Læknaneminn - 01.01.2017, Blaðsíða 87
Fr
óð
lei
ku
r
86
Sérnám
erlendis
Signý Vala Sveinsdóttir
Almennar lyflækningar,
blóðlækningar og blóðstorka
Hvar? Skåne Universitets sjukhus (SUS) í Lundi/Malmö, Svíþjóð.
Hvenær? 20092013.
Helstu kostir? Sænska heilbrigðiskerfið er mjög virkt og líkist
uppbygging þess í meginatriðum því íslenska. Spítalinn er með stórt
upptökusvæði (rúmlega ein milljón) og er háskólasjúkrahús sem sinnir
bæði kennslu og rannsóknum, auk þess gat ég lokið sérnáminu innan
sömu stofnunar. Þar er mjög sterk almenn lyflæknisfræði, blóð lækningar
og heimsfrægt blóðstorku „center“ (þær sérgreinar sem
ég stefndi á). Fékk metin að fullu deildarlæknisstörf mín frá Íslandi
(almenna lyflækningaprógrammið á Landspítala á þeim tíma, alls þrjú
ár). Góð handleiðsla, gott skipulag og ég sjálf gat haft mikil áhrif
á uppsetningu námsins (sem getur verið galli fyrir suma). Mikill
skilningur og nánast gert ráð fyrir að maður stundi rannsóknir og gefinn
tími til þess. Gat stundað doktorsnám samhliða vinnunni.
Gert er ráð fyrir að maður sitji yfirlitskúrsa sem hluta af náminu
og góðir möguleikar á að fara á ráðstefnur (a.m.k. þegar ég var úti).
Laun sem hægt er að lifa vel á. Frábær staðsetning, góðar samgöngur,
stutt niður á meginland Evrópu. Náði góðum tökum á
Norðurlandatungumáli.
Helstu gallar? SUS er sjúkrahús sem er skipt upp á tvo staði
(Lundur og Malmö), svipað og Landspítali Hringbraut/Fossvogur.
Maður þarf sjálfur að passa vel upp á sínar „rotationir“ og að maður sé
að fá allt út úr sérnáminu sem maður vill (veit að þetta er að breytast og
nú er meiri strúktúr og skráning). Þótt flest allt hafi verið vel virkt voru
mörg vandamál á sjúkrahúsinu (sem þó virðast vera alþjóðleg),
s.s. álag á bráðamóttöku, vandamál með legupláss, tímabundinn
niðurskurður o.s.frv.
Val á sérgrein er af mörgum talin ein
mikilvægasta ákvörðun hins almenna læknis.
Ekki nóg með að velja þurfi sérhæfingu
heldur þarf einnig að ákveða hvert skal
halda. Ritstjórnin ræddi við nokkra
sérfræðinga um upplifun þeirra af sérnámi
í mismunandi löndum. Það er von okkar
að lesendur hafi bæði gagn og gaman af
umfjölluninni.
Snjólaug Sveinsdóttir
Barnalækningar og
nýburalækningar
Hvar? Barnalækningar í Malmö á Malmös Universitetssjukhus og
nýburalækningar í Lundi á Lunds Universitetssjukhus, Svíþjóð.
Hvenær? 20042009.
Helstu kostir? Gott nám þar sem mikil þjálfun fékkst á góðum spítala
og maður fékk fljótt að taka ábyrgð. Auðvelt að komast í rannsóknir
samhliða starfi.
Helstu gallar? Að vissu leyti óskipulagt og markmið ekki alltaf skýr.
Mikil ábyrgð á manni sjálfum varðandi námsframvindu.
Hvernig gekk að samræma fjölskyldulíf og vinnu? Svíþjóð er mjög
barnvænt land og því auðveldara en á mörgum öðrum stöðum að sam
ræma fjölskyldulíf og vinnu. Það er samt þannig í Svíþjóð eins og annars
staðar að sérnám er mikil vinna og það fæst ekkert ókeypis. Vinnudagar
eru oft langir og mikið álag í vinnunni en góð frí á milli og skilningur
fyrir þörfum fjölskyldu til staðar.
Birgir Andri Briem
Háls-, nef- og
eyrnalækningar
Hvar? Buskerud Sentral Sykehus í Drammen og Oslo Universitets
sykehusRikshospitalet í Osló, Noregi.
Hvenær? 20062008 í Drammen og 20082010 í Osló.
Helstu kostir? Strúktúrerað nám og hægt að fá mikla og góða reynslu
á sérnáms tímanum ef maður ber sig eftir því. Fallegt og skemmtilegt
land með frábærum árstíðum og veðurfari. Almennt vandað og gott
fólk sem er mjög vinveitt Íslendingum. Metnaður í heilbrigðiskerfinu
að veita góða þjónustu.
Helstu gallar? Fáir gallar. Helst sá að það var mögulegt að komast
gegnum sérnámið á fremur ódýran hátt ef metnaður var lítill.
Hvernig gekk að samræma fjölskyldulíf og vinnu? Vinnuálag var
alltaf hæfilegt en breytilegt vaktaálag eftir stærð sjúkrahúss (fimm
skiptar óbundnar vaktir í Drammen en 15 skiptar bundnar vaktir
á Riks hospitalet). Sumarfrí fimm vikur. Fæðingarorlof 10 vikur fyrir
föður og svo sameigin legur tími sem ráðstafa mátti til föður eða móður
eftir þörfum, alls um 12 mánuðir þegar tekin voru inn sumarfrí og þess
háttar. Maður heldur fullum launum (líka vaktlaunum) í orlofi. Gekk
mjög vel að samræma fjölskyldulíf og vinnu enda gert ráð fyrir að læknar
væru fjölskyldufólk og tekið tillit til þess í vinnuskipulagi.
Hvernig gekk að samræma fjölskyldulíf og vinnu? Það gekk frábærlega.
Gott sumar og vaktafrí. Hins vegar talsvert vinnuálag og vinnudagurinn
frá kl. 816:30 formlega þótt maður væri oftast til um 1718. Gott
skólakerfi, tómstundir og fleira fyrir börnin. Mismunandi hvort makar
fá vinnu hins vegar. Fæðingarorlof viðurkennt með lítilli launaskerðingu
og tryggt að börn fái pláss á leikskólum. Einn besti tími okkar sem
fjölskylda!