á ráðstefnu á vegum
norrænu samtakanna FINO (Federation
of International Nordic Medical Students’
Organisations) í Finnlandi, þau Árný
Jóhannes dóttir, Eggert Ólafur Árnason
og fyrr nefnd Herdís. Í mars 2017 sendi
Alþjóðanefnd í fyrsta skipti fulltrúa á March
Meeting sem var haldinn í Svartfjallalandi
og við erum mjög stolt af þeim áfanga. Það
er aldeilis ljóst að Mexíkó kveikti sannkallað
IFMSA bál í hjörtum meðlima því það voru
áðurnefnd Herdís og Tryggvi sem fóru fyrir
okkar hönd til Svartfjallalands.
Eitt af markmiðum Alþjóðanefndar undan
farin ár hefur verið að virkja fleiri aðildar
félög til þátttöku í IFMSA. Nú í apríl
var haldinn stór fundur með stjórn FL og
öllum samstarfsfélögum þeirra þar sem
starf IFMSA var kynnt og félögin eindregið
hvött til þátttöku í starfi samtakanna. Fyrir
hvert samstarfsfélag er tilsvarandi svið innan
IFMSA þar sem hægt er að láta til sín taka,
deila reynslu sinni, fá ráðleggingar og nýjar
hugmyndir. Undanfarin ár hefur Ísland nánast
einungis nýtt sér það svið sem snýr að skiptum
í gegnum Alþjóðanefnd en nú verður vonandi
breyting þar á. Fulltrúar samstarfsfélaganna
sýndu áhuga á að taka þátt í samtökunum og
því var ákveðið að FL tæki við sem fulltrúi
Íslands í IFMSA, Alþjóðanefnd sér ennþá
um sitt svið en hin félögin hafa þá tækifæri
til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi á sínu
sviði. Gott fyrsta skref samstarfsfélaganna
væri að senda fulltrúa á alþjóðlegar ráðstefnur,
skapa sér þannig tengiliði og taka meiri þátt
í starfseminni. Við í Alþjóðanefnd erum
ánægð með þennan árangur og þökkum
samstarfsfélögum og stjórn FL kærlega fyrir
áhugann og vonum innilega að þetta verði til
þess að gæði starfsins verði ennþá betri.
Að lokum vil ég færa öllum meðlimum
Alþjóðanefndar mikið hrós og þakkir fyrir
frábært samstarf. Nefndin samanstendur af
öflugu fólki með mikinn áhuga á að gera starfið
betra og ég tel mig mjög heppna að fá að vera
hluti af þessum skemmtilega og metnaðarfulla
hópi. Alþjóðanefnd þakkar einnig tengiliðum
sínum fyrir vel unnið starf og viðburðaríkt
sumar.
Alþjóðanefnd
Helga Þórunn Óttarsdóttir
formaður Alþjóðanefndar
Stjórn Alþjóðanefndar 2016-2017. Efri röð frá vinstri: Surya Mjöll Agha Khan, Anna Lilja Ægisdóttir, Árný
Jóhannesdóttir, Herdís Hergeirsdóttir, Helga Þórunn Óttarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Jóhann Hauksson,
Tryggvi Ófeigsson, Jóhannes Davíð Purkhús, Eggert Ólafur Árnason. Á mynd vantar Bjarna Rúnar Jónasson
og Jóhönnu Vigdísi Ríkharðsdóttur.